Fréttablaðið - 02.05.2013, Side 6

Fréttablaðið - 02.05.2013, Side 6
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 BOSTON Lögreglan í Boston hefur handtekið þrjá einstaklinga til viðbótar vegna sprenginganna í maraþonhlaupinu þann 15. apríl síðastliðinn. Engar ástæður eru þó gefnar upp vegna hand- taknanna, en lögreglan taldi áður að bræðurnir tveir Dzhokhar og Tamerlan Tsarnaev hefðu verið tveir einir að verki. Í vikunni var greint frá því að DNA-sýni úr konu hefði fundist á einu sprengjubrotanna, sem var talið benda fyrst og fremst til þess að bræðurnir hefðu átt sér vitorðsmenn. Lögreglan hefur gefið út að engin ógn hafi verið talin stafa af þremenningunum sem voru hand- teknir, en þeir séu þó grunaðir um að hafa komið að árásinni. Hinn nítján ára gamli Dzhokhar Tsarnaev hefur verið ákærður fyrir aðild að árásinni. Tamerlan, 26 ára gamall bróðir hans, var felldur í skotárás fáeinum dögum eftir að hryðjuverkin voru framin eftir mikinn eltingaleik við lögreglu. Þrír létu lífið í maraþonsprengingunni og tugir slösuðust alvarlega. - sv Lögregla þögul sem gröfin um frekari handtökur í Boston: Þrír handteknir til viðbótar BOSTON UNDIRLÖGÐ Mikið kapp var lagt á að finna og handtaka bræðurna tvo sem taldir eru bera höfuðábyrgð á sprengingunni í Boston um miðjan síðasta mánuð. NORDICPHOTOS/GETTY EFNAHAGSMÁL Friðrik Pálsson, stjórnar- formaður Íslandsstofu, gagnrýndi vaxtastefnu Seðlabanka Íslands (SÍ) í ræðu sinni á ársfundi stofunnar og sagði stjórnvöld í raun ráðalaus gagnvart henni. Friðrik sagði að SÍ hefði haldið stýrivöxtum svo háum eftir hrun að fjölmargir hagsmuna- aðilar, svo sem stjórnvöld og forsvarsmenn atvinnulífs og launþegahreyfinga, hefðu lýst áhyggjum sínum af því. Þá hefðu háir vextir leikið heimilin illa. Margt hefði verið rætt um nauðsyn á sjálfstæði Seðlabanka, en fyrr mætti nú rota en dauðrota. „Erum við komin með fjórskiptingu ríkis- valdsins eða hvaða aðra skýringu má finna á því að ráðherrar ríkjandi stjórnar virðist bíða í ofvæni eftir vaxtaákvörðun Seðla bankans í hvert skipti? Mun hún falla að stefnu ríkis- stjórnarinnar í peningamálum og öðrum málum? Oftar en ekki lýsa þeir því yfir að þeir hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum. Og svo hvað? Jú, svo bíðum við aftur í mánuð.“ Friðrik benti á að 43 prósent af þeim sem sæti tækju á Alþingi eftir kosningar gerðu það í fyrsta skipti. Ábyrgð þeirra sem fyrir væru væri mikil og þeir yrðu að taka vel á móti þeim og tryggja að vinnubrögðin tryggðu Alþingi aukna virðingu. „Bankabólan er að baki eða er það ekki? Ég óttast að enn ein bólan sé í uppsiglingu og við getum átt á hættu slæmar afleiðingar ef við tökum ekki á málum nú þegar.“ - kóp Stjórnarformaður Íslandsstofu segir ríkisstjórn ráðalausa gagnvart vaxtaákvörðunum: Gagnrýndi vaxtastefnu SÍ harkalega Ég óttast að enn ein bólan sé í uppsiglingu og við getum átt á hættu slæmar afleiðingar ef við tökum ekki á málum nú þegar. Friðrik Pálsson, stjórnarformaður Íslandsstofu 1. Hvað heitir íslenska sprotafyrir- tækið sem var selt til Bandaríkjanna á milljarð króna? 2. Hversu margir kafarar borguðu fyrir að kafa í Silfru í mars og apríl? 3. Hvað heitir konungur Hollands? SVÖR: 1. CLARA. 2. Tvö þúsund. 3. Vilhjálmur Alexander. VEÐUR Veðurstofa Íslands greinir það ekki í kortunum að veður fari hlýnandi á næstunni að nokkru marki. Nú liggur fyrir að apríl- mánuður var venju fremur kaldur á landinu. Þegar Fréttablaðið hafði sam- band við Veðurstofuna í gærkvöldi og spurði fregna var niður staðan í raun skýr. Þeir sem binda vonir við sumarlegra veður þurfa að bíða í viku hið minnsta. Að sögn veðurfræðings hlýnar aðeins dag og dag en síðan snýr aftur til fyrri vegar. Þetta á við um helgina þegar snýr aftur í norðlægar áttir eftir aðeins hærri hitatölur í dag og á morgun. Þegar spurt var hvort fólk á Norður- og Austur- landi gæti átt von á því að eitt- hvað tæki upp af snjó og klaka var svarið nei. Í stuttu yfirliti Veðurstofunn- ar yfir veðurfar á landinu í apríl segir að í Reykjavík hafi mánuð- urinn ekki verið kaldari síðan árið 2000. Á Akureyri er mánuðurinn aftur á móti sá kaldasti í tæpan aldarfjórðung, eða síðan 1990. Þá segir að úrkoma hafi verið um 70% af meðalúrkomu í Reykjavík en í rétt rúmu meðallagi á Akur- eyri. Í Reykjavík voru sólskins- stundir óvenju margar; höfðu mælst vel yfir 200. Er talið trúlegt að mánuður inn verði þriðji mesti sólskinsapríl í Reykjavík frá upp- hafi mælinga. „Það er í sjálfu sér ekki mjög óvenjulegt að fá svona kuldatíma í apríl en maður er farinn að von- ast til þess að við fáum ekki frost úr þessu. Það er frekar áhyggju- efnið,“ segir Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur. Hann segir að frostanætur hafi verið í Reykjavík en svo hafi hlýn- að yfir daginn. Plönturnar þoli alveg slíka hitalækkun en afleitt væri að fá kaldan næðing með frosti úr þessu. Smávægilegir skaðar hafi þó orðið á plöntum í apríl. „Margir eru óþreyjufullir eftir vorinu, komnir garðyrkjuþættir í sjónvarpið og fólk farið að kaupa plöntur. Fólk er þó stundum of bratt með að planta hinu og þessu út, við getum enn átt von á frosti í maí,“ segir Þórólfur. - shá, kóp Ekkert í veðurspám sem vísar á hlýindi Eftir einn kaldasta apríl í manna minnum treysta veðurfræðingar sér ekki til að lofa neinu um verulega hlýnandi veður næstu daga. Garðyrkjustjóri segir að það yrði afleitt að fá vind og frost í maí. Kaldasti apríl síðan 1990 á Norðurlandi. GRÝLUKERTI 1.MAÍ Í Fossvoginum var ekkert sem benti til þess að sumar væri gengið í garð. Þeir Bangsi og Fengur létu sér þó fátt um finnast. MYND/MARÍA STEFÁNSDÓTTIR VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.