Fréttablaðið - 02.05.2013, Qupperneq 16
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR ÞINGVELLIR | 16
ÞJÓÐGARÐAR „Álagið á Þingvelli, vatnið og
þinghelgina er gríðarlega vaxandi,“ segir
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður,
sem boðar aðgerðir til að vernda gróður á
Þingvöllum.
Óhemjumikill vöxtur hefur verið í heim-
sóknum ferðamanna á Þingvöll. Umferð
um Mosfellsheiði jókst um áttatíu prósent
fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við í
fyrra. Ólafur segir að á Hakinu sé mann-
fjöldinn þessa dagana eins og á sumar-
degi.
„Svörðurinn er mjög opinn og auðsæran-
legur núna, sérstaklega vegna þess að
landið er svo bert og óvarið vegna snjó-
leysis og þess að það er ekki frost við yfir-
borð jarðar,“ segir þjóðgarðsvörðurinn.
Bílstjórinn og leiðsögumaðurinn Hörður
Jónasson segir ástandið einfaldlega slá-
andi. Hann nefnir Flosagjá sem dæmi.
„Hér hefði mátt bjarga gróðri fyrir
löngu með smá girðingu eða böndum.
Það er algjör óþarfi að leyfa fólki að fara
þarna að, myndatökustaður er bestur af
brúnni,“ segir Hörður, sem kveður ferða-
mennskuna kalla á betri stíga og stýringar
á ferðafólki.
„Ég skil ekki hvers vegna gjár brúnin
er ekki stúkuð af. Þangað þarf enginn
að fara auk þess sem það er hættulegt.
Afleiðing arnar eru mold, drulla og
gróðurskemmdir. Hver vill koma og skoða
mold og drullu? Það tekur lyng og mosa
hálfa öld að jafna sig ef það þá yfir höfuð
gengur,“ segir Hörður og ítrekar mikil-
vægi þess að gripið sé í taumana.
„Þetta er allt saman rétt,“ segir Ólafur
Örn um athugasemdir Harðar. „Þetta
er skuggahliðin á átakinu Íslandi allt
árið; þessi gríðarlegi fjöldi ferðamanna
sem kemur og gengur um landið eins og
á sumar degi. Þarna hefur lengi vantað
aðbúnað; umferðarstýringu, palla, brautir
og girðingar sem halda utan um þetta.“
Að sögn Ólafs verða á næstunni settar
50 til 60 milljónir króna í ýmsar úrbætur,
meðal annars í palla við Öxarárfoss og
við Drekkingarhyl, auk þess sem settir
verði upp kaðlar og girðingar, til dæmis í
Almannagjá þar sem forvitnir gestir arki
gjarnan út fyrir malarstíginn.
Lagfæra á Kirkjugarðsstíg, sem Ólafur
segir alveg skelfilegt svað sem flestir
sniðgangi á kostnað gróðursins í kring.
„Þegar umferðin er eins og að sumar-
lagi og svörðurinn alls staðar opinn og allt
veðst út á nokkrum skósólum þá verður
þetta alveg eitt flakandi sár og svað,“
segir þjóðgarðsvörður. gar@frettabladid.is
Þetta er skugga-
hliðin á átakinu
Íslandi allt árið; þessi
gríðarlegi fjöldi ferða-
manna sem kemur
og gengur um landið
eins og á sumardegi.
Ólafur Örn
Haraldsson
þjóðgarðsvörður
Verðtryggð skuldabréf
Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
LSS150434
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. kt. 580407-1100, hefur birt útgefandalýs-
ingu og grunnlýsingu dagsett 24. apríl 2013 vegna töku skuldabréfa til
viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf. Útgefandalýsinguna og grunn-
lýsinguna ásamt gögnum sem vitnað er til í þeim er hægt að nálgast hjá
Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105 Reykjavík og á vefsíðu
Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. www.lanasjodur.is fram til lokagjalddaga
skuldabréfanna.
Nafnverð útgáfu:
Heildarnafnverð skuldabréfanna sem óskað hefur verið að tekin verði
til viðskipta 3. maí 2013 er 675.000.000 kr. heildarnafnverð flokksins er þá
2.675.000.000 kr. Nafnverð hverrar einingar er 1 kr.
Skilmálar bréfanna:
Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf. Bréfin bera fasta 3,75%
ársvexti sem greiddir eru hálfsárslega, 15. apríl og 15. október ár hvert,
í fyrsta sinn 15. apríl 2012 og í síðasta sinn 15. apríl 2034. Auðkenni
flokksins á NASDAQ OMX Iceland hf. er LSS150434 og ISIN númer
IS0000020691.
Reykjavík, 2. maí 2013.
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Fórnarlamb átaks í ferðaþjónustu
Gríðarlegur fjöldi ferðamanna á Þingvöllum það sem af er ári er farinn að hafa áhrif á þjóðgarðinn. Skuggahliðar átaksins Ísland allt árið, segir
þjóðgarðsvörður. Verja á allt að 60 milljónum króna til að byggja stíga, palla og girðingar til að vernda gróður frá því að vera traðkaður niður.
ÞINGVELLIR
Komið hefur verið
upp merkingum
hér og hvar en
það hefur ekki
dugað til, enda
gestir á svæðinu
margfalt fleiri á
þessum árstíma
en hægt er að
taka á móti með
góðu móti.
ALMANNAGJÁ
Það er vitað mál
að fjöldi gesta á
Þingvöllum er ekki
í neinu samhengi
við möguleikana
til að taka á móti
þeim.
KIRKJUGARÐSSTÍGUR Gestir á Þingvöllum forðast stígana, sem eru svað eitt. FLOSAGJÁ Ástandinu við þessa náttúruperlu er lýst sem sérstaklega slæmu.