Fréttablaðið - 02.05.2013, Side 62
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
Enska pönksveitin Savages gefur
út sína fyrstu plötu, Silence Your-
self, á vegum Matador í næstu
viku og samkvæmt erlendum tón-
listarsíðum er eftirvæntingin eftir
henni mikil.
Þessi kraftmikla sveit var
stofnuð í London árið 2011 og
er skipuð fjórum konum, bassa-
leikaranum Ayse Hassan, gítar-
leikaranum Gemmu Thompson,
trommaranum Faye Milton og
söngkonunni Jehnny Beth.
Fyrstu tónleikar Savages voru á
síðasta ári þegar sveitin hitaði upp
fyrir British Sea Power í Brighton.
Eftir að myndband frá tónleikum
sem voru haldnir í London fór
eins og eldur í sinu um netið fór
bandið að vekja verulega athygli.
Tónlistinni var lýst sem síðpönki;
einhvers konar blöndu af hljóm-
sveitunum The Birthday Party,
Killing Joke, Mission of Burma
og The Slits. Í árlegri könnun BBC
var Savages tilnefnd sem ein af
þeim hljómsveitum sem fólk ætti
að fylgjast með árið 2013.
Í viðtali við bandarísku vef-
síðuna Pitchfork segir Thomp-
son nafnið Savages vera undir
áhrifum frá bókum sem hún las
í æsku eins og Lord of the Flies
og The Catcher in the Rye. „Á ein-
hverju tímabili heldur maður að
allir viti hvað er í gangi og hvern-
ig hlutirnir eiga að vera. Síðan
áttarðu þig á því að allir eru að
þykjast. Ég man þegar ég sat í lest
og áttaði mig á því að ef heims-
endir yrði þá myndum við byrja
að haga okkur aftur eins og dýr.
Í myrkri sýn minni sá ég fólk rífa
hvert annað í sig,“ sagði hún.
Í sama viðtali sagðist söng-
konan Beth hafa lagt upp með að
semja ágeng og ofbeldisfull lög í
stað ástar laga. Hún hlustaði mikið
á Black Sabbath og heillaðist af
því hversu sterk lögin voru. Einn-
ig las hún ljóð um síðari heims-
styrjöldina frá sjónarhóli Eng-
lendinga sem bjuggu í Frakklandi
og fékk innblástur þaðan.
Silence Yourself var tekin upp
á aðeins þremur vikum í London
og er einungis 38 mínútna löng.
Platan byrjar óvenjulega, með
tali úr kvikmyndinni Opening
Night frá árinu 1977 eftir John
Cassavetes: „The world used to be
silent / Now it has too many voi-
ces.“
Í dómi á vefsíðu tímaritsins
Clash fær platan 9 af 10 mögu-
legum í einkunn. Þar segir að
hljómsveitinni hafi tekist að fanga
kraftinn frá tónleikum sínum
og færa yfir á plötuna. Silence
Yourself sé nútímalegt og reitt
meistara stykki. freyr@frettabladid.is
Frumstæður kraft ur
Fyrsta plata pönksveitarinnar Savages, Silence Yourself, kemur út í næstu viku.
JEHNNY BETH Söngkona Savages á tónleikum. Fyrsta plata hljómsveitarinnar er á leiðinni. NORDICPHOTOS/GETTY
Jimi Tenor og Hjálmar - Dub of Doom
Eurovision Song Contest - We Are One
Savages - Silence Yourself
Í spilaranum
Savages segist í yfirlýsingu á vefsíðu sinni vera þreytt á öllu áreiti
nútímans. Hljómsveitin hvetur fólk einfaldlega til að halda kjafti og hlusta,
enda heitir upphafslag plötunnar Shut Up. Hún mælir með því að fólk
leiti innra með sér að hinum frumstæða krafti sem sé svo mikilvægur. Á
tónleikum sveitarinnar er mælt með því að engir farsímar séu á lofti. Í
staðinn eigi tónleikagestir að einbeita sér að því að njóta tónlistarinnar og
upplifunarinnar í heild sinni.
Þreytt á áreiti nútímans
Tónlistarveitan Spotify virðist hafa hitt vel í mark hérlendis, eins og
hún hefur reyndar gert úti um víða veröld. Það kemur ekki á óvart
enda er þetta notendavæn síða sem veitir manni auðveldan aðgang
í tölvum og símum að tónlist víðs vegar að úr heiminum. Þó svo að
bæði Bítlana og Led Zeppelin vanti enn þarna inn er um nóg bitastætt
að velja. Meira að segja Metallica, sem lengi hefur litið slíkar veitur
hornauga, er með efnið sitt þarna. Íslensk tónlist er að sjálfsögðu
einnig hluti af síðunni.
Með tónlistar-
veitum eins og
Spotify, þar sem
hægt er að streyma
tónlist í gegnum
netið, annaðhvort
ókeypis eða gegn
frekar vægu gjaldi,
hlýtur að draga
stórlega úr til-
hneigingu tónlistar-
áhugamanna til
að hala ólöglega
niður efni af skráa-
skiptasíðum. Lengi
hefur verið leitað
leiða til að sporna
við þeirri þróun
og vel hannaðar
tónlistarveitur eins
og Spotify hljóta að
beina fólki í áttina frá ólöglega niðurhalinu.
Það er annars eitthvað heillandi við að geta valið nánast hvaða
tónlist sem manni dettur í hug og spilað hana í símanum sínum eða
tölvunni hvar og hvenær sem er án þess að þurfa að hala efninu niður
á undan. Manni líður eiginlega eins og krakka í leikfangabúð þar sem
ótakmarkað magn af æðislegum leikföngum er í boði. Já, þessi tækni
nú til dags er svo sannarlega ótrúleg.
Spotify gegn
ólöglegu niðurhali
TÓNNINN
GEFINN
Freyr Bjarnason
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
25.4.2013 ➜ 1.5.2013
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Retro Stefson She Said
2 Daft Punk / Pharrell Get Lucky
3 Valdimar Beðið eftir skömminni
4 Pink / Nate Ruess Just Give Me a Reason
5 Justin Timberlake Mirrors
6 Christina Aguilera / Pitbull Feel This Moment
7 Bruno Mars When I Was Your Man
8 Phillip Phillips Gone, Gone, Gone
9 Sigur Rós Brennisteinn
10 Christina Agui./Blake Shelton Just a Fool
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
2 Ýmsir Tíminn flýgur áfram
3 Retro Stefson Retro Stefson
4 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
5 John Grant Pale Green Ghosts
6 Valdimar Um stund
7 David Bowie The Next Day
8 Raggi Bjarna Dúettar
9 Hjaltalín Enter 4
10 Moses Hightower Önnur Mósebók
Innifalið er: Flug, flugvallarskattar, flutningur á golfsetti, gisting á Barcelo
Costa Ballena**** með hálfu fæði. Ótakmarkað golf í 7 daga + komudag,
golfkerrur og æfingaboltar.
Ferðtilhögun: Flogið út í beinu flugi frá Keflavík til Jerez (ca. 25 mín
akstur til Costa Ballena) að morgni 9. maí. Heimflug frá Sevilla með Easy
Jet kl. 10:25 þann 17. maí með millilendingu í London Gatwick. Þaðan er
svo flogið kl. 14.35 með Wow air til Íslands með lendingu kl. 16:35.
Hotel Barcelo Costa Ballena ****
Kr. 165.000
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í herbergi með hálfu fæði í 8 nætur.
Verð m.v. gistingu í einbýli kr. 185.000
Frá kr. 165.000
með hálfu fæði á mjög góðu 4 stjörnu hóteli
Síðust
u sæti
n í vor Golfferð til
Costa Ballena
á Spáni
9. maí í 8 nætur