Fréttablaðið - 02.05.2013, Side 64
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48
Luke Glanton er þekktur í
heimabæ sínum sem ansi fær öku-
þór. Hann starfar sem áhættu-
ökumaður í farandsýningu og dag
einn, í bænum Altamont, fær Glan-
ton heimsókn frá fyrrverandi kær-
ustu sinni, Rominu, og þær fréttir
að hann eigi með henni son. Glan-
ton ákveður að segja skilið við
farandsýninguna, finna sér vinnu
í Altamont og rækta samband sitt
við soninn. Romina er lítt hrifin af
áformum Glantons, þá sérstaklega
vegna þess að hún er komin í nýtt
samband með manni að nafni Ali.
Glanton berst í bökkum fjárhags-
lega og ákveður að grípa til sinna
eigin ráða. Svo hefst myndin The
Place Beyond the Pines, en sagan
spannar fimmtán ár og fléttar
saman sögu þriggja persóna.
Ryan Gosling fer með hlutverk
ökuþórsins Luke Glanton og með
önnur hlutverk fara Bradley Coo-
per, Eva Mendez, Rose Byrne,
Dane DeHaan og Ray Liotta. Leik-
stjóri myndarinnar er Derek Cian-
france, en þetta er í annað sinn
sem hann og Gosling vinna saman.
Áður höfðu þeir leitt saman hesta
sína í kvikmyndinni Blue Valent-
ine frá árinu 2010.
Myndin fær góða dóma og lýsir
gagnrýnandi Rottentomatoes.
com henni á þennan veg: „Þetta
er harðgert efni en myndin var
hvað hörðust þegar Gosling var
á skjánum.“ Annar gagnrýnandi
segir söguþráðinn þó margtugg-
inn og ótrúverðugan.
Myndin hlýtur 80 prósent í ein-
kunn á vefsíðunni Rottentomatoes.
com og 7,9 í einkunn á vefsíðunni
Imdb.com. - sm
Harðgerð en marg-
tuggin harmsaga
Kvikmyndin The Place Beyond the Pines er frumsýnd í kvikmyndahúsum annað
kvöld. Myndin skartar gæðaleikaranum Ryan Gosling í einu aðalhlutverkinu.
HARÐGERÐUR GAUR Kvikmyndin The Place Beyond the Pines segir frá ökuþórnum Luke Glanton. Ryan Gosling fer með
aðalhlutverk myndarinnar.
Ryan Gosling er fæddur þann 12. nóvember 1980. Hann var ungur að árum þegar hann steig sín fyrstu skref í
skemmtanabransanum, en hann kom fyrst fram í barnaþáttunum The Mickey Mouse Club ásamt Justin Timberlake
og Britney Spears.
Hin ólíku andlit Ryan Gosling
MURDER BY NUMBERS Gosling
lék ungan morðingja í spennu-
mynd sem skartaði þáverandi
kærustu hans, Söndru Bullock, í
aðalhlutverki.
THE NOTEBOOK Það var í
hlutverki Noah Calhoun sem
Gosling vann hugi og hjörtu
ungra stúlkna um heim allan.
LARS AND THE REAL GIRL
Gosling bætti töluvert á sig
fyrir hlutverk einfarans Lars
Lindstrom.
BLUE VALENTINE Michelle Williams
og Gosling fóru á kostum í dramatískri
mynd um ástina og skilnað.
CRAZY, STUPID, LOVE Gosling
var heillandi í hlutverki glaum-
gosans Jacob Palmer.
DRIVE Hér fór Gosling með
hlutverk ónefnds ökuþórs í
kvikmynd danska leikstjórans
Nicolas Winding Refn.
➜ Titill myndarinnar er
ensk þýðing á nafni bæjarins
Schenectady. Nafnið er komið
frá Mohawk-indíánum.
2002
2011
2011
2010
20072004
➜ ➜
➜ ➜
➜
★★★★ ★
Iron Man 3
„Besta mynd seríunnar.“
★★★ ★★
Falskur fugl
„Áhugavert en óþægilegt
unglingadrama.“
★★★★ ★
Oblivion
„Oblivion stendur vissu-
lega á öxlum forfeðra
sinna, en hún gerir það
bara svo vel.“
★★★ ★★
G.I. Joe: Retaliation
„Bjánaleg en fer langt á
sjarmanum.“
★★★ ★★
Snitch
„Fínasta spennumynd
sem skilur þó ekkert sér-
lega mikið eftir sig.“
Lokasýning Svartra sunnu-
daga fer fram næsta sunnu-
dagskvöld. Þá verða sýndar
tvær myndir á einni sýn-
ingu sem hefst klukkan 20 í
Bíó Paradís. Myndirnar eru
Jómfrúar vorið eftir Ingmar
Bergman og The Last House
on the Left eftir Wes
Craven.
Myndirnar tvær
byggja á sömu
sögu; seinni mynd-
in er endurgerð
á þeirri fyrri, sem byggð er á
sænsku miðaldaljóði.
Hugleikur Dagsson, Páll
Óskar Hjálmtýsson, Sigurjón
Kjartansson og Sjón standa að
Svörtum sunnudögum. Þeir
draga sig í hlé yfir sumarið
en koma tvíefldir inn í Para-
dísina í haust.
Lokakvöld Svartra
sunnudaga í nánd
Tvær költmyndir sýndar á lokakvöldinu í Paradís.
KVIKMYNDARÝNI
HERRA CRAVEN
Mynd eftir Wes Craven
verður sýnd.
3
3