Fréttablaðið - 02.05.2013, Qupperneq 74
2. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 58
MMA Fimm vaskir kappar úr bardaga-
klúbbnum Mjölni taka þátt í bardaga-
mótinu 10th Legion Champion
Fighting sem fram fer í Hull á Eng-
landi á laugardaginn kemur.
Fjöldi bardaga fer fram um kvöldið,
þar af fimm atvinnumannabardagar.
Íslensku strákarnir eru margir að
stíga sín fyrstu skref í keppni í blönd-
uðum bardagalistum, MMA, en hafa
þó æft íþróttina um þó nokkurt skeið.
„Við höfum aldrei áður sent svona
marga keppendur á mót,“ segir Jón
Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis.
Tveir Íslendinganna munu berjast um
titil eða belti á laugardaginn kemur,
Diego Björn Valencia og Bjarki Þór
Pálsson.
„Diego á einn áhugamannabardaga
að baki en hann hefur æft karate í
fjölda ára og hefur mikla keppnis-
reynslu. Bjarki Þór vann báða áhuga-
mannabardagana sína en hann stefnir
á atvinnumennsku í MMA í haust,“
segir formaðurinn.
Mótið á laugardaginn kemur er það
fyrsta af mörgum sem Mjölnir sendir
keppendur á. Þrír Mjölnismenn fara á
mót á Írlandi eftir rúmar tvær vikur
og áðurnefndur Bjarki Þór mun keppa
í Cage Warrior-mótinu, sem er eitt
það stærsta í Evrópu, stuttu eftir það.
Það er því óhætt að segja að Mjölnir
sé á miklu flugi um þessar mundir.
„Ég bjóst aldrei við því að þetta
myndi gerast svona hratt,“ segir Jón
Viðar. „Þetta verður mikið keppnisár
hjá okkur.“
Eins og gefur að skilja er
kostnaður inn við keppnisferðir mikill.
Mjölnir fær ekki aðild að Íþróttasam-
bandi Íslands, auk þess sem áhuga-
menn í blönduðum bardagalistum fá
ekki greitt fyrir bardaga. Mjölnir
reynir af fremsta megni að styðja við
keppnislið sitt og rennur hluti félags-
gjalda í að greiða fyrir ferðirnar.
Bardagakapparnir sjálfir bera
síðan töluverðan kostnað
sjálfir.
Gunnar Nelson, skær-
asta stjarna Mjölnis-
manna, er meiddur
en keppir væntanlega
í UFC-mótaröðinni
seinna á árinu. Árni
Ísaksson, einn reynd-
asti kappi Mjölnis-
manna, mun einnig
keppa síðar á árinu og
sem fyrr segir mun Bjarki
Þór reyna fyrir sér í Cage
Warrior, en hann ætlar að
reyna fyrir sér sem atvinnu-
maður í haust. Jón Viðar telur
að Bjarki geti náð langt.
„Hann æfir eins og skepna,
hefur mikinn áhuga og er
mjög hæfileikaríkur.“
kristjan@frettabladid.is
Vígamenn úr Mjölni
slást við Breta og Íra
Bardagakappar úr íþróttafélaginu Mjölni gera víðreist á þessu ári. Fram undan eru
bardagar á Englandi og Írlandi. Einn Mjölnismaðurinn enn ætlar að reyna fyrir sér
sem atvinnumaður í haust. Félagið fær enga styrki til að senda keppendur út.
DIEGO BJÖRN VALENCIA
Aldur: 25 ára
Þyngd: 84 kg
Bakgrunnur: Svart belti í karate og blátt belti í brasilísku
jiu-jitsu. Margfaldur Íslandsmeistari í karate.
Reynsla: Á einn áhugamannabardaga í MMA að baki.
Var dæmdur úr leik fyrir að ganga of vasklega fram.
Andstæðingur: Tom Crosby, NSAC breskur meistari í
millivigt.
BJARKI ÓMARSSON
Aldur: 18 ára
Þyngd: 70 kg
Bakgrunnur: Blátt belti í BJJ.
Reynsla: Hefur unnið Mjölnir Open unglinga
tvisvar í röð. Sigraði á Íslandsmeistaramóti
unglinga í BJJ tvö ár í röð.
Andstæðingur: Rico Franco.
BJARKI ÞÓR PÁLSSON
Aldur: 26 ára
Þyngd: 77 kg
Bakgrunnur; Blátt belti í BJJ og með reynslu í muay-thai.
Reynsla: 2-0 í áhugamanna MMA. 3-0 í boxi. 1. sæti í
Hólmgöngu Mjölnis 2013 í flokki blábeltinga, sigraði
í flokki hvítbeltinga á Opna norska BJJ-mótinu árið
2011 og í -79 kg flokknum. 2. sætið á Íslandsmótinu
í BJJ árið 2012.
Andstæðingur: Sam Dulieu
MAGNÚS INGI INGVARSSON
Aldur: 19 ára
Þyngd: 77 kg
Bakgrunnur: Blátt belti í BJJ.
Reynsla: Jafntefli í fyrsta áhugamanna MMA-bardaganum.
4. sætið í opnum flokki á Íslandsmótinu í BJJ 2013.
Andstæðingur: Deon Bruning
BJARNI KRISTJÁNSSON
Aldur: 26 ára
Þyngd: 82 kg
Bakgrunnur: Hefur æft kickbox, BJJ og MMA í Mjölni
frá 2007.
Reynsla: 2. sæti í -99 kg og 3. sæti í opnum flokki
á Mjölnir Open 2012. 2. sæti í -94 kg og 3. sæti í
opnum flokki á Opna danska mótinu. Brons í -99
kg flokki á Opna skandinavíska.
Andstæðingur: Calvin Mooney
MJÖLNISMENNIRNIR FIMM
Sæktu þér nýja appið í snjallsímann þinn og hlustaðu á FM957, Bylgjuna og X977
hvar og hvenær sem er.
Fáðu okkur í símann þinn!
Ný
tt
ap
p
Farðu á visir.is/utvapp eða skannaðu QR kóðann og sæktu
Útvappið fyrir iOS eða Android.
JÓN VIÐAR
ARNÞÓRSSON