Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.05.2013, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 31.05.2013, Qupperneq 6
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 VÍSINDI Ný rannsókn sýnir að neysla verkjalyfsins Íbúfens eykur hættuna á hjartavandamálum og hjartaáföllum verulega. Íbúfen er eitt mest notaða verkjalyfið í dag, eftir því sem fram kemur á vefn- um MX.dk þar sem fjallað er um rannsóknina. 350 þúsund einstak- lingar voru kannaðir í rannsókn- inni en það var Gunnar Gísla- son, íslenskur sérfræðingur í hjartalækning- um við Gentofte- spítalann í Dan- mörku, sem stóð að henni. Hann telur mikilvægt að lyf sem inni- halda íbúprófen verði lyfseðilsskyld. „Við höfum séð í eldri rannsóknum að næstum því 60% allra Dana nota Íbúfen og það er sláandi,“ segir Gunnar í samtali við MX.dk. Rannsóknin sýnir að þrír af hverjum 1.000 sjúklingum, sem eiga á hættu að fá hjartasjúkdóma, fá hjartaáfall eftir að hafa notað Íbúfen að staðaldri í eitt ár. Í einu af hverjum þremur tilfellum lætur viðkomandi lífið. „Menn nota Íbú- fen við alls kyns verkjum en oft geta önnur lyf sem ekki hafa sömu aukaverkanir gert sama gagn og Íbúfen,“ segir Gunnar. Fréttablaðið náði ekki tali af Gunnari Gíslasyni í gær en Guð- mundur Þorgeirsson, hjartalæknir og prófessor við Háskóla Íslands, þekkir til rannsókna hans. Guð- mundur tekur undir varnaðarorð Gunnars í samtali við Fréttablaðið. „Við höfum lengi vitað að þessi lyf hækka blóðþrýsting. Þau geta haft skaðleg áhrif á nýrnastarfsemi en þetta er svona viðbót í sarpinn, að þau geti valdið hjartaáföllum. Þess vegna er vaxandi varkárni í að nota þessi lyf. Það bara vill svo til að þau eru stundum mjög dýrmæt til þess að gigtarsjúklingar geti lifað af nóttina, eða svo að segja, vegna verkja,“ segir Guðmundur. Guðmundur segir að sjaldnast noti fólk Íbúfen án ástæðu eða án þess að leiða hugann að aukaverk- unum. Engu að síður sé hægt að draga enn frekar úr notkun lyfsins. „Það er ástæða til þess að benda á þessa áhættu,“ segir Guðmundur. Þetta sé sérstaklega mikilvægt ef fólk hefur hjartasjúkdóma eða er í sérstakri hættu á að fá slíka sjúk- dóma.“ Gunnar Gíslason varar við því að Íbúfen sé ofnotað og vill að það verði gert lyfseðilskylt. Í Dan- mörku getur fólk nálgast það án lyf- seðils í stórmörkuðum eða apótek- um. Hér á Íslandi getur fólk keypt það án lyfseðils í næsta apóteki. „Íbúfen er ofnotað og ég tel að það eigi ekki að vera hægt að kaupa það í lausasölu,“ segir Gunnar í sam- tali við vefinn MX.dk. Guðmundur segir fulla ástæðu vera til þess að íhuga það að gera Íbúfen lyfsseðil- skylt hér heima. Ábendingarnar um skaðsemina séu orðnar það alvar- legar. jonhakon@365.is 1. Hver hefur fest kaup á húsi Sögu- félagsins í Fischersundi? 2. Hvað heitir rússneski ofurhuginn sem stökk af norðurhlíð Everest-fjalls? 3. Með hvaða körfuboltaliði leikur Jón Arnór Stefánsson? SVÖR 1. Jón Þór Birgisson; Jónsi í Sigur Rós. 2. Valery Rozov. 3. CAI Zaragoza. Gleraugnaverslunin þín Sumartilboð á sólgleraugum Tilboðið gildir til 31. júlí 2013 Sólgler með styrkleika fylgja kaupum á gleraugum MJÓDDIN Álfabakka 14 Sími 587 2123 FJÖRÐUR Fjarðargötu 13-15 Sími 555 4789 SELFOSS Austurvegi 4 Sími 482 3949 Sérfræðingur varar við notkun Íbúfens Sérfræðingur í hjartalækningum segir nýja rannsókn sýna að verkjalyfið Íbúfen auki líkurnar á hjartasjúkdómum. Lyfið er eitt hið vinsælasta sinnar tegundar á markaðnum. Hann vill að það verði lyfseðilsskylt. ÍBÚFEN Sérfræðingur vill að það verði lyfseðilsskylt GUÐMUNDUR ÞORGEIRSSON Íbúfen er ofnotað og ég tel að það eigi ekki að vera hægt að kaupa það í lausasölu Gunnar Gíslason sérfræðingur í hjartalækningum JAFNRÉTTISMÁL Karlar sem starfa innan fjármálafyrirtækja fá að meðaltali 712.000 krónur í mán- aðarlaun, en konur um 517.000 krónur. Kynbundinn launamun- ur er enn þá til staðar og fer ekki minnkandi, ef marka má skoð- anakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja. Í könnuninni, sem kom út í febrúar á þessu ári, kemur fram að konur fá 25 pró- sentum lægri heildarlaun en karl- ar. Þegar tekið er tillit til þátta eins og aldurs, menntunar, starfs- aldurs og starfsstéttar er kyn- bundinn launamunur enn þá um 12,1 prósent. Að jafnaði fá konur um það bil 195.000 krónum minna í heildarlaun en karlmenn. Þann- ig hefur lítil sem engin breyting orðið á frá því síðasta könnun var gerð, í október árið 2010. Könnunin náði einnig utan um viðhorf starfs- manna til jafnréttis innan vinnu- staðanna. Tæp 80 prósent karla telja jafnrétti vera fyrir hendi á vinnustöðum sínum, en rétt rúm- lega 60 prósent kvenna eru sömu skoðunar. Þá töldu 25,5 prósent svarenda að karlar hefðu meiri möguleika til starfsframa innan vinnustaða sinna, en tæp 7 prósent töldu konur eiga meiri möguleika til þess að klífa metorðastigann. - ósk Ekkert gerst til að jafna launamun kynjanna í fjármálafyrirtækjum á Íslandi: Konur fá talsvert minna greitt PAKISTAN, AP Talibanahreyfingin í Pakistan aflýsti í gær friðarviðræðum við stjórnvöld þar í landi eftir að næstráðandi í þeirra hópi var ráðinn af dögum í sprengjuárás Bandaríkjamanna. Waliur Rehman stýrði aðgerðum talibana í landamærahéraðinu Waziristan, en hann féll í árás ómannaðrar sprengjuvélar í fyrradag, en hann var eftirlýstur fyrir að hafa staðið fyrir árás þar sem sjö starfsmenn leyniþjónustunnar CIA voru ráðnir af dögum árið 2009. Talibanar, sem hafa það að markmiði að steypa stjórnvöldum í Pakistan fyrir fylgispekt við Banda- ríkin, höfðu fyrr á árinu viðrað möguleika á frið- arsamningum. Talsmaður þeirra sagði hins vegar í gær að þeir teldu árásir Bandaríkjamanna vera gerðar með samþykki pakistanskra stjórnvalda og því hefðu þeir slitið friðarferlinu. Talibanar í Pakistan hafa síðustu ár staðið bak við fjölda mannskæðra árása, en eru taldir standa höll- um fæti um þessar mundir. Árásir Bandaríkjamanna með ómönnuðum flaug- um hafa verið afar umdeildar undanfarið og lofaði Barack Obama forseti á dögunum að meira gegnsæi yrði viðhaft varðandi notkun þeirra. - þj Talibanar í Pakistan æfir eftir að næstráðandi í þeirra röðum var felldur: Bakka út úr friðarviðræðum REIÐI Á GÖTUM ÚTI Hörð mótmæli brutust út í Pakistan í gær vegna sprengjuárása Bandaríkjamanna á vígamenn tali bana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í gær átján mánaða fangelsis- dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Steinari Aubertssyni. Hann er dæmdur fyrir að skipuleggja inn- flutning á rúmlega hálfu kílói af kókaíni frá Danmörku til Íslands. Steinar var um tíma eftirlýstur af Interpol vegna málsins. Tveir aðrir voru dæmdir í málinu. Giovanna Soffía Gabríella Spanó var dæmd í 26 mánaða fangelsi og Magnús Björn Halldórsson í 24 mánaða fangelsi. - hó Hæstiréttur staðfestir dóm: Steinar fékk 18 mánaða dóm munur er á launum kynja innan fj ármála fyrir- tækja. Konur fá lægri laun. 25% VEISTU SVARIÐ?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.