Fréttablaðið - 31.05.2013, Qupperneq 8
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
mini
Ny
r og
skemm
tilegu
r
va
lkostu
r
*Pantanir þurfa að berast
fyrir 15:00 daginn áður
Nú bjóðum við okkar frábæru pítur sem smárétti fyrir
öll stór og smá tilefni. Mini píturnar eru afgreiddar á
hentugum bökkum í þremur útfærslum*
Klassík: Buff, kjúklingabringa,
grænmeti, lamb og beikon
Exótík: Sjávarréttir, lax,
kalkún-beikon og kebab
Mix: Roastbeef, buff,
skinka og kjúklingalundir
Skipholti 50 C
Pöntunarsími: 562 9090
www.pitan.is
3.295.-
12 mini pítur
klassí
k
mix
exótí
k
MIÐBORGIN Þetta er í fyrsta skipti sem aðalskipulag er unnið í sátt allra flokka. Meðal þess sem kveðið verður á um er að ekki
skuli rísa háhýsi í miðbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SKIPULAGSMÁL Nýtt aðalskipulag
Reykjavíkurborgar verður sam-
þykkt úr borgarstjórn og sett í
auglýsingu í næstu viku. Einhugur
er um málið í borgarstjórn, enda
hafa allir flokkar komið að skipu-
lagsvinnunni.
Nýja aðalskipulagið er það
fyrsta í sögu Reykjavíkurborgar
sem er unnið í sátt allra flokka.
„Á vinnslutímanum hafa verið
mjög margir meirihlutar eins og
fólk veit, margir borgarstjórar og
margir formenn skipulagsráðs,
svo það hafa mjög margir komið
að þessu,“ segir Dagur. „Alltaf
hefur þetta haldið sjó og kúrsinn
verið sá sami. Þetta aðalskipulag
hefur að miklu leyti verið unnið
undir forystu Sjálfstæðisflokksins,
það var byrjað á þessu árið 2006.
Allir flokkar hafa komið að þessu
og þrír flokkar hafa stýrt þessu,“
segir Gísli Marteinn Baldursson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins. „Þegar Hanna Birna Krist-
jánsdóttir hætti að stýra þessu og
Svandís Svavarsdóttir tók við varð
engin stefnubreyting, það er auðvi-
tað mjög athyglisvert.“ Bæði Gísli
Marteinn og Sóley Tómasdóttir,
oddviti Vinstri grænna, kynntu
málið á fundi með almenningi í
gær.
Gísli Marteinn og Dagur eru
sammála um að með þessari
aðferð hafi orðið til betra og vand-
aðra skipulag.
„Að minnsta kosti er þetta eins
vandlega unnið og nokkuð aðal-
skipulag hefur verið í Reykjavík
og kannski ekkert vanþörf á. Það
hefur ýmislegt farið öðruvísi en
fólk ætlaði og hér er verið að reyna
að læra af ýmsu sem fór úrskeið-
is á árunum fyrir hrun. Þá sáum
við gríðarlega mikil plön um upp-
byggingu sem aldrei varð,“ segir
Dagur. Nú sé hins vegar reynt að
sníða stakk eftir vexti.
„Eins og síðasta ríkisstjórn
brenndi sig á með stjórnarskrár-
breytingar er þannig með svona
stór mál að það er farsælast að
reyna að fá alla að borðinu og
vinna í sátt, jafnvel þótt allir þurfi
að gefa aðeins eftir,“ segir Gísli.
Haldnir verða aukafundir í
bæði umhverfis- og skipulagsráði
og borgarráði á mánudag til þess
að hægt verði að láta borgarstjórn
afgreiða málið á fundi sínum á
þriðjudag.
thorunn@frettabladid.is
Aðalskipulag klárað
í sátt í næstu viku
Nýtt aðalskipulag fer fyrir borgarstjórn og í auglýsingu í næstu viku. Í fyrsta skipti
sem allir flokkar kynna nýtt skipulag í sátt. Formaður borgarráðs segir ekki van-
þörf á því að vinna skipulag vandlega og að reynt sé að læra af fyrri mistökum.
Lögð er áhersla á það í nýja skipulaginu að þétta byggðina. Engin ný
úthverfi eru á dagskránni og 90 prósent allra nýrra íbúða rísa innan nú-
verandi borgarmarka. „Það er ekki bara mikilvægt skipulagsmál heldur líka
umhverfismál og kjaramál, því samgöngukostnaður kemur næst á eftir
húsnæðiskostnaði og töluvert á undan matarkostnaði hjá venjulegri fjöl-
skyldu,“ segir Dagur.
Gísli Marteinn leggur áherslu á samspil þéttingar byggðar og sam-
gangna. „Við erum búin að láta gera fullt af rannsóknum sem sýna að
í þéttari byggð ferðast fólk frekar gangandi, hjólandi eða í strætó og í
þéttari byggð er meiri hverfisþjónusta þannig að hverfin eru sjálfbærari.
Það eru meiri líkur á að þú hafir kaupmann á horninu og þjónustu og
verslanir.“
Þétting byggðar er líka kjaramál
DAGUR B.
EGGERTSSON
GÍSLI MARTEINN
BALDURSSON
172
Reykvíkingar bjuggu á
hverjum hektara árið 1940
28
Reykvíkingar bjuggu á
hverjum hektara árið 2000
KÓPAVOGUR Guðríður Arnardótt-
ir, fulltrúi Samfylkingar í fram-
kvæmdaráði Kópavogs, gagnrýnir
að útboð vegna endurbóta á hress-
ingarhælinu í bænum sé ekki opið
heldur sé efnt til lokaðs útboðs
meðal sex valinna verktaka.
„Mjög óskýrar forsendur eru
fyrir því að leitað sé til þröngs
hóps verktaka og ekki liggur fyrir
hvaða aðilum verður boðið að taka
þátt í verkinu,“ bókaði Guðríður.
Gunnar I. Birgisson úr Sjálf-
stæðisflokki og Ómar Stefánsson
úr Framsóknarflokki bókuðu þá að
verkið væri mjög sérhæft og því
eðlilegt að það færi í lokað útboð.
„Sé verkið sérhæft er ekkert því
til fyrirstöðu að setja um það
ramma í opnu útboði,“ taldi Guð-
ríður hins vegar.
Endurnýja á glugga, útihurðir og
þak auk múrviðgerða og málunar
utanhúss. Það var Kvenfélagið
Hringurinn sem stóð fyrir bygg-
ingu Hressingarhælisins sem var
tekið í notkun árið 1926. Húsið er
friðað. - gar
Fyrirhugaðar endurbætur á friðuðu Hressingarhæli Kvenfélagsins Hringsins:
Lokað útboð vegna sérhæfingar
HRESSINGARHÆLIÐ Ýmsar endur-
bætur standa fyrir dyrum á Hressingar-
hælinu sem menntamálaráðherra frið-
aði í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Save the Children á Íslandi
ORKUMÁL Alcoa, móðurfélag
Fjarðaáls, hefur brugðist við
lækkandi álverði á heimsmarkaði
og erfiðri fjárhagsstöðu með því
að draga verulega úr framleiðslu
sinni.
Eins og kunnugt er af fréttum
hefur matsfyrirtækið Moody‘s
lækkað lánshæfiseinkunn Alcoa
niður í ruslflokk Skuldir Alcoa
nema 8,6 milljörðum dollara eða
ríflega 1.000 milljörðum króna.
Frekari lækkun á lánshæfisein-
kunninni er talin ólíkleg. - hmp
Brugðist við lækkandi verði:
Alcoa dregur
úr framleiðslu
SVÍÞJÓÐ Meira en helmingur
kennara í Svíþjóð hefur fengið
hótanir frá foreldrum. Þetta eru
niðurstöður nýrrar könnunar á
vegum sænska ríkisútvarpsins.
Formaður sænska kennara-
sambandsins, Bo Jansson, segir
það algjörlega óásættanlegt að
foreldrar skuli hóta kennurum
ofbeldi og að þeir skuli jafnvel
beita ofbeldi.
Samkvæmt vinnustaðakönnun
frá 2011 sögðu 16 prósent kenn-
ara að þeim hefði verið hótað. - ibs
Ný könnun í Svíþjóð:
Yfir helmingi
kennara hótað