Fréttablaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 12
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
DÓMSMÁL Lýður Guðmundsson,
fyrrverandi stjórnarformaður
Exista, var í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær fundinn sekur um
brot á hlutafélagalögum vegna
hlutafjáraukningar í félaginu í
desember 2008. Lýður og Bjarn-
freður Ólafsson hæstaréttarlög-
maður voru hins vegar sýknaðir
af ákæru um að skýra vísvitandi
rangt frá gjörningnum í tilkynn-
ingu til Fyrirtækjaskrár.
Refsiramminn í málum af
þessu tagi er allt að tveggja ára
fangelsi og saksóknari hafði
krafist átján mánaða fangelsis.
Dómarinn í málinu, Arngrímur
Ísberg, taldi hins vegar tveggja
milljóna króna sekt hæfilega refs-
ingu.
Málið snýst um hlutafjáraukn-
ingu í Exista upp á fimmtíu millj-
arða króna að nafnvirði, en fyrir
þann hlut greiddi BBR ehf, félag
í eigu Lýðs og Ágústs bróður
hans sem voru stærstu eigendur
Exista, andvirði eins milljarðs
króna í formi undirfélags BBR
að nafni Kvakkur.
Sagði saksóknari við aðalmeð-
ferð málsins að eini tilgangurinn
með þessari fléttu hefði verið að
tryggja bræðrunum, sem oftast
eru kenndir við Bakkavör, áfram-
haldandi yfirráð yfir félaginu, en
Nýja Kaupþing hafði áður opin-
berað áform um að taka félagið
yfir.
Dómurinn kemst að þeirri nið-
urstöðu að Lýður hafi, sem stjórn-
arformaður BBR, brotið vísvit-
andi gegn ákvæðum hlutafjárlaga
með því að greiða Exista minna
en nafnverð fyrir hlutinn.
Í seinni ákæruliðnum, var ekki
talið sannað að Lýður hefði komið
að fyrrnefndri tilkynningu.
Bjarnfreður bar hins vegar fyrir
dómi að þó að hann hefði haft
efasemdir um að kaupin stæð-
ust, hefði tilkynningin verið rétt
þar sem stjórn Exista hefði sam-
þykkt gjörninginn. Dómurinn tók
undir það sjónarmið og voru þeir
því báðir sýknaðir.
Gestur Jónsson, verjandi Lýðs,
vildi ekki tjá sig um dóminn, en
svaraði því þó til að ekki hefði
verið ákveðið hvort dómnum
yrði áfrýjað. Þorsteinn Einars-
son, verjandi Bjarnfreðs, fagn-
ar hins vegar niðurstöðunni sem
er afdráttalaus og skýr að hans
mati.
„Það var engin ástæða til að
ákæra minn umbjóðanda. Hann
sætti rannsókn og var með stöðu
grunaðs manns í þrjú ár að
ástæðulausu. Ég hef áhyggjur af
því að menn skuli fara með vald
sitt eins og gert er í þessu máli.“
thorgils@frettabladid.is
Exista-fléttan
➜ Eigendur
Lýður og Ágúst Guðmundssynir
Exista
BBR ehf.
Kvakkur ehf.
1 milljarður
➜ Stærstu eigendur
Lýður og Ágúst Guðmundssynir
50 milljarða hlutabréfa-aukning
Lýður sektaður fyrir 50
milljarða Exista-fléttu
Lýður Guðmundsson var í gær sakfelldur í héraðsdómi fyrir þátt sinn í hlutafjáraukningu Exista. Hann og Bjarn-
freður Ólafsson voru hins vegar sýknaðir af ákærum um vísvitandi blekkingar með tilkynningu um kaupin.
Athygli vakti að í niðurstöðu héraðsdóms er Lýði gerður hegningarauki
fyrir að hafa verið sektaður fyrir umferðarlagabrot árið 2010. Heimildir
Fréttablaðsins herma að þarna hafi verið um að ræða hraðakstur.
Helmingur málsvarnarkostnaðar Lýðs og allur málsvarnarkostnaður
Bjarnfreðs fellur á ríkissjóð, um 8,5 milljónir króna samtals.
Hegningarauki fyrir umferðarlagabrot
Tilboð 28.900-
Fullt verð 57.800-
SKIPULAGSMÁL „Það er ekki tak-
markalaust svigrúm til að birta
teikningar,“ segir Þórður Sveins-
son, lögfræðingur hjá Pers-
ónuvernd, um birtingu Reykja-
víkurborgar á um 130 þúsund
uppdráttum af byggingum í borg-
inni.
„Þetta er sparnaður fyrir alla
og stórt skref fram á við,“ segir
Einar Þórðarson, verkefnastjóri
nýja vefsins. Hingað til hafa afrit
af teikningunum aðeins verið
aðgengileg í afgreiðslu þjónustu-
vers Reykjavíkurborgar.
Undirbúningur að vefnum
hefur staðið yfir í nokkur ár. Sum
önnur sveitarfélög hafa þegar
sett slíkar teikningar á stafrænt
form, meðal annars Kópavogur
og Hafnarfjörður.
„Við höfum fundið fyrir mik-
illi ánægju með vefinn. Fyrir-
komulagið sparar til dæmis fast-
eignasölum, arkitektum og fólki
í íbúðaleit mikla vinnu,“ segir
Einar.
Þórður Sveinsson, sem er stað-
gengill forstjóra Persónuvernd-
ar, segir hins vegar að birting og
afhending teikninganna kunni að
vera í ósamræmi við upplýsinga-
lög, til að mynda vegna örygg-
issjónarmiða. „Það er ákvæði
í upplýsingalögum sem leggur
bann við birtingu upplýsinga sem
geta verið viðkvæmar af ýmsum
ástæðum,“ segir hann.
Teikningasafnið nær til flestra
bygginga í borginni, að undan-
skildum sendiráðum erlendra
ríkja og byggingum Alþingis af
öryggisástæðum. Húseigendur
geta óskað eftir því að teikningar
af húsum þeirra séu fjarlægðar
úr gagnagrunninum. -þþo
Efast um vef með 130 þúsund húsateikningum:
Lögin setja takmörk
á birtingu teikninga
REYKJAVÍK Teikningar húsanna í bænum eru nú aðgengilegar á netinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
JAFNRÉTTISMÁL Stjórnendur
Facebook Inc. segja að þeim hafi
ekki tekist sem skyldi að koma
í veg fyrir það sem má flokka
sem hatursfulla og fordómafulla
umræðu og að auglýsendur sumir
hverjir hafi dregið auglýsingar
sínar til baka vegna þessa. Í til-
kynningu á þriðjudag lýsa þeir
þessu sem vandamáli og að þeim
hafi ekki tekist að fjarlægja síður
sem innihalda móðgandi efni eins
og þeir ætluðu, svo sem síður
sem innihalda kvenfyrirlitningu.
Reuters greinir frá.
Í síðustu viku birti hópur sem
kallar sig Women, Action & the
Media opið bréf á Facebook þar
sem fyrirtækið var hvatt til að
bregðast við síðum sem gera
lítið úr konum og/eða hefja upp
ofbeldi gegn þeim. Jafnframt var
skorað á Facebook-notendur að
tilkynna fyrirtækjum um það ef
auglýsingar þeirra birtust nálægt
slíkum síðum. - jbg
Hatursfull umræða á netinu:
Facebook í
vandræðum
FACEBOOK Stjórnendur Facebook
Inc. segja að þeim hafi ekki tekist sem
skyldi að koma í veg fyrir það sem má
flokka sem hatursfulla og fordómafulla
umræðu.