Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.05.2013, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 31.05.2013, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 31. maí 2013 | SKOÐUN | 29 „Í miðri Evrópu hafa menn gert með sér samsæri,“ segir í ljóðinu „Samsæris- mennirnir“ eftir argentíska skáldið Jorge Luis Borges. Samsærismennirnir eru af öllu mögulegu tagi en hafa sæst á eitt: „Þeir hafa tekið þá furðulegu ákvörðun að vera skynsamir.“ Menntun er furðulegt samsæri um furðulega ákvörðun, hún er sam- komuleg fjölda fólks um að ástunda skynsemi. Samfélagið setur á fót skóla svo að börn geti lært að vera skynsöm, orðið góðir, þrosk- aðir, víðsýnir og heilsteyptir ein- staklingar sem taka ábyrgan þátt í samfélaginu. Til þess eru ráðnir kennarar sem hafa til þess bæra menntun. Að vera barnakennari er merkilegt starf sem fylgir merkileg viðurkenning: Við, þetta samfélag, treystum þessu fólki fyrir börnun- um okkar og ekki öðrum. Ég nefni þetta vegna þess að ég er ósáttur við að íslenskir skólar hafa leyft ofstopafólki að heimsækja skólana til að þylja upp boðskap sem í mörg- um meginatriðum stríðir gegn heil- brigðri skynsemi, fólki sem hefur enga kennaramenntun og ekkert til- kall til þess að njóta þess trausts að uppfræða börn. Ekki kynnt sér málflutninginn Ég er að tala um Blátt áfram, einkarekin samtök um forvarn- ir gegn kynferðisofbeldi gegn börnum. Vegur Blátt áfram hefur vaxið mjög og sjónvarpsauglýsing- ar samtakanna hafa líklega ekki farið framhjá neinum. Hins vegar ímynda ég mér að fólk hafi almennt ekki kynnt sér málflutninginn sér- lega vel. Þegar farið er á Facebook- síðu samtakanna blasir við mynd af höfuðlausri konu með slag- orðinu: „Þú treystir henni en gæti verið að barnið þitt þekki hana betur en þú?“ Gott og vel. Höfuð- lausa konan gæti vissulega haft illt í hyggju. En hvar nemur sú hugsun staðar að gruna hverja manneskju um græsku? Ef marka má röð „Ábendinga“ á Face- book-síðu Blátt áfram á hún sér lítil takmörk. Ekki er laust við að hrollur fari um hvern sem hefur séð Jagten eftir Thomas Winterberg við þenn- an lestur: Ábendingar Ábending: „Ef þú þarft að fá pöss- un fyrir börnin, vertu búin að baða þau og klæða í náttföt fyrir svefn- inn [svo!] áður en hann/hún mætir.“ Stöldrum við þetta heilræði. Getur verið að undir niðri liggi kyndug hugmynd um að það sé sök foreldr- anna ef barnfóstra misnotar barn? Ábending: „Þegar þú ert að skoða leikskóla fyrir barnið þitt, mundu að spyrjast fyrir um hvaða reglur gilda um bleyjuskipti. Aðstæður ættu að vera þannig að fleiri en einn fullorðinn sé viðstaddur eða geti fylgst með yfir daginn.“ Afsak- ið, en er verið að biðja fólk um að vera hreint út sagt frávita? Spurn- ingar sem byggja beinlínis á þeirri hugmynd að hver manneskja sé sek um barnaníð þar til annað kemur í ljós – hvert erum við þá komin? Ábending: „Reyndu að forð- ast að vera einn/ein í bíl með einu barni/unglingi, öðru/öðrum en þínu/þínum eigin.“ Varla gæti nein ábending verið meira uppljóstr- andi um forvarnarstarf á villigöt- um. Hér er beinlínis mælst til þess að einstaklingurinn setji sjálfan sig undir grun, eða geri ráð fyrir grun- semdum hvarvetna. Hvers konar samfélag er verið að skapa þegar samtök með kennivald gefa ráð af þessu tagi í skólum? Ábending: „Ef einhver í þínu nánasta umhverfi er alltaf tilbúin að hjálpa með börnin og býðst oft til þess að fyrrabragði, er eitthvað sem ber að staldra við og athuga.“ Ja, seisei, maður skyldi sannarlega vara sig á hjálpfýsi náungans. Nú er ákveðinn undirtónn í því sem kemur frá Blátt áfram: Þeir sem efast um skilaboðin, aðferð- irnar og hugmyndafræðina eru annaðhvort í afneitun, hylma yfir með barnaníðingum eða eru barna- níðingar sjálfir. Þess háttar mál- flutningur er skýrasta einkennið á kreddum. Rétt er að halda því til haga að ég efast ekki um orð fórnar- lamba barnaníðinga að það er gott að fórnarlömb barnaníðinga hafi samtök á borð við Blátt áfram til að hjálpast að við að takast á við áfall- ið. En það gerir þau ekki að kenn- urum. Ég trúi ekki á þá hugmynda- fræði sem Blátt áfram boðar, það ofsóknaræði sem samtökin vilja að fólk lifi í. Ég trúi ekki á ábendingar sem byggðar eru á ofstæki. Ég trúi ekki þeim sem segjast trúa börnum – en gera það bara þegar það hentar þeirra eigin heimsmynd. Samtökin eiga nákvæmlega ekkert erindi í skóla. Við höfum gert með okkur ofur- lítið samsæri um að vera skynsamar mannverur. Það er furðuleg ákvörð- un. En þegar hún á annað borð hefur verið tekin virðist allt annað svo gersamlega út í hött. Samsærismenn Málfrelsi og skömm Hver er tilgangur þess að skrifa niðrandi athugasemdir við skoð- anir annarra, greinar eða fréttir? Hefur sá sem birtir slík ummæli hugsað út í það áður en hann lætur skoðanir sínar í ljós? Það er sára- einfalt og krefst ekki mikillar umhugsunar að sitja við tölvuskjá og rita hugsanir sínar niður á augabragði. En með því að þrýsta á einn hnapp eru þær orðnar skriflegar og sýnilegar öllum þeim sem kæra sig um að lesa þær, eða þeim sem kæra sig einmitt ekki um að lesa þær. Helsta vandamálið Mér stendur veruleg ógn af tæknivæðingunni og þess- ari öru framþróun á vefnum sem hefur tekið stakkaskipt- um á síðustu árum. Ég fæ hroll þegar ég hugsa til þess hvað framtíðin mun bera í skauti sér. Að mínu mati er eitt helsta vandamálið skortur á aðlög- un almennings að þeim öru breytingum sem eiga sér stað með þróun internetsins. Mikil- vægt er að fólk geri sér grein fyrir afleiðingum þess að birta ummæli sín opinberlega. Það að gaspra einhverju niðrandi út úr sér á kaffistofunni eða í matarboði hjá ömmu er gjör- ólíkt því að láta skoðanir sínar í ljós á netinu. Með því að birta skoðanir sínar á vefnum breyt- ast þær úr munnlegri tjáningu í skriflega. Lítilsvirða málfrelsið Ég á ekki við að fólk eigi ekki að hafa tök á því að birta skoð- anir sínar á netinu. Langt því frá. En það er fyrir löngu komin þörf á að fólk hugsi vandlega um afleiðingar þess sem það skrifar áður en það birtir það. Skoðanir mínar eru mér hjartans mál. Mér þykir vænt um þær skoðanir sem ég hef og sem ég má hafa. Stundum verður mér á og þá get ég skipt um skoðun eða mótað hana. Ég reyni eftir fremsta megni að hafa skoðanir sem særa ekki blygðunarkennd annarra en ef svo er reyni ég að halda þeim út af fyrir mig. Það virðist þó ekki vera algilt. Ég ber virðingu fyrir mál- frelsinu enda er það ómetan- legt. En allar þessar vanhugs- uðu, niðrandi athugasemdir sem birtast víðs vegar á vefn- um stinga mig í hjartað. Þær lítilsvirða málfrelsið og þá baráttu sem lönd víða um heiminn eiga í til að öðlast sama frelsi. MÁLFRELSI Inga María Árnadóttir nemi ➜ Það að gaspra einhverju niðrandi út úr sér á kaffi stof- unni eða í matar- boði hjá ömmu er gjörólíkt því að láta skoðanir sínar í ljós á netinu SAMFÉLAGS- MÁL Hermann Stefánsson rithöfundur %HLuTvErK ,,ViNaRiNs”:  (HEfUr tEkIð áKvörðuN Um að HæTta) UNdIrBúNiNgSþReP < Hefur tekið ákvörðun um að breyta hegðun sinni < Metur kosti þess að breyta hegðun mikilvægari en ókostina < Einstaklingar stoppa stutt á þessu stigi þrIðJa þRep: 800 60 30Fáðu ráðGjöf í síma: ÞArFtU AðStOð vIð að KoMaSt uPp á næsTa þRep? %HLuTvErK ,,ViNaRiNs”:  DaGuR án tóbAkS31. mAí 2013 FJóRðA þrEp: FRaMkVæMdArþrEp < Breytti hegðun sinni fyrir minna en sex mánuðum < Þarf mikið að hafa fyrir hegðunar- breytingunni og áhættan á bakslagi mikil < Metur ávinning með hegðunar- breytingu sinni meiri en kostnaðinn (ER HæTt(Ur) að NoTa tóbAk) VIðHaLdSþReP (HEfUr eKkI NoTað TóBaK í EiNhVeRn tíma) fImMtA ÞrEP: < Ný hegðun orðin stöðug, hefur varað í meira en sex mánuði < Vinnur að því að koma í veg fyrir bakslag < Hugsar lítið um gömlu hegðunina Hrósar, styður og bendir á leiðir til að koma í veg fyrir bakslag. Hrósar fyrir ákvörðunina og býður aðstoð sína og bendir á leiðir sem gagnast við að hætta að nota tóbak. %HLuTvErK ,,ViNaRiNs”:  Hrósar, styður og bendir á hættur í umhverfinu og hvernig hugarástand getur aukið líkur á bakslagi. Hegðunarbreyting gerist í þrepum og lýsa þau ólíkri aðstöðu og viðhorfum og hvað er vænlegast til að hafa jákvæð áhrif á breytinguna. Í hverju þrepi notar hver og einn mismunandi aðferðir við að færa sig yfir á næsta þrep. Tóbakshegðunarþrepin geta nýst þér til að hætta eða til að hjálpa einhverjum að hætta. Lærum á þrepin og lærum að hætta að nota tóbak! dagurantobaks.is HVeRnIg HæTtUm Við Að nOtA TóBak? ➜ Þannig málfl utningur er skýrasta einkennið á kreddum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.