Fréttablaðið - 31.05.2013, Síða 63
KYNNING − AUGLÝSING Golf31. MAÍ 2013 FÖSTUDAGUR 7
„Þó að GKG sé ekki gamall klúbbur, aðeins tæpra 20 ára, hefur átt
sér stað gríðarlega mikil uppbygging á skömmum tíma. „Við erum
með 27 holu golfvöll sem er á góðri leið með að verða sá besti á land-
inu, ágæta æfingaaðstöðu inni og úti og gríðarlega öflugt félags-
starf,“ segir Agnar Már Jónsson, framkvæmda-
stjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.
GKG er annar stærsti golfklúbbur landsins, með
um 2.000 meðlimi. „Markmið okkar er ekki endi-
lega að verða stærst heldur best,“ segir Agnar með
áherslu. Þessu markmiði ætlar GKG að ná með
því að leggja lykiláherslu á barna- og unglinga-
starfið ásamt því að reka öfluga afreksstefnu. „Við
trúum því að með þeim hætti byggjum við upp
þann fjölskylduanda sem er ríkjandi í klúbbnum.
Með starfinu koma foreldrarnir að klúbbnum,
en golfið er einstakt að því leyti að fjölskyldan getur sinnt íþrótt-
inni öll saman,“ segir Agnar og telur að barna- og unglingastarf
GKG sé það öflugasta í golfíþróttinni á landinu. „Við erum með
fleiri krakka en GR og Keilir til samans og það er langt í frá að þeir
klúbbar séu að slá slöku við. Samkeppnin er hörð en íþróttaandinn
svífur yfir vötnum og þrátt fyrir samkeppni vinna klúbbarnir ötul-
lega að því saman að efla golfíþróttina á Íslandi.“
Mikinn mannskap þarf til að sinna vel velli og félagsstarfi. Hjá GKG
eru níu fastráðnir starfsmenn en á sumrin fer starfsmannatalan
upp yfir sextíu. „Flestir vinna við hirðingu og slátt en síðan er fjöldi
leiðbeinenda á sumarnámskeiðum fyrir krakka,“ upplýsir Agnar
og leggur áherslu á að hlúa vel að starfsmönnum. „Til að ná mark-
miðum okkar er nauðsynlegt að vera með einvala starfslið sem
sinnir starfi sínu vel.“
Agnar segir félagið í heildina standa mjög vel. Golfvöllurinn sé
einn sá besti á landinu og öll umgjörð um félagsstarfið mjög góð.
„Framtíðarverkefni okkar verður að byggja upp stærra félagsheim-
ili og efla æfingaaðstöðuna,“ segir hann, en hafnar eru viðræður
við Kópavog og Garðabæ um aðkomu bæjarfélaganna að uppbygg-
ingunni. „Klúbburinn er vel settur fjárhagslega en við munum ekki
fara út í neinar framkvæmdir nema fjáröflun þeirra sé ljós.“
Við viljum verða best
Agnar segir
nauðsynlegt
að byggja
upp
æfingaað-
stöðu GKG.
MYND/GVA
Agnar Már Jónsson
framkvæmdastjóri
GKG.
Markmið okkar er að kynna íþróttina fyrir öllum iðk-endum, hvort sem það eru
börn, fullorðnir eða eldri borgarar,“
segir Úlfar Jónsson, íþróttastjóri
GKG. Þótt biðlisti sé fyrir hinn al-
menna kylfing í golfklúbbinn er eng-
inn biðlisti fyrir börn og unglinga.
„Við tökum alltaf við þeim enda erum
við með langfjöl-
mennasta barna-
o g u n g l i n g a-
starfið af öllum
golf klúbbum
landsins,“ segir
Úlfar.
Golf er heiðurs-
mannaíþrótt og
mörg góð gildi eru
í hávegum höfð. Þau gildi læra krakk-
arnir í GKG. „Golfið hefur því góð
uppeldisleg áhrif. Krakkarnir læra
góða framkomu og tillitssemi. Þá ert
þú þinn eigin dómari í leiknum og
lærir þannig heiðarleika,“ segir Úlfar.
Hann segir golfið einnig ákveðna
forvörn. „Margir krakkar eru hér
allan daginn yfir sumarið, fara á æf-
ingu og eru svo áfram að spila og
æfa sig.“ Þá fá krakkar afar góðan fé-
lagsskap í íþróttinni. „Hér er sterkur
kjarni af krökkum sem nýtur þess að
vera saman.“ Hann bendir einnig á
að golfvöllurinn sé mikilvæg heilsu-
lind og hafi félagslegt gildi fyrir eldri
borgara. „Hér er góður hópur sem
mætir og spilar allan ársins hring,
oft við afar erfiðar aðstæður yfir vet-
urinn.“
Úlfar segir golfið frábært fjöl-
skyldusport og stuðla að aukinni
samveru barna og foreldra. „Við
sjáum oft þrjá ættliði spila saman
golfhring, sem er mjög skemmti-
legt,“ segir Úlfar glaðlega. Hann segir
að barna- og unglingastarfið fjölgi
ekki aðeins ungum spilurum heldur
einnig öðrum. „Áður var það þannig
að foreldrarnir voru í golfi og kynntu
íþróttina fyrir börnum sínum. Nú
hefur þetta oft og tíðum snúist við.
Krakkarnir fara að æfa, til dæmis af
því að vinirnir eru að æfa. Í kjölfarið
fá foreldrarnir áhuga og fylgja börn-
unum í sportið.“
Mót fyrir börnin
Úlfar segir GKG leggja áherslu á að
vera með mót sem henta hverju stigi.
Haldin er barnamótaröð fyrir 12 ára
og yngri sem eru að stíga sín fyrstu
skref í golfinu. „Þá eru brautirnar
styttri og viðráðanlegri og áhersla
lögð á að hafa gaman.“ Í lok sumars
er svo uppskeruhátíð þar sem öll
börn fá viðurkenningu fyrir árang-
urinn.
Einnig er haldin innanfélags-
mótaröð fyrir krakka sem komnir
eru með einhverja forgjöf og aðrir
sem eru komnir enn lengra geta farið
á opin mót.
Ekki treysta sér allir í keppni. Fyrir
hina eru haldnar spilaæfingar. „Þá
eru brautirnar mjög stuttar, 40 til 60
metrar, og holurnar eru stærri fyrir
þau allra yngstu. Þar kennum við
þeim reglurnar og kynnum þau fyrir
íþróttinni,“ segir Úlfar og telur mikil-
vægt að aðrir klúbbar hugi að því að
gera byrjendum kleift að æfa sig án
þess að þeir þvælist fyrir reyndari
spilurum.
Öflugt afreksstarf
Hið góða barna- og unglingastarf
stuðlar að fjölgun afrekskylfinga í
klúbbnum. „Það hefur verið mjög
góður stígandi í öllu afreksstarfi, en
GKG hefur eignast 34 Íslandsmeist-
ara í gegnum tíðina. Í fyrrahaust
eignuðumst við meistara á alþjóða-
vísu þegar Ragnar Már Garðarsson
sigraði á Duke of York-mótinu. Það
mót er aðeins fyrir landsmeistara 17
til 18 ára í heiminum,“ segir Úlfar og
telur að Ragnar Már sé einn af fjöl-
mörgum efnilegum unglingum í
GKG. Þá er ekki hægt að tala um af-
reksstarf GKG án þess að minnast
á Birgi Leif Hafþórsson, sem hefur
verið besti kylfingur Íslendinga og
hefur náð lengst allra á alþjóðlegum
vettvangi.
Golf er fjölskyldusport
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, skilgreinir sig sem fjölskylduvænan
golfklúbb. Barna- og unglingastarfið er enda afar öflugt, en síðasta sumar voru
hátt í 1.000 börn og unglingar sem æfðu og spiluðu golf hjá GKG yfir sumarið.
Andrés prins, verndari Duke of York-mótsins, afhendir Ragnari Má verðlaun fyrir fyrsta
sæti á mótinu.
Barna- og unglingastarfið í GKG er afar öflugt.
Úlfar Jónsson,
íþróttastjóri GKG.
Golfvöllur GKG hefur stækkað og þróast mikið frá því að klúbburinn var
stofnaður árið 1994. Til ársins 1996 voru einungis níu holur til afnota
fyrir félagsmenn en það ár voru teknar í notkun níu holur til viðbótar og
var þá völlurinn orðinn 18 holur. „Enn frekari endurbætur voru gerðar á
vellinum 2002 og árið 2007 var Kópavogshluti vallarins tekinn í notkun
og bættust þá níu holur við,“ segir Guðmundur Árni Gunnars son, sem
hefur starfað sem vallarstjóri GKG síðan 2001. GKG
er þannig eini klúbburinn á landinu sem er full gildur
27 holu völlur.
Völlurinn liggur bæði í Kópavogi og Garðabæ eins
og nafn klúbbsins gefur til kynna. Fyrri völlurinn
Garðabæjarmegin var hannaður af Svíanum Jan Se-
derholm en Andrés Guðmundsson hannaði síðustu
níu holurnar.
En hvað einkennir völlinn? „Hluti af honum er í
Vetrarmýri í landi Vífilsstaða og þar er nokkuð um
tjarnir og vötn. Kópavogsmegin er hann byggður í mel og því má segja
að þessi tveir hlutar vallarins séu eins og svart og hvítt,“ segir Guð-
mundur og bendir á að völlurinn sé afar fjölbreyttur og skemmtilegur.
Þá sé hann talinn sá næsterfiðasti á landinu.
Ekki er von á að völlurinn stækki mikið í framtíðinni enda lítið bygg-
ingarland til slíks. Hins vegar er völlurinn í stöðugri þróun. „Í vetur
vorum við að klára malbikun á göngustígum og svo erum við að breyta
níu holu vellinum, byggja nýja flöt og slíkt,“ segir Guðmundur, en mikil
vinna fer í viðhald á svo stórum velli. „Í sumar verðum við í kringum 30
sem vinnum á vellinum við að slá, tyrfa og lagfæra.“
Næsta stóra verkefnið við völlinn verður að taka æfingasvæði hans í
gegn, endurnýja og byggja betri aðstöðu fyrir félagsmenn og iðk endur
golfíþróttarinnar.
Völlurinn í stöðugri þróun
Golfvöllurinn er mikilvæg heilsulind og hefur félagslegt gildi fyrir eldri borgara. „Hér er góður hópur sem mætir og spilar allan ársins
hring, oft við afar erfiðar aðstæður yfir veturinn,” segir Úlfar. MYND/GVA
Guðmundur
Árni Gunnarsson
vallarstjóri.