Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.05.2013, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 31.05.2013, Qupperneq 64
KYNNING − AUGLÝSINGGolf FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 20138 Sautján þúsund kylfingar eru skráðir í golfklúbba hér á landi og eru þeir ef laust mun f leiri sem spila golf að einhverju marki. Íslenskir golfarar virðast hrifnir af Ecco-golfskóm. Í fyrra seldum við fjögur þúsund pör, sem þykir mjög gott, og erum við langstærstir á markaðnum,“ segir Adolf Óskarsson hjá Ecco- umboðinu. Árið 2010 setti Ecco hybrid-golfskó á markað. Þeir slógu rækilega í gegn og hafa aðrir framleiðendur fylgt á eftir. Hefðbundnir golfskór eru búnir skiptanlegum tökkum sem er hægt að smella af. „Hy- brid-skórnir eru með föstum tökkum – um hundrað talsins undir hverjum skó. Takkarnir gefa frábært grip en skórnir eru auk þess mun sportlegri en fyrri golfskór og er jafnvel hægt að nota þá hversdags,“ segir Adolf. Ecco er danskt merki og fram- leiðir eina milljón golfskóa á ári. Fyrirtækið fagnar fimmtíu ára afmæli í ár og hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi. Framleiðslan fer alfarið fram innan fyrirtækisins og hafa eig- endur því fullkomna yfirsýn yfir allt ferlið. Fyrirtækið hefur það að markmiði að verða best en ekki stærst. „Það er því ekki verið að keppa við framleið- endu r sem bjóða ó d ý r a g o l f s k ó . Ecco-skórnir eru úr gæðaleðri og er sólinn soðinn á, sem kemur í veg fyrir að hann losni og skórnir leki,“ segir Adolf. Hann segir fólk ekki eiga að spara við sig í golfskóm. „Kylf- ingur gengur um tíu kílómetra ef hann fer átján holur og því er nauðsynlegt að vera í góðum skóm.“ Hybrid-skórnir hafa sem fyrr segir slegið í gegn. Frá því 2010 þegar þeir komu fyrst á markað hefur orðið gríðarleg aukning í sölu á þeim; aukningin frá 2010 til 2011 var 182% og frá 2011 til 2012 var hún 194%. „Árið 2011 átti Ecco 90 prósent af öllum hy- brid-skóm en í dag er hlutdeild Ecco 55,2 prósent. Samt sem áður er Ecco að auka söluna um 46% á milli ára.“ Gæðin ofar öllu Ecco setti byltingarkennda hybrid-golfskó á markað árið 2010. Skemmst er frá því að segja að þeir slógu í gegn og hafa aðrir framleiðendur fylgt á eftir. Kylfingar leggja margir hverjir mikið upp úr því að vera snyrtilegir til fara. Hér má sjá Ecco-hybrid í sparibúningi. Ecco hybrid-golfskórnir eru mun sportlegri en fyrri golfskór og er jafnvel hægt að ganga í þeim hversdags. MYND/GVA Golfarinn Haukur Dór Kjartansson og kona hans Sunna Dís Klem- ensdóttir opnuðu fyrir stuttu nýja golfverslun, Eagle, í miðbæ Ak- ureyrar, en þar hefur ekki verið sérverslun fyrir golfara lengi. Loksins er komin almennileg golfverslun á Akureyri, en við- tökurnar hafa verið mjög góðar. „Margir eru búnir að sakna þess að hafa ekki slíka verslun,“ segir Haukur. „ Mikill golfáhugi er á Akur- eyri og nágrenni en hingað til hafa menn verið að kaupa það sem þá vantar á höfuðborgar- svæðinu eða netinu. Nú geta þeir komið hingað og fengið öll toppmerkin á einum stað.“ Eagle er með öll stærstu og þekktustu merkin í fatnaði, skóm og kylfum. „Við erum með allt sem golfarinn þarfnast. Þeir sem koma hingað inn eru lengi að skoða, enda margt forvitnilegt og mikið úrval bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir.“ Þar sem Haukur er sjálfur golfari veit hann hvað hentar hverjum og einum. Hann veitir ráðgjöf í versluninni, auk þess sem Eagle er í samstarfi við golfkennara GA, Brian Jenssen. Eagle er í Strandgötu 9 og síminn er 440 6800. Öll toppmerkin á Akureyri Það er búið að hleypa inn á Norðurvöllinn, inn á vetrar-flatir, en veturinn var okkur afar erfiður hér á Norðurlandinu. Það byrjaði að snjóa 11. september og strax í nóvember myndaðist klaki á flötum,“ segir Heimir Jóhannsson, umsjónarmaður Jaðarsvallar á Akur- eyri. „Flatirnar eru mjög illa farnar en þó ekki eins illa og 2011, þá var ástandið verra. Við náðum tvisvar í gegnum klakann í vetur og eins endur sáðum við í flatirnar í haust. Sú spírun er að koma fram núna. Við sjáum mun dag frá degi,“ segir Heimir og reiknar með að búið verði að opna allan völlinn stuttu eftir 17. júní. Hann segir allan snjó far- inn af vellinum en að hann sé mjög blautur. Þá liggja fyrir betrumbætur á vellinum í sumar. „Þetta átti að vera síðasta fram- kvæmdaárið, en undanfarin ár höfum við staðið í mikilli vinnu við völlinn. Í vetur voru opnuð nokkur sár sem þarf að tyrfa. Við fáum þökur á næstu dögum og þá verður farið í að koma vellinum sem hrað- ast í gott ástand. Það er mikil vinna fram undan en völlurinn verður í fínu standi í sumar. Við erum miklu bjart- sýnni núna en við vorum fyrr í vetur.“ Sjómannadagsmóti frestað á Seyðisfirði „Flatirnar eru illa farnar eftir vetur- inn og ekki tilbúnar,“ segir Unnar Jósepsson, formaður mótanefndar á Seyðisfirði, en þar verður völlurinn ekki opnaður fyrr en um miðjan júní. „Yfirleitt höfum við opnað völlinn í maí og haldið fyrsta mótið í kringum Sjómannadaginn. Við höfum frestað því fram í miðjan júní. Þetta er þó allt í áttina og það er mikil gróska í flöt- unum.“ Hann segir golfara fyrir austan eðlilega vera orðna óþreyjufulla eftir því að komast í golf, en um fimmtíu manns stunda golfvöllinn að stað- aldri. Byrjað að slá bolta á Egilsstöðum Á Egilsstöðum er búið að opna völlinn fyrir félagsmenn. For maður vallar- nefndar, Guttormur Kristmannsson, segir völlinn þó talsvert kalinn. „Oft höfum við getað byrjað í lok apríl, byrjun maí en flatirnar eru varla orðnar grænar núna. Það eru tölu- verðir kalblettir á vellinum og við þurfum að fara í einhverjar lagfæring- ar á honum í sumar. Það er ekki alveg komið í ljós hvað þarf að gera. Vorið hefur verið mjög slæmt en menn eru samt aðeins byrjaðir að slá bolta.“ Aðeins byrjaðir að slá bolta Snjóþungt hefur verið í vetur á Norður- og Austurlandi. Golfvellirnir koma misvel undan vetrinum og fresta hefur þurft mótum vegna ástandsins. Umsjónarmenn golfvalla eru þó nokkuð bjartsýnir á að vellirnir verði komnir í gott lag í sumar. Jaðarsvöllur á Akureyri hefur verið opnaður að hluta og eins á Egilsstöðum. Á Seyðisfirði er stefnt á að opna golfvöllinn um miðjan júní en fresta þurfti fyrsta móti sumarsins þar. Heimir Jóhannesson, umsjónarmaður Jaðarsvallar á Akureyri, segir ástandið á vellinum fara batnandi dag frá degi. Hann vonast til að hægt verði að opna allan völlinn stuttu eftir 17. júní. MYND/ÚR EINKASAFNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.