Fréttablaðið - 31.05.2013, Side 69
HELGIN | FÓLK | 3
■ GOTT
Hér kemur léttur, hollur og
góður sumarréttur þar sem
útigrillið kemur við sögu. Í
réttinn þarf tortillakökur,
kjúklingabita, mangó og
avókadó. Uppskriftin miðast
við fjóra.
4 grillaðar kjúklingabringur,
skornar í lengjur
■ 4 tortillakökur
■ salt og pipar
■ olía til að pensla
■ 1 mangó
■ 2 lárperur (avókadó)
■ 1 rauðlaukur
■ jöklasalat
SALATSÓSA
■ 1 dós hrein jógúrt
■ 2-4 msk. sæt chili-sósa
eftir smekk
Gott er að setja bringurnar
í grillsósu í smá stund áður
en þær eru grillaðar og
krydda þær með salti og
pipar. Skerið mangó og lár-
peru til langs og takið burt
steina. Skerið rauðlaukinn í
þunnar sneiðar.
Grillið kjötið í sex mínútur á
hvorri hlið. Síðan er mangó
og lárpera sett á grillið í um
það bil 3 mínútur, munið að
snúa við á grilltímanum.
Blandið jógúrt og chili-sósu
saman.
Skerið bringurnar í lengjur
og setjið allt sem á að fara
á tortillurnar á stórt fat.
Grillið hveitikökurnar á báð-
um hliðum og síðan getur
hver og einn fyllt þær með
kjúklingi og meðlæti. Hægt
er að nota aðrar kjöt- eða
ávaxtategundir eftir smekk.
Einnig er gott að setja ost í
vefjurnar.
GRILLAÐAR
TORTILLUR
Í nýrri bók Rósu
Guðbjartsdóttur,
Partí réttum, er
frábær uppskrift að
laxaídýfu. „Reyktur
lax verður oft ofan
á þegar von er á
mörgum gestum,“
segir Rósa, „enda hef
ég ekki enn hitt þann
sem ekki líkar hann.
Guðdómlegir litir og
frísklegt bragð eru
aðalsmerki þessa
partíréttar sem eng-
inn fær staðist.“
300 g reyktur lax eða
silungur
1 msk. laukur, sax-
aður (gjarnan ska lot-
eða graslaukur)
2 msk. sítrónu- eða
límónusafi
2-4 msk. grísk jógúrt
eða sýrður rjómi
salt og sítrónupipar,
að smekk
ferskt dill, að smekk
Setjið laxinn í bitum í
matvinnsluvél ásamt
lauknum og maukið
vel saman. Bætið
sítrónusafa út í og
síðan grískri jógúrt.
Kryddið og smakkið
til með salti og sí-
trónupipar. Athugið
að magnið af grísku
jógúrtunni eða sýrða
rjómanum fer eftir
því hve þykka þið
viljið hafa ídýfuna og
er það smekksatriði.
Blandið fersku dilli
saman við.
Berið fram með
niðurskornu fersku
grænmeti, kexi eða
ristuðu snittubrauði.
LAXAÍDÝFA RÓSU GUÐBJARTS
■ AUÐVELT
Þetta er einföld uppskrift fyrir
grillið en mjög góð. Kjúklinga-
strimlar eru kryddlegnir í til-
búinni satay-sósu í að minnsta
kosti tvær klukkustundir, helst
lengur. Þeir eru þræddir upp á
tréspjót sem hafa legið í vatni.
Grillið kjúklingastrimlana í
þrjár til fjórar mínutur á hvorri
hlið. Dreifið sesamfræjum
yfir. Með þessu er borin fram
chili-sósa sem eins konar ídýfa.
Hrærið saman sætri chili-sósu,
pressuðum hvítlauksrifum,
sojasósu og ólífuolíu.
Það sem þarf:
4 kjúklingabringur, skornar í
hæfilegar lengjur
4 hvítlauksrif
1 dl sæt chili-sósa
2 msk. sojasósa
2 msk. ólífuolía
KJÚKLINGUR
MEÐ CHILLI
Sem 3ja barna móðir, hlaupari /- þríþrauta-
kona og hársnyrtir verð ég að passa vel upp á
líkamann minn. Ég er rétt skriðinn yfir þrítugt,
í líkamlega krefjandi vinnu og var farin að
finna fyrir stirðleikum í liðum, sérstaklega
fingrum og ökkla sem hefði getað komið
niður á starfi og íþróttum. Sú tilfinning var
óþægileg. En var svo heppin að fá ábendingu
frá viðskiptavini um ágæti NutriLenk sem ég
hef notað síðan með frábærum árangri.
Fann árangur fljótt
Ég ákvað að fjárfesta í bæði í Nutrilenk GOLD
og ACTIVE og tók inn samkvæmt leiðbeining-
um og strax á annarri viku var ég farin að
finna gríðarlegan mun. Ökklarnir eru orðnir
miklu betri, minni stirðleiki í fingrum, ég er
ferskari í líkamanum og get stundað mitt
sport án þess að finna fyrir verkjum og
stirðleika.
Nutrilenk verður tekið með morgunmatnum
mínum um ókomin ár svo ég geti haldið
áfram að lifa lífinu verkjalaus, sinnt börnunum
mínum, starfinu og bætt mig í sportinu
mínu..
Nutrilenk er fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
NUTRILENK Active
NUTRILENK Gold
NUTRILENK
- hollráð við liðkvillum. Náttúrleg bætiefni fyrir liðina
NUTRILENK Active
NUTRILENK Gold Liðheilsan skiptir mig miklu máli
Ebba Særún Brynjarsdóttir