Fréttablaðið - 31.05.2013, Page 82
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 46
Yfirdýnur gera
rúmið þitt notalegra
Kaldasvampur - þrýstijöfn-
unarsvampur - latex
Eggjabakkadýnur
mýkja og verma rúmið
þykktir 4-6 cm. Tilvaldar í sumar-
húsið, ferðabílinn og tjaldvagninn
Dýnur og púðar
sniðnir eftir máli eða sniðum -
með eða án áklæðis - mikið
úrval áklæða
Mikið úrval af
svefnstólum
og sófum í stöðluðum stærðum
eða skv. máli
Svampdýnur og
pokagormadýnur framleiddar
eftir máli og sniðum - margir
stífleikar og mikið úrval áklæða
Stærðir:
80 x 200 cm
90 x 200 cm
100 x 200 cm
120 x 200 cm
140 x 200 cm
160 x 200 cm
180 x 200 cm
Trommarinn Magnús Ingi Svein-
björnsson, betur þekktur sem
Maggi trymbill, ætlar að kíkja á
Faktorý í kvöld og hlýða þar á vin
sinn Valdimar. „Ég myndi segja
að ég væri meira en aðdáandi, við
Valdimar erum ágætis félagar
líka. Ég varð þess heiðurs aðnjót-
andi að fá að ferðast með honum til
Færeyja og víðar þegar við vorum
saman í skólalúðrasveitinni í
gamla daga svo við höfum upplifað
ýmislegt saman. Svo þekki ég Þor-
vald trommara líka, við trommar-
arnir þekkjumst auðvitað allir. Við
eigum okkar leynigrúppu á
Facebook. Þú kemst ekk-
ert inn í hana nema þú
kunnir að þyrla,“ segir
hann og hlær. Hann er
mjög spenntur að kíkja á
félaga sína í kvöld þar
sem hann hefur
ekki náð að fara á
tónleika með þeim í langan tíma.
„Ég hlusta samt mikið á þá og nýja
platan er búin að vera föst á fón-
inum hjá mér í dágóðan tíma núna
en hún er alveg rosalega góð. Svo
er ég ekkert síður hrifinn af þeirri
gömlu,“ segir hann.
Kíkir á gamla félaga á Faktorý
Maggi trymbill ætlar að skella sér á tónleika með hljómsveitinni Valdimar.
LEYNIGRÚPPA TROMMARA Maggi
segir engan komast í leynigrúppu
trommara á Facebook nema
hann kunni að þyrla.
„Þetta er allt gert fyrir Landsbjörg.
Við erum bara að fara að skemmta okkur
og eiga frábært sumarfrí,“ segir Jón Þór
Þorleifsson, túrpabbi hljómsveitarinnar
Áhöfnin á Húna.
Það eru engir nýgræðingar sem
standa að baki hljómsveitinni en hana
skipa Mugison, Jónas Sig, Lára Rún-
ars, Ómar Guðjónsson, Guðni Finnsson
og Arnar Gíslason. „Við erum öll vinir
og við tókum okkur bara saman um að
gera þetta. Þetta er ótrúlega klikkuð og
skemmtileg hugmynd og auðvitað algjör
súpergrúppa,“ segir Jón Þór en sveit-
in var stofnuð sérstaklega til að sigla
hringinn í kringum landið í júlímánuði
og halda tónleika í sextán höfnum. Allur
ágóðinn rennur svo til Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar. „Hvað gerist svo eftir
júlímánuð er alveg óráðið. Það verður
bara að koma í ljós,“ segir Jón Þór.
Fararskjóti sveitarinnar er 50 ára
gamli eikarbáturinn Húni II, en hún
dregur einmitt nafn sitt af bátnum líka.
Jón Þór segir mennina sem fylgja bátn-
um vera frábæran hóp stórskemmtilegra
áhugamanna um að halda honum gang-
andi, svo það verði gaman að verja þess-
um mánuði á sjó með þeim.
Áhöfnin á Húna mun spila lög eftir
Mugison, Jónas, Láru og Ómar en öllum
hefur þeim verið breytt svo hljómsveit-
in flytji þau í sameiningu. „Þetta verður
ekki þannig að hvert þeirra stígur á svið
með sitt lag heldur er þetta bara ein heild
sem gerir hlutina saman. Við erum öll
með gæsahúð á æfingum, þetta kemur
svo vel út,“ segir Jón Þór.
Áhöfnin á Húna kemur fram í fyrsta
skipti í söfnunarþætti fyrir Slysavarnar-
félagið Landsbjörg á RÚV í kvöld. RÚV
verður svo viðloðandi verkefnið áfram
í sumar og fylgir sveitinni eftir. „Það
verða beinar útsendingar frá nokkrum
tónleikum og svo verður fylgst með hópn-
um bæði á viðburðunum og á bátnum
þeirra á milli. Þetta verður heljarinnar
sirkus,“ segir Jón Þór. „Það getur auðvi-
tað ýmislegt gerst í bátnum,“ bætir hann
við dularfullur. tinnaros@frettabladid.is
Súpergrúppa siglir um landið
Hljómsveitin Áhöfnin á Húna spilar til styrktar Slysavarnafélaginu Landsbjörg í sextán höfnum um land allt
ÁHÖFNIN Á HÚNA Guðni Finnsson, Jónas Sig, Lára Rúnars, Mugison,
Ómar Guðjónsson og Arnar Gíslason mynda Áhöfnina á Húna.
Bjartmar Sigurðsson tenór syngur
einsöngslög í Háteigskirkju undir yfir-
skriftinni Síðasta lag fyrir fréttir. Hann
er útskrifaður með mastersgráðu í
óperusöng frá Royal Scottish Academy
of Music and Drama og hefur meðal
annars stigið á svið á Ítalíu, í Skotlandi,
í Danmörku og hér á Íslandi.
FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sýningar
18.00 Guðlaugur Jón Bjarnason (Gulli)
opnar myndlistarsýningu í Samfylking-
arhúsinu í Strandgötu 43, Hafnarfirði.
Sýningin ber heitið Í tilefni sjómanna-
dagsins og tengist menningarhátíðinni
Bjartir dagar sem stendur nú yfir.
Hátíðir
10.00 Menningar- og listahátíð Hafnar-
fjarðar, Bjartir dagar, hefst í dag. Nánari
upplýsingar og dagskrá má finna á
heimasíðunni hafnarfjordur.is.
12.05 Listahátíð í Reykjavík heldur
áfram. Nánari upplýsingar um hátíðina
má finna á heimasíðunni artfest.is.
22.00 Sjómannahelginni verður fagnað
með dagskrá á Akureyri. Nánari upp-
lýsingar má finna á heimasíðunni
visitakureyri.is
Tónlist
12.00 Bjartmar Sigurðsson tenór, Sól-
rún Gunnarsdóttir fiðluleikari og Lilja
Eggertsdóttir píanóleikari flytja sígild
íslensk einsöngslög á hádegistónleikum
í Háteigskirkju. Almennt miðaverð er
kr. 1.000.
22.00 Krakkbot, Dj. flugvél og geim-
skip og Helgi Mortal Kombad koma
fram á tónleikum á Hemma og Valda.
Aðgangur er ókeypis.
23.00 Magnús Einarsson og félagar
skemmta á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakka-
stíg 8.
23.00 Þungarokksveitin DIMMA blæs
til rokkveislu á Gamla Gauknum. Þar
verður nýja platan þeirra, Myrkraverk,
spiluð í heild sinni, ásamt eldra efni.
Sérstakir gestir verða Dead Sea Apple.
23.00 Landslið íslenskra plötusnúða
þeytir skífum á svokölluðu TriAngular
kvöldi á Volta. Þar koma fram BenSol,
CasaNova og Hendrik. Aðgangur er
ókeypis.
23.00 Valdimar spilar á Faktorý.
Aðgangseyrir er kr. 1.500. Dj. Óli Dóri
og Dj Plan B verða einnig þar þetta
kvöld.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.
Það er mikið að gerast í
Hafnarfirði um helgina og
fullt af skemmtilegum við-
burðum. Í kvöld er það árlegi
viðburðurinn Gakktu í bæinn
sem er í aðalhlutverki. Þar
bjóða listamenn fólki heim,
menningarstofnanir iða af
lífi og verslanir í miðbænum
verða með opið til klukkan
22 og með ýmis konar tilboð
og viðburði í gangi. Þeirra
á meðal er umhverfisvæna
lífsstílsverslunin Radísa,
Strandgötu 17.
Slysavarnafélagið Landsbjörg
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur verið starfandi frá árinu 1928. Innan þess eru
starfræktar 33 slysavarnadeildir um land allt sem hafa það að meginmarkmiði að
koma í veg fyrir slys og óhöpp í sínu sveitarfélagi. Þar að auki styður félagið við bakið
á björgunarsveitunum á ýmsan hátt.
Furðuleg raftón-
list verður spiluð á
Hemma og Valda,
í bland við hress-
andi hrylling og
einstaka fallega
laglínu.
FURÐU-
LÖG
Dj. flugvél
og geim-
skip eru
á meðal
þeirra
sem koma
fram.