Fréttablaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 90
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 54
Leikarinn Henry Cavill mun að
öllum líkindum fara með hlut-
verk Napoleons Solo í kvikmynd-
inni Man From U.N.C.L.E. í stað
Toms Cruise. Myndin er byggð á
samnefndum sjónvarpsþáttum
er sýndir voru á árunum 1964 til
1968.
George Clooney átti upphaf-
lega að fara með hlutverk Solos
en varð frá að hverfa vegna bak-
meiðsla. Síðan þá hafa Johnny
Depp, Channing Tatum, Brad-
ley Cooper, Joel Edgerton, Ryan
Gosling og Michael Fassben-
der verið orðaðir við hlutverk-
ið auk Cruise, sem gat ekki tekið
að sér hlutverkið vegna vinnu
sinnar við Mission: Impossible 5.
Man From U.N.C.L.E segir frá
tveimur njósnurum, Napoleon Solo
og Illya Kuryakin, sem starfa hjá
U.N.C.L.E., leynilegri stofnun. Ian
Fleming, skapari James Bond, átti
tillöguna að persónunum en hand-
rit þáttanna var samið af Robert
Towne, Sherman Yellen og Harlan
Ellison. Í seinni tíð hefur Towne
meðal annars skrifað handrit að
myndum á borð við Chinatown og
Mission: Impossible.
Cavill í stað Cruise
Henry Cavill gæti farið með hlutverk Napoleons Solo.
Pörupiltar verða með uppistandið sitt Homo Erectus á leiklistarhátíðinni
Pop Up Art House í leikhúsinu Diana Scenen í Helsinki þriðjudaginn 4.
júní.
Uppistandið verður lokasýningin á leiklistarhátíðinni, sem leikhóp-
urinn Blaue Frau stendur fyrir. Pörupiltarnir Nonni, Dóri og Hemmi
hafa notið vinsælda Þjóðleikhúskjallaranum sl. tvö ár með uppistandi
sínu. Þeir eru með nýtt uppistand í bígerð, Blómin og býflugurnar, sem
verður sýnt hér á landi næsta haust. Alexía Björg Jóhannesdóttir, María
Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir eru konurnar á bak við Pörupilta.
Pörupiltar til Finnlands
Pörupiltar verða með uppistand í fi nnsku leikhúsi.
TIL FINNLANDS Pörupiltar eru á leiðinni til Finnlands.
NÝR SOLO? Henry Cavill gæti farið
með hlutverk Napoleons Solo í stað
Toms Cruise. NORDICPHOTOS/GETTY
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*S
am
kv
æ
m
t p
re
nt
m
ið
lak
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
G
all
up
n
óv
.-s
ep
t.
20
12
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu.
60% landsmanna skoða fjölpóst. Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað!
75% íbúa höfuðborgarsvæðisins lesa Fréttablaðið daglega.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi orn@365.is
Útvegum einnig hagstæð verð í prentun.
Leikkonan Emma Watson fer
með hlutverk í nýrri kvik-
mynd leikstjórans Sofia
Coppola, The Bling Ring.
Leikkonan er um þessar
mundir á ferð og flugi til að
kynna kvikmyndina og í nýju
viðtali sagðist hún halda fjölda
ólíkra dagbóka.
„Ég hef alla tíð verið
heilluð af dagbókum. Ég
á örugglega um tíu dag-
bækur; eina drauma-
dagbók, eina jógadag-
bók, dagbók um fólk
sem ég hef kynnst
eða hitt og leiklistar-
dagbók. Með dagbók-
unum hef ég getað áttað mig
betur á sjálfri mér, margar
af þessum hugsunum eru of
persónulegar til að ég geti
rætt þær við aðra. Með
þessu get ég tæmt hugann
og unnið úr málunum á örugg-
an hátt,“ sagði leikkonan.
Heldur dagbækur
Emma Watson skrifar um vandamál sín í dagbækur.
HELDUR DAG-
BÆKUR Emma
Watson heldur
fjölda ólíkra dag-
bóka.
NORDICPHOTOS/GETTY
Bandaríska rokksveitin Metallica
kemur fram á Hróarskelduhátíð-
inni í sumar. Tilkynnt var um
þetta í dag, og verða tónleikarnir
einu tónleikar sveitarinnar í Evr-
ópu í sumar.
Drengirnir vinna hörðum hönd-
um að nýrri hljóðversplötu, en
fimm ár eru liðin frá því að sú síð-
asta, Death Magnetic, kom út. Þeir
ætla hins vegar að vera svo elsku-
legir að taka sér hlé frá upptökum
til þess að spila fyrir rokkþyrsta
Norðurlandabúa.
Tíu ár eru liðin frá því að sveitin
spilaði síðast á hátíðinni, en hefð
er fyrir því að trommuleikarinn
Lars Ulrich tali dönsku á sviðinu
á Hróarskeldu. Það fer hann létt
með, enda danskur.
Meðal helstu listamanna á hátíð-
inni í ár verða hljómsveitirnar
Kraftwerk, Slipknot, Queens of the
Stone Age, Sigur Rós, Of Monsters
and Men og Kris Kristoffersson.
Metallica á Hróarskeldu
Bandaríska rokksveitin kemur fram á hátíðinni góðu.
TIL DANMERKUR Tónleikar Metallicu
á Hróarskeldu eru einu tónleikar sveit-
arinnar í Evrópu í sumar.
„Engin stétt manna á Íslandi frá land-
námstíð hefur fært meiri fórn en sjó-
menn og fjölskyldur þeirra. Enda er plat-
an tileinkuð þeim,“ segir KK um nýjustu
plötu sína og Magga Eiríks, Úti á sjó.
Hún hefur að geyma sjómannalög frá
seinni hluta síðustu aldar.
„Vinur okkar Magga, sem er skipstjóri
á togara í Vestmannaeyjum, hringdi í
mig og spurði: „Kristján, af hverju gefið
þið Maggi ekki út plötu með sjómanna-
lögum?“ Magga leist bara vel á þetta og
við ákváðum að fara í hljóðver,“ segir
KK.
Hann er sjálfur strandveiðimaður og á
litla trillu sem heitir Æðruleysi. „Margir
eldri Íslendingar hafa verið eitthvað til
sjós. Maggi var til sjós í gamla daga og
feður okkar voru sjómenn. Sjómennsk-
an var það sem allt snerist um hér áður
fyrr, og gerir mikið enn þá.“
KK og Maggi hafa gefið út þrjár vin-
sælar ferðalagaplötur. Spurður hvort
fleiri sjómannaplötur séu á leiðinni hlær
hann og segist ekki búast við því enda
séu þeir Maggi að undirbúa plötu með
eigin efni.
Þeir félagar spila á tónleikunum Óska-
lögum sjómanna í Hörpu á laugardag.
„Ef ég á frí á sjómannadaginn ætla ég að
setja fánann upp og sigla út á hafið. Það
yrði rosalega gaman,“ segir KK. -fb
Tileinka sjómönnum plötuna
Nýjasta plata KK og Magga Eiríks, Úti á sjó, hefur að geyma gömul sjómannalög.
➜ Fyrsta lagið á
plötunni er Á sjó
sem Þorvaldur
Halldórsson söng
fyrst inn á plötu
árið 1965.
GEFA ÚT SJÓMANNAPLÖTU KK og Maggi Eiríks hafa sent frá sér sjómannaplötuna Úti á sjó. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM