Fréttablaðið - 31.05.2013, Síða 96
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 60
Markmenn:
Guðný Jenný Ásmundsdóttir Valur
Florentina Stanciu ÍBV
Dröfn Haraldsdóttir FH
Aðrir leikmenn:
Arna Sif Pálsdóttir Aalborg
Ásta Birna Gunnarsdóttir Fram
Dagný Skúladóttir Valur
Ramune Pekarskyte Levanger
Hanna G. Stefánsdóttir Stjarnan
Hildur Þorgeirsdóttir Blomberg-Lippe
Hrafnhildur Skúladóttir Valur
Jóna Margrét Ragnarsdóttir Stjarnan
Karen Knútsdóttir Blomberg-Lippe
Karólína Lárudóttir Valur
Rakel Dögg Bragadóttir Stjarnan
Rut Jónsdóttir Tvis Holstebro
Steinunn Björnsdóttir Fram
Stella Sigurðardóttir Fram
Þórey R. Stefánsdóttir Tvis Holstebro
Hópurinn
HANDBOLTI Íslenska liðið undirbjó
sig fyrir umspilsleikina gegn
Tékkum með því að spila á sterku
æfingamóti í Svíþjóð. Þar tapaði
liðið öllum þremur leikjum sínum
gegn Svíþjóð, Noregi og Serbíu en
þetta eru allt gríðarlega öflug lið.
Spilamennska íslenska liðsins var
upp og ofan á mótinu.
Íslensku stelpurnar þekkja
ágætlega til tékkneska liðsins og
spiluðu í tvígang gegn þeim í und-
irbúningi fyrir EM. Þá vann Ísland
einn leik og Tékkland einn.
„Ég held að við eigum helmings-
líkur í þessu einvígi. Það er engin
klisja heldur staðreynd. Þetta
eru jöfn lið þó svo að Tékkar eigi
að vera með sterkara lið en við,“
sagði Rakel Dögg Bragadóttir en
hún verður að sjálfsögðu í eldlín-
unni með landsliðinu í Vodafone-
höllinni.
Erum með sterkt lið
„Ég veit alveg hvað býr í okkar
liði. Við erum með gríðarlega
sterkt lið og þegar við spilum
okkar besta leik þá getum við lagt
margar af stærstu þjóðum heims
og það höfum við gert á síðustu
árum.“
Íslenska liðinu gekk illa á síð-
asta Evrópumeistaramóti og var
það smá áfall eftir gott gengi í
talsvert langan tíma. Hafði sú
frammistaða mikil áhrif á sjálfs-
traust liðsins?
„Mér fannst það já. Síðan í des-
ember höfum við verið að vinna í
þessum málum. Við höfum fundað
saman og Viðar Halldórsson hefur
fundað með okkur en hann er
alvanur því að vinna með íþrótta-
fólki í andlegu málunum. Hann er
kominn inn í teymið sem er alveg
nýtt. Hans innkoma hefur haft
góð áhrif og í dag höfum við enga
ástæðu til þess að vera með lítið
sjálfstraust. Mér líður sjálfri vel
og ég held að slíkt hið sama eigi
við hinar stelpurnar.“
Það er oft sagt að það sé betra
að eiga heimaleikinn inni í svona
umspili en íslenska liðið þarf að
glíma núna við það að spila fyrst
heima.
„Það er alveg ljóst að við verð-
um að vinna þennan leik. Það er
erfitt að segja til um hversu stórt
við þurfum að vinna. Ég yrði him-
inlifandi með fjögur plús mörk en
það er samt ekki trygging fyrir
neinu,“ sagði Rakel. En hvað þarf
að laga frá æfingamótinu fyrir
þessa leiki?
„Það voru alltof miklar sveifl-
ur í okkar leik í Svíþjóð. Við verð-
um að ná meiri stöðugleika. Spila
sterka vörn, fækka teiknifeilum og
vera agaðri í okkar leik. Þetta eru
alltaf sömu hlutirnir. Ef við náum
að gera það þá vinnum við Tékk-
ana.“ henry@frettabladid.is
Sjálfstraustið á að vera í lagi
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik spilar á sunnudag gríðarlega mikilvægan leik gegn Tékkum í um-
spili um laust sæti á HM. Allt þarf að ganga upp hjá stelpunum svo HM-draumurinn haldi lífi . Rakel Dögg
Bragadóttir segir að liðið sé búið að vinna mikið í andlega þættinum og að sjálfstraustið sé í góðu lagi.
REYNSLUMIKIL Rakel Dögg er búin að vera lengi í landsliðinu og það mun mæða
mikið á henni í leikjunum gegn Tékkum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Stoke City hefur stað-
fest að Mark Hughes er orðinn
nýr knattspyrnustjóri liðsins.
Hann tekur við liðinu af Tony
Pulis sem var látinn fara á dög-
unum.
Hughes hefur víða komið við
á ferli sínum sem knattspyrnu-
stjóri og stýrt Fulham, Man. City,
Blackburn og að sjálfsögðu síðan
QPR.
Margir stuðningsmenn Stoke
eru óánægðir með þessa ráðn-
ingu en það truflar ekki stjórann
sem var rekinn frá QPR í nóvem-
ber og hefur verið atvinnulaus
síðan.
„Þetta var mjög erfiður tími
hjá QPR og það voru gerð mistök.
Ég gerði mistök sem ég hef lært
af,“ sagði Hughes.
„Nú er kominn tími til þess að
nýta alla þá reynslu sem ég hef
viðað að mér og koma Stoke enn
ofar á töfluna. Ég veit hvað fólk
er að segja um mig og sú gagn-
rýni hvetur mig til dáða.“ - hbg
Hughes tekinn
við Stoke
MARK HUGHES Ætlar sér stóra hluti
með Stoke. NORDICPHOTOS/GETTY
Öll brúðhjón fá
glæsilega svuntu
með nöfnum sínum
og brúðkaupsdegi
ísaumuðum.
Íslensk kennslubók í matreiðslu fylgir!
Gildir um hrærivélar.
Sérstök brúðkaupsgjöf
FOR THE WAY IT´S MADE
Nýjar
vörur
Brúðarleikur
Þau brúðhjón sem koma við í verslun okkar
og skrá sig á brúðargjafalista fá nöfnin sín
sjáfkrafa skráð í pott. Í lok sumars verða heppin
brúðhjón dregin út og hljóta þau að launum
nýju KitchenAid matvinnsluvélina, nýju
KitchenAid brauðristina, nýja KitchenAid
blandarann og nýja KitchenAid
töfrasprotann, samtals að verðmæti
um 200 þúsund krónur.