Fréttablaðið - 31.05.2013, Page 102
31. maí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 66
Hjalti Karlsson, grafískur hönn-
uður búsettur í New York, hlaut
hin eftirsóttu sænsku Torsten og
Wanja Söderberg-hönnunarverð-
laun í ár. Verðlaunaféð nemur
einni milljón sænskra króna eða
um 19 milljónum króna. Verð-
launin verða afhent í Gautaborg
4. nóvember við hátíðlega athöfn
og um leið opnar sýning á verk-
um Hjalta í Röhsska-safninu.
„Harpa [Þórsdóttir], forstöðu-
maður Hönnunarsafnsins, bað
mig um að vera með í hópi hönn-
uða sem sænsk dómnefnd hitti
vegna verðlaunanna. Ég hitti
dómnefndina fyrir rúmum mán-
uði og sýndi þeim það sem ég hef
unnið að síðustu fimmtán árin – í
raun allan minn feril. Ég veit ekki
hvað hún hitti marga en úrslitin
komu mér virkilega á óvart og
eru mér mikill heiður,“ útskýrir
Hjalti. Hann var staddur á flug-
vellinum í Frankfurt þegar blaða-
maður náði af honum tali í gær og
var þá á leið til New York.
Hjalti flutti til Bandaríkjanna
árið 1989 og hóf nám í graf-
ískri hönnun við hinn virta Par-
sons-skóla. Hann stofnaði hönn-
unarfyrirtækið KarlssonWilker
ásamt Jan Wilker árið 2000, en
þeir höfðu áður starfað saman
hjá hönnunarfyrirtækinu Sag-
meister Inc.
Inntur út þau verk sem sýnd
verða í Röhsska-safninu í nóvem-
ber segist Hjalti hafa viljað hanna
nokkuð alveg sérstakt inn í sal-
inn. „Planið er að gera eitthvað
spes fyrir sýninguna og ekki bara
að sýna eldri verk. Salurinn er
stór og flottur og það væri gaman
að hanna verk sérstaklega inn í
hann. Við Jan höfum sex mán-
uði til að skipuleggja þetta, ég er
HELGIN
Í tilefni sextugsafmælis Egils Ólafssonar
verða haldnir afmælistónleikar í Hörpu 26.
október. Egill hefur fengið til liðs við sig
hljómsveitina Moses Hightower og munu
þau koma fram sem ein heild og flytja laga-
bálk söngvarans.
„Moses Hightower er eitt af mínum uppá-
haldsböndum. Sveitin ætlar að taka lög eftir
mig og setja þau út í stíl sem hentar henni.
Svo kem ég og fæ að vera með,“ segir Egill.
„Við munum hafa endaskipti á lögunum og
endurskapa músíkina svolítið.“
Lay Low og Högni Egilsson verða gesta-
söngvarar. „Þau eru dálítið mínir uppá-
haldssöngvarar. Þetta verður svolítið
skemmtilegur fundur, get ég ímyndað mér.“
Eftir Egil liggur fjöldi vinsælla laga, með
hljómsveitum á borð við Stuðmenn, Þursa-
flokkinn og Spilverk þjóðanna. Honum líst
einkar vel á að starfa með ungu kynslóð-
inni á tónleikunum. „Hún er svo fjölhæf og
víðsýn þessi kynslóð að hún kann alla þessa
músík fyrri ára.“
Tilkynnt verður um miðasölu síðar. - fb
Egill fær ungu kynslóðina í lið með sér
Egill Ólafsson og Moses Hightower leiða saman hesta sína á afmælistónleikum Egils í Hörpu.
AFMÆLISTÓNLEIKAR FRAM UNDAN Högni Egilsson og
Lay Low verða gestasöngvarar á afmælistónleikum Egils.
F66300513 EGILL
➜ Til stendur að gefa út eitt lag með
Moses Hightower og Agli í tilefni tón-
leikana.
Hjalti hlýtur nítján
milljónir í verðlaun
Hjalti Karlsson, grafískur hönnuður, hlaut virt sænsk hönnunarverðlaun.
VERÐLAUNAÐUR Hjalti Karlsson, grafískur hönnuður í New York, hlaut hin virtu
Torsten og Wanja Söderberg-hönnunarverðlaun í ár.
bara rétt byrjaður að pæla,“ segir
hann.
Aðspurður segir Hjalti óráðið í
hvað verðlaunaféð muni fara. „Ég
veit það ekki. Ég er ekki búinn að
fá peninginn, en ég býst við því
að deila honum með Jan, hann
á þetta jafn mikið og ég,“ segir
hann glaðlega að lokum.
sara@frettabladid.is
Torsten og Wanja Söderberg-hönnunarverð-
launin voru stofnuð 1992 og fyrst veitt
tveimur árum síðar. Verðlaunin eru veitt
norrænum hönnuðum og listamönnum
sem þykja hafa skarað fram úr. Danska
leirlistakonan Jane Reumert var sú fyrsta
sem fékk verðlaunin árið 1994. Tveir
Íslendingar hafa hlotið verðlaunin;
fatahönnuðurinn Steinunn Sig-
urðardóttir árið 2008 og arkitektinn
Sigurður Gústafsson árið 2003. Danski
fatahönnuðurinn Henrik Vibskov
hlaut verðlaunin árið 2011.
Tveir Íslendingar unnið áður
„Ég verð að vinna alla helgina
í Dalbæ á Dalvík. Þess á milli
verð ég í slökun uppi í sófa með
kærastanum.“
Ellen Ýr Gunnlaugsdóttir, söngkona og systir
Eyþórs Inga Gunnlaugssonar.
Miðasala fer fram á Miði.is, Harpa.is, í miðasölu Hörpu og í síma 528-5050.
EINLEIKIN GAMANSEMI Í HÖRPU
EFTIR KARL ÁGÚST, LADDA OG SIGGA SIGURJÓNS
„Þarna rifjaðistupp fyrir manni hversu mikill
snillingur Laddi er... Það komast
fáir með tærnar þar semhann hefur hælana...“- Helgi Snær Sigurðsson,Morgunblaðið
SÍÐASTA SÝNING FYRIR
SUMARFRÍ ER 8.JÚNÍ
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Stuttmynd Maríu Kjartans og tónlistar-
mannsins Birgis Hilmarssonar, We Are
Weather, var frumsýnd í DegreeArt Gall-
ery í London á dögunum. Hún er hluti
af einkasýningu Maríu, Spiritual Land-
scapes.
Myndin var tekin upp í brjáluðu veðri á
Suðurlandi rétt fyrir síðustu jól. „Hún er
búin að fá rosalega góð viðbrögð. Það fóru
tveir að gráta. Ég bjóst ekki við því að
Ísland væri svona fallegt,“ segir María og
hlær. „Ég held að fólk sem býr í London og
er umvafið múrsteinum fatti hvað náttúran
skiptir það miklu máli og finnur hvað það
er nauðsynlegt að tengjast því sem okkur
Íslendingum finnst alveg sjálfsagt.“
Myndin verður líklega sýnd á listahátíð
Zürich í næsta mánuði og svo verður hún
í Edinborgarhúsinu á Ísafirði frá 2. ágúst.
Sýningin Spiritual Landscapes sam-
anstendur af þrettán stórum ljósmynda-
prentum og þremur stuttmyndum. Hluti
verkanna er unninn í blandaðri tækni í
samstarfi við listakonuna Hörpu Einars-
dóttur, sem myndskreytir hluta ljósmynd-
anna. -fb
Grétu yfi r íslenskri stuttmynd
Stuttmyndin We Are Weather er hluti af einkasýningu Maríu Kjartans í London.
➜ Opnunarkvöld sýningarinnar verður
6. júní. Það hefst með tónleikum Birgis
og frumsýningu nýrrar stuttmyndar.
MARÍA KJARTANS
Stuttmyndin We Are
Weather er sýnd á
einkasýningu Maríu
í London.