Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 17
LAUGARDAGUR 29. júní 2013 | SKOÐUN |
Ráðgjafahópur um
lagningu sæstrengs til
Evrópu hefur skilað til-
lögum sínum í skýrslu til
iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra. Tillögur ráðgjafa-
hópsins eru mikilvægur
áfangi í þeirri vegferð
sem Landsvirkjun hefur
verið í að kanna mögu-
leika og hagkvæmni þess
að tengjast evrópskum
orkumörkuðum með
lagningu sæstrengs. Það er
sérstaklega ánægjulegt fyrir
Landsvirkjun, sem hefur alla tíð
lagt áherslu á nauðsyn breiðrar
sáttar um svo stórt verkefni,
hversu góð samstaða varð í
ráðgjafa hópnum og að enginn
hafi skilað séráliti.
Í skýrslunni kemur fram að
vísbendingar eru um að lagning
sæstrengs milli Íslands og Bret-
lands geti reynst þjóðhagslega
arðsöm að nokkrum skilyrðum
uppfylltum, meðal annars ef
tækist að semja við gagnaðila
um hagstæð kjör á seldri orku
með tiltölulega miklu öryggi
og til nokkuð langs tíma. Ráð-
gjafahópurinn var samhljóða
í ályktun sinni að leggja til að
haldið yrði áfram að kortleggja
alla þætti verkefnisins um leið
og leitað yrði svara um möguleg
rekstrar- og eignarhaldsmódel
hjá viðsemjendum í Bretlandi.
Einstakt viðskiptatækifæri
Landsvirkjun hefur unnið að
því að meta sæstreng um nokk-
urt skeið og höfum við kynnt
almenningi afrakstur þeirrar
vinnu á árs- og haustfundum
okkar. Tenging við evrópska
raforkumarkaði eins og bresk-
an markað getur verið einstakt
tækifæri fyrir Íslendinga til að
hámarka afraksturinn af orku-
auðlindunum. Við getum selt þá
umframorku sem er alla jafna
í kerfinu en iðnaður getur ekki
nýtt, orkuöflunarmöguleikum
getur fjölgað, sveigjanleiki
vatnsaflsins yrði nýttur betur,
áhættudreifing aukin og orku-
öryggi Íslands betur tryggt með
því að rjúfa einangrun raforku-
kerfisins. Fjölmörg ný og spenn-
andi störf og tækifæri geta skap-
ast. Verðmætasköpunin getur
orðið umtalsverð.
Fyrir utan breiða sátt um
verkefnið hefur Landsvirkjun
lagt áherslu á að tvennt komi til
lagningar sæstrengs. Annars
vegar að iðnfyrirtækjum verði
áfram tryggð samkeppnishæf
kjör á raforku þannig að þau
geti áfram vaxið á Íslandi. Hins
vegar að raforkuverð til almenn-
ings hækki ekki óhóflega. Engar
líkur eru til þess að raforku-
verð til almennings margfaldist
eins og stundum er haldið fram,
enda er munur milli landa ekki
margfaldur í dag.
Norðmönnum hefur tekist vel
til við að sætta sjónarmið hags-
munaaðila og nýta þau tækifæri
sem felast í raforkusölu á evr-
ópska markaði. Það er gert án
þess að tilveru iðnaðar í Noregi
sé ógnað.
Ákvörðun möguleg eftir nokkur ár
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
mun nú fara yfir tillögur hóps-
ins og ákveða næstu skref en
íslensk stjórnvöld þurfa að
móta sér afstöðu til verkefnis-
ins. Landsvirkjun hefur miðað
við að niðurstöður frummats
liggi fyrir í lok þessa árs og að
þá getum við verið tilbúin að
leggja til næsta skref af okkar
hálfu, hvort ráðist verði í dýrar
og umfangsmeiri rannsóknir
á verkefninu. Ákvörðun um að
leggja sæstreng er síðan í fyrsta
lagi möguleg eftir nokkur ár
og er mikilvægt að um slíka
ákvörðun náist sem breiðust sátt
í samfélaginu.
Mikilvægum áfanga náð
RAFORKA
Hörður Arnarson
forstjóri
Landsvirkjunar
Sjö lönd
einn hljómur
Hljómsveitin I, Culture Orchestra er skipuð
framúrskarandi tónlistar mönnum á aldrinum
18–28 ára frá löndum Austur-Evrópu. Stjórnandi
er Kirill Karabits og einleikari er Khatia Buniatishvili.
Miðasala er hafin á harpa.is
Eldborg – 29.08.13, kl. 19.30
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
Strekkibönd
– verulegt úrval!63404 2 bögglateygjur
720 cm með stálkrókum
495
63303 2 Tóg 450 cm
- þolir 2,3 tonn
1.290
64403 4 bönd
með krókum
2,5x190 cm
2.990
63102 4 bönd
með krókum
2,5x360 cm
2.290
64105
Farangursband
2,5x360 cm
475
64515
395
64407
995
63100 m. krókum
4,5 tonn
5x670 cm
2.995
63114
2.890
➜ Engar líkur eru
til þess að raforku-
verð til almennings
margfaldist eins og
stundum er haldið
fram, enda er munur
milli landa ekki
margfaldur í dag.