Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 18

Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 18
HELGIN 29. júní 2013 LAUGARDAGUR Það var þetta starf sem var hér í boði sem lokkaði. Svo er ég fædd hér og upp-alin til þrettán ára aldurs og hef alltaf hugsað mikið hingað austur, svarar Vala Garðars- dóttir fornleifafræðingur spurn- ingunni um hvernig það hafi komið til að hún flutti til Horna- fjarðar. „Þetta er líka svo spenn- andi hérað og óplægður akur í fornleifarannsóknum. Hér er sagan, hún bíður bara eftir okkur,“ bætir hún við. En sér hún fram á einhvern tíma til að sinna slíku grúski, stjórnandi stóru batteríi? „Ekki núna en ég mun gefa mér þann tíma í framtíðinni. Ég ætla að byrja á að anda þessu að mér,“ segir hún og heldur áfram. „Menningar- landslagið hér er stórbrotið og tóftir víða, margar þeirra hafa verið skráðar en meirihlutinn er samt óskráður. Ég sé fullt af verkefnum.“ Hún segir líka mikil tækifæri felast í Hornafjarðarsöfnunum, byggðasafninu, náttúrugripasafn- inu og jöklasafninu sem vísir sé að í dag í Gömlu búð en eftir sé að byggja upp til framtíðar. Hvar skyldi hún ætla að hafa þau? „Ég ætla að leggja mínar hug- myndir fyrir bæjarstjórn bráð- lega. En það hefur legið fyrir að framtíðar húsakostur fyrir Hornafjarðar söfnin, fyrir utan listasafnið, verði í Miklagarði, sem er gamalt og virðulegt hús við bryggjuna með beitningarskúrum á neðri hæð og aðstöðu fyrir lista- menn og fleiri á efri hæð. Þar sam- tvinnast þá safnkostur og aðstaða fyrir skapandi greinar og það væri áhugavert að blanda þessu saman við beitningu og netaviðgerðir.“ Spurð hvort hún sé með fjöl- skyldu með sér svarar Vala. „Ég er flutt hingað með dóttur mína, fæ soninn í júlí en manninn ekki fyrr en rétt fyrir jól. Þetta er hægt landnám! Komin með hús- næði? Já, en það var erfitt, það er húsnæðisskortur hér á Hornafirði. Við mæðgur erum komnar með ísskáp og rúm, það allra nauðsyn- legasta,“ segir hún og upplýsir að börnin séu sjö og níu ára og eina dótt- ur eigi hún sem sé að verða nítján ára. „Hún á eitt ár eftir í menntaskóla en ég kræki í hana þegar hún á frí.“ Fyrsta embættisverk Völu fyrir austan var að opna klassíska sjó- minjasýningu í Skreiðarskemmunni. Hún segir hana fjalla um samspil manns og hafs. „Þetta er grunnsýn- ing að vissu leyti og hún á að breyt- ast og þróast en verður í skemm- unni þar til endanlegur húsakostur er kominn.“ Samkvæmt nýlegum pistli bæjar stjórans Hjalta Vignissonar á vefnum www.rikivatnajokuls.is er staða bæjarsjóðs Hornafjarðar góð svo Vala hefur vonandi veðjað á réttan hest með því að flytja austur. „Já, ég hef mikinn metnað í mínu starfi og finn líka fyrir miklum metnaði hjá baklandinu, bæði bæjar stjórn og almenningi,“ segir hún. „Það er kraftur hér í mann- skapnum sem ég held að eigi eftir að skila miklu í framtíðinni.“ Ég sé fullt af verkefnum Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur er nýr yfirmaður safnamála í Hornafirði. Hún hefur taugar til staðarins og svo segir hún margar fornminjar í héraðinu órannsakaðar. YFIRMAÐUR SAFNAMÁLA HORNA FJARÐAR „Menningarlandslagið hér er stórbrotið og tóftir víða, margar þeirra hafa verið skráðar en meirihlutinn er samt óskráður,“ segir Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur. MYND/BJÖRN ARNARSON Þar samtvinnast þá safnkostur og aðstaða fyrir skapandi greinar og það væri áhugavert að blanda þessu saman við beitningu og netaviðgerðir. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Tilraun til heimsmets í humarlokugerð á Höfn Humarhátíðin stendur yfi r á Höfn þessa helgi og er heldur betur lífl egt í bænum. Sjá má dagskrána og ítarlegri upplýsingar á www.humar.is. Jóga Fjölskyldujógatími verður í dag milli klukkan 13 og 14 í Viðey, nánar tiltekið á túninu við Viðeyjar stofu, undir stjórn Arnbjargar Kristínar Konráðsdóttur jógakennara. Þar tekur eitt við af öðru, jógaæfingar, leikir, söngur og hugleiðsla og í lokin verður slakað á undir heillandi tónum. Áhersla er lögð á að tengjast í kærleika, hlæja saman og fara brosandi inn í afganginn af deginum. Verð er 500 krónur. Gott er að hafa með teppi til að hafa ofan á fjölskyldunni í slökun- inni. Viðey Jóga á grænu túni Vinna í metsölubók Roald Viðar Eyvindsson skríbent Ég hitti vini og ættingja sem ég hef ekki séð lengi. Kíki í heitu pottana, sem ég sakna mikið eftir búsetu erlendis. Aðallega verð ég þó að vinna í væntanlegri metsölubók. Sýning Eistlenski fatahönnuðurinn Liivia Leskin verður með kynningu á höttum sínum í listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5 í dag milli klukkan 15 og 17. Liivia er vel þekkt í Eistlandi fyrir hönnun sína og selur hana eingöngu í sinni eigin verslun í miðborg Tallinn og hjá Ófeigi. Liivia verður sjálf á staðnum og mun sýna notkunar- möguleika hattanna. Afmæli og skriftir Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur Það er tvennt á dagskránni hjá mér. Ég ætla að fara í afmæli hjá vinkonu minni og svo stefni ég að því að skrifa bæði í dag og á morgun, vonandi í sólskini. Verðlaun og silungur Anna Pála Sverris dóttir, formaður Samtakanna ’78 Ég tók við Frelsisverðlaunum SUS í gær. Í dag fer ég í Rauðuskriðu í Aðaldal, þar sem ég fæ nýjan silung og knúsa stórfjölskylduna. Býr til sushi úr aflanum Freyr Gígja Gunnarsson fréttamaður Ég ætla að vinna og svo kannski búa til sushi úr laxinum sem ég veiddi í Tálma á Snæfellsnesi. Listhús Ófeigs Hattahönnun Fjölmennasta humarhátíðin til þessa var haldin á 100 ára afmæli Hafnar árið 1997. Þá sóttu hátíðina 4.000 manns. 4.000 Ráðgert er að slá heimsmet í humarlokugerð í dag á Höfn. Kokkarnir á Ósnum ætla að fram- reiða átta metra langa humarloku og gefa öllum að smakka. Sauðfjárbændur bjóða líka upp á heilgrillað lamb á hátíðasvæðinu við höfnina svo enginn ætti að vera svangur. Samkomuhúsið Sindrabær er fimmtíu ára á árinu og í tilefni þess er haldið dansiball þar í kvöld, eins og þau gerast best. Smáfuglarnir leika gömlu dansana til að byrja með og svo tekur Hljómsveit Hauks Þorvaldssonar við eftir miðnætti. Heitið er ekta Sindrabæjarstemningu. 50 Sú nýjung er á humarhátíðinni í ár að bæjarbúar buðu í gærkvöld upp á ókeypis humarsúpu á tíu stöðum í bænum. Hornafjörður er jú þekktur fyrir veiðar og vinnslu á humri. Humar er því þjóðarrétturinn. 10Humarhátíðin á Höfn fagnar tuttugu ára afmæli í ár og dagskrá hennar er stútfull af skemmtilegum viðburðum. Hátíðin er haldin á hinum ýmsu stöðum í bænum, Hornafjarðarkvöld er til dæmis í Bárunni, hinu nýja knattspyrnuhúsi, hátíðasviðið er við Hafnarvík og Heppu og varðeldur verður tendraður við Óslandsveginn, skammt frá Akureynni. 20 ára metrar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.