Fréttablaðið - 29.06.2013, Side 24

Fréttablaðið - 29.06.2013, Side 24
29. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is Handhafar Samfélags-verðlauna Fréttablaðs-ins í flokknum Til atlögu gegn fordómum, sem afhent voru í apríl síðastliðnum, eru sam- tökin Projekt Polska á Íslandi. Um er að ræða hóp ungra Pólverja sem vinnur að aðlögun og eflingu félags- starfs og bættum aðstæðum inn- flytjenda á Íslandi og meðal þeirra atkvæðamestu í hópnum eru lög- gilti skjalaþýðandinn Joanna Dom- iniczak og tölvunarfræðingurinn Tomasz Chrapek. Hvenær voru samtökin stofnuð? Joanna: Projekt Polska á Íslandi voru stofnuð í október á síðasta ári, svo við höfum ekki verið lengi starf- andi, en það hefur gengið mjög vel á þessum fáu mánuðum. Projekt Polska eru í raun nokkurs konar alþjóðleg samtök sem voru stofnuð á tíunda áratug síðustu aldar og við erum Íslandsarmur þeirra. Tomasz: Það eru nokkrar deildir samtakanna í Evrópu, en líka í Bandaríkjunum og víðar. Við erum í miklum samskiptum við höfuðstöðvar samtakanna í Póllandi og fulltrúi okkar sækir til að mynda fundi þar reglulega. Hvernig kom til að þessi Íslands- armur var stofnaður? Joanna: Nokkur okkar höfðu lengi velt fyrir sér að stofna til svona félagsskapar, af ýmsum ástæðum. Ég flutti sjálf til Íslands árið 2004 og þekkti fyrst í stað enga Pólverja, bara Íslendinga og aðra útlendinga. Í um það bil hálft ár þráði ég afar heitt að fá að tala pólsku og það gekk svo langt að eitt sinn þegar ég var að bíða eftir strætó og heyrði mann tala á pólsku í símann stökk ég á hann og bað hann um að spjalla við mig. Ég fylgdist vel með allri umfjöllun um Pólverja í fjölmiðlum og kynntist fljótlega nokkrum. Þá kom í ljós að þau félög Pólverja sem voru starfandi hentuðu okkur ekki og allt sameiginlegt félagslíf hér á landi var í daufari kantinum. Tomasz: Ég kom til Íslands 2007 og tók eftir þessu sama. Okkur þótti tilvalið að stofna samtök sem hefðu það að markmiði að sýna Pólverja og pólska menningu frá mörgum mismunandi hliðum. Til að mynda þykir okkur mikilvægt að kynna nútímalegri hliðar Póllands fyrir Íslendingum en bara þær sem snúa að gamalli danslist og matargerð. Við erum á móti staðalímyndum og viljum breyta þeim. Við teljum líka að innflytjendur beri nokkra ábyrgð á því sjálfir að bæta hag sinn og ákváðum því að vera virk, meðal annars við að skipuleggja pólska listviðburði og kynna þá fyrir eins mörgum Íslendingum og hægt væri. Joanna: Við ákváðum strax að starfsemin myndi fyrst og fremst byggjast á því að sækja um styrki, til dæmis frá yfirvöldum, Reykja- víkurborg og Evrópusambandinu, til að standa fyrir alls kyns menningar legum viðburðum. Fyrsti fundur inn fór fram á Rósenberg og þar gerðum við grófar áætlanir. Strax daginn eftir fórum við í það að skrá okkur í fyrirtækjaskrá, sækja um bankareikning og þar fram eftir götunum, svo þetta hefur gengið fremur hratt fyrir sig. Tomasz: Þeir meðlimir sem taka mjög virkan þátt í starfinu eru um þrjátíu talsins og þeir borga þrjú hundruð krónur á mánuði sem eru notaðar í bakkelsi á fundum og slíkt, en svo eru yfir þúsund manns sem fylgjast með okkur á Facebook og bætist við á hverjum degi. Við erum mjög ánægð með viðtökurnar sem samtökin hafa fengið. Áhugi erlendis frá Eru það eingöngu Pólverjar og fólk af pólskum uppruna sem sýnir sam- tökunum áhuga eða kemur áhuginn víðar að? Tomasz: Það er allur gangur á því. Markmið okkar er að vera mjög sjáan leg og til að mynda hafa erlendir fjölmiðlar sýnt okkur áhuga, til dæmis í Póllandi og Sví- þjóð. Við fáum mikið af símhring- ingum og tölvupósti frá fólki sem hefur áhuga á starfseminni. Joanna: Við erum tiltölulega nýbyrjuð og enn að prófa okkur áfram, en það er vissulega á stefnu- skránni að gera starfsemi samtak- anna viðameiri og verða enn sýni- legri. Við fáum mörg tilboð um alls kyns samstarf en það er stundum erfitt því við erum öll í annarri vinnu og gerum þetta eingöngu af áhuga. Til dæmis væri gaman að geta haft einn starfsmann sem sinn- ir eingöngu samtökunum og einnig yrði mikið til bóta að fá skrifstofu, en núna ætlum við að einbeita okkur að því að klára þau verkefni sem standa fyrir dyrum og svo sjáum við til hvað næsta ár ber í skauti sér. Hver eru helstu verkefnin sem Projekt Polska á Íslandi hefur stað- ið fyrir? Joanna: Einna skemmtilegastur var viðburður sem stóðum fyrir í samstarfi við mannréttinda- skrifstofu Reykjavíkur og Reykja- víkurborg á Alþjóðlega mann- réttindadeginum í desember síðastliðnum. Þá gáfum við fólki skýjaluktir sem kveikt var á og látn- ar líða um himininn í nafni mann- réttinda. Jón Gnarr borgarstjóri tók þátt og þetta var virkilega gaman. Tomasz: Svo höfum við staðið fyrir menningarviðburðum, meðal annars í Ráðhúsinu, og til dæmis einum þar sem Íslendingum gafst tækifæri til að spjalla við Pól- verja sem heppnaðist mjög vel. Við höfum líka verið dugleg við að skrifa greinar í blöðin og rekum fjölskyldugarð þar sem meðlimir samtakanna hittast og vinna saman í. Einn meðlimurinn er garðyrkju- fræðingur og hann hélt námskeið þar sem hann útskýrði fyrir okkur hvernig best væri að rækta hér á landi, hver munurinn á Póllandi og Íslandi er í þeim efnum og svo fram- vegis. Okkur þykir mjög mikilvægt að geta gefið félagsmönnum okkar tækifæri til að deila sinni sér- fræðiþekkingu, sem er í mörgum tilvikum talsverð og jafnvel af því tagi sem skortur er á hér á landi. Við viljum búa til jákvætt andlit á Pólverja. Kennir pólsku í vinnunni Og hvað er á döfinni hjá Projekt Polska á Íslandi á næstunni? Joanna: Við höfum sótt um styrk til að setja á fót nokkurs konar Pól- landstorg þar sem ræktaðar yrðu pólskar kryddjurtir og blóm, og yrði einnig nýtt sem samkomustaður þar sem sýnt yrði pólskt brúðuleikhús, grillaðar pólskar pylsur og fleira í þeim dúr. Vonandi verður af því. Tomasz: Svo ætlum við að flytja inn vinsæla pólska hljómsveit, Domowe Melodie, til landsins og okkur langar líka til að leiða saman pólska og íslenska listamenn í þeim tilgangi að vinna saman og standa fyrir pólskukennslu fyrir Íslend- inga. Það er ýmislegt á döfinni. Joanna: Ég kenndi pólsku í eina önn við Menntaskólann við Hamra- hlíð fyrir nokkrum árum og þá voru nítján manns í bekknum. Einn flutti til Póllands í kjölfarið. Tomasz: Ég kenni pólsku í vinnunni á hverjum degi. Þar segja allir cześć í staðinn fyrir halló. Þið talið um að búa til jákvætt andlit á Pólverja á Íslandi. Er það neikvætt í dag? Joanna: Við óttumst að margir líti bara á Pólverja sem ódýrt vinnuafl. Tomasz: Við viljum breyta þeirri staðalímynd að Pólverjar séu hér bara til að vinna og fara svo með peninga aftur til Póllands. Auðvitað er hópur sem gerir það en alls ekki allir. Joanna: Við borgum skatta hér og stofnum fyrirtæki, viljum kjósa og taka þátt í öllu daglegu lífi. Tomasz: Þegar við komum fyrst til Íslands fundum við mjög vel fyrir því að þessi steríótýpa var mjög sterk. Hafið þið orðið fyrir fordómum? Joanna: Fordómarnir koma stundum upp. Til dæmis ef ég er stödd í verslun með pólskri vinkonu minni og við tölum saman á pólsku, þá horfir afgreiðslufólkið oft stíft á okkur til að passa upp á að við séum ekki að stela. Tomasz: Ég finn ekki mikið fyrir fordómum í kringum mig, en kannski helst í fjölmiðlum. Joanna: Það sést til dæmis á því að þegar Pólverjar eða Litháar gera eitthvað af sér er þjóðerni þeirra alltaf tekið fram í fréttum, en ekki ef um er að ræða aðra útlendinga. Tomasz: Ég vann sjálfur sem fréttamaður í Póllandi og veit að það er hægt að gera betur. Hefur þetta breyst á þeim árum sem þið hafið búið hér? Joanna: Líklega er þetta á réttri leið og það sést meiri umfjöllun um útlendinga í íslenskum fjölmiðlum í dag en fyrir áratug. Við ætlum ein- mitt að setja á fót óformlegan fjöl- miðlahóp sem grandskoðar fréttir sem tengjast Póllandi í íslenskum fjölmiðlum í eitt ár, jákvæðar og neikvæðar. Það verður gaman að sjá útkomuna úr þeirri vinnu. Vilja búa til jákvæða ásýnd Projekt Polska á Íslandi er hópur ungmenna sem vinnur að eflingu félagsstarfs Pólverja á Íslandi og hlaut Samfélags- verðlaun Fréttablaðsins í vor. Þau Joanna Dominiczak og Tomasz Chrapek segja frá starfseminni. PROJECT POLSKA Izabela Sobczak, Tomasz Chrapek, Aleksandra Orzylowska, Lukasz Slesak, Olga Knasiak og Kamil Kluczynski eru öll starfandi meðlimir í Projekt Polska. Viðmælandinn Joanna Dominiczak var vant við látin við myndatökuna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fordómarnir koma stundum upp. Til dæmis ef ég er stödd í verslun með pólskri vinkonu minni og við tölum saman á pólsku, þá horfir afgreiðslufólkið oft stíft á okkur til að passa upp á að við séum ekki að stela. Laugavegi 13, 101 Reykjavík, Dunhaga 5, 107 Reykjavík, sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.