Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 32
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Bryndís Hauksdóttir,
bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson,
kkolbeins@365.is, s. 512 5447
VINSÆLL
„Ég kann ágætlega
við mig á sviði og
þetta kemur allt
með reynslunni. Ég
finn að margt er
að breytast en ég
spái ekkert í hvort
stelpurnar séu að
horfa á mig. Ég er
ekki sú manngerð.”
SVALUR JÖKULL
„Ég held að Vor í Vagla-
skógi sé ekki ókunnugt
ungdómnum nú. Það er
án efa með langbestu
lögum Íslandssögunnar
og hefur örugglega
lifað góðu lífi á milli
kynslóða, enda hugljúf
lagasmíð með fallegum
texta. Vonandi fer minn
flutningur ekki fyrir
hjartað á íhaldssömum
því í minni nálgun
breytist lagið mikið.
Mér þykir hins vegar
gaman að vekja athygli
á gömlum, íslenskum
dægurlögum,“ segir
Jökull.
MYND/ANTON
Rokk og ról er áhugaverður lífsstíll og fyrir tónlistina er ég tilbúinn að leggja hvað sem er á mig. Ég
væri því alveg til í að ferðast um og
semja lög í skítugri rútu allan daginn og
troða upp á kvöldin,“ segir Jökull sem
á kærustu og er ekkert að spá í hvort
stelpurnar horfi nú heillaðar á hann.
„Ég er ekki sú manngerð,“ segir hann
af festu.
Sem strákur fór Jökull í útilegu í
Vaglaskóg og man enn eftir stórkost-
legri náttúrufegurð hans.
„Ég hef alltaf haldið gífurlega upp á
lagið Vor í Vaglaskógi sem pabbi spilaði
fyrir mig þegar ég var lítill drengur.
Þegar ég fór sjálfur að spila á gítar varð
lagið fljótt fyrir valinu og fyrir um ári
fór ég að leika mér við að þróa það yfir
í rólegri, draumkenndari og drama-
tískari stíl,“ útskýrir Jökull sem hefur
alltaf verið músíkalskur.
„Pabbi er stór áhrifavaldur í mínu
tónlistaruppeldi og leiðbeindi mér
mikið í hlustun. Ég er því undir
miklum áhrifum tónlistar frá 6., 7. og 8.
áratugnum sem pabbi kynnti rækilega
fyrir mér. Þegar ég var sextán ára
fórum við feðgarnir saman í Bítlaferð
til að skoða rætur Bítlanna í Liverpool
og aðrir áhrifavaldar eru Led Zeppelin,
Doors og fleiri.“
TROMMARINN GETINN Á HAVAÍ
Jökull ólst upp í Mosfellsbæ fyrstu sex
æviárin en flutti þá til Hafnar í Horna-
firði þar sem hann undi hag sínum vel
og spilaði fótbolta með Sindra. Árið
2004 flutti hann aftur í Mosfellsbæ og
lauk þar unglingastigi með strákunum í
hljómsveitinni.
„Við strákarnir í Kaleo erum bekkjar-
bræður úr Gaggó Mos og allir langbestu
vinir. Við getum því talað opinskátt um
hvað sem er sem er mikilvægt þegar
verið er í hljómsveit,“ segir Jökull sem
sér um flestar lagasmíðar fyrir hljóm-
sveitina sem varð til fyrir tónlistar-
hátíðina Airwaves í fyrrahaust.
„Nafnið Kaleo kemur frá Havaí. Þar í
landi er það notað sem karlmannsnafn
en þýðir líka hljóð, með ka sem ákveðn-
um greini. Okkur leist vel á nafnið sem
hefur einnig skemmtilega tengingu við
Davíð trommuleikara sem var getinn á
Havaí,“ segir Jökull og brosir við.
Rödd Jökuls hefur verið líkt við
raddir söngvara Pearl Jam, Nirvana og
nú síðast Bubba Morthens en Jökull
segist reyna að hugsa ekkert um það.
„Ég syng bara með mínu nefi. Ég
byrjaði ekki að syngja af viti fyrr en á
sextánda árinu en fór ungur í grunn-
nám á píanó og sjálfmenntaði mig á
gítar á unglingsárunum. Síðan hefur
röddin þróast mikið og er enn í mótun,
en ég hef alltaf haft gott vald á rödd-
inni.“
Kaleo spilar nú víða um hverja helgi.
Í dag tekur hljómsveitin lagið í brúð-
kaupi í Mosfellsbænum og í kvöld
stígur hún á svið með Vintage Caravan
á Gamla Gauknum í Reykjavík.
„Ég tel mikilvægt að koma fram sem
oftast því æfingin skapar meistarann. Í
Kaleo er enginn foringi en auðvitað þarf
stundum að reka á eftir mönnum að
vera duglegir að mæta á æfingar. Með
aukinni velgengni eykst áhuginn og ég
er ánægður með metnaðinn í bandinu.“
VILL EKKI FESTAST Í ÞÆGINDARAMMA
Í sumar vinnur Jökull sem flokksstjóri
í unglingavinnunni í Mosfellsbæ og í
haust er hann skráður til náms í heim-
speki við Háskóla Íslands.
„Mosfellsbær er lítið og heimilislegt
samfélag og mér þykir ótrúlega vænt
um bæinn minn og sveitungana. Ég fæ
þar iðulega klapp á bakið og virkilega
gaman að finna hvað fólk tekur vel í
velgengni okkar. Mosfellingar eru líka
duglegir að mæta á tónleika og rífa upp
stemninguna,“ segir Jökull.
Hann kveðst kunna ágætlega við sig
á sviði. „Það kemur allt með reynslunni.
Mér finnst aðallega gaman að fólk komi
til að hlusta og með reynslunni hljótum
við að verða betri og betri.“
Vor í Vaglaskógi er óvænt orðið
vinsælasti sumarsmellur landsins. „Það
var ekki ætlunin að taka lagið þegar
við komum fram í þættinum Skúrnum
á Rás 2 en ég var hás þann daginn og
vildi hvíla röddina með rólegu lagi. Því
slógum við til og Rásar 2-menn vildu
taka upp myndband sem þeir settu inn
á YouTube. Þar vakti lagið mikla athygli
og fór smám saman að feta sig upp vin-
sældarlista,“ segir Jökull, sem árið 2010
gaf út spænsku ballöðuna Otro Día Será
sem hann samdi við texta föður síns
sem er spænskukennari.
„Það lag hefur nú lítið heyrst en ég
held að strákarnir skelli því á fóninn
fyrir svefninn,“ segir Jökull sem talar
spænsku og er undir áhrifum spænskrar
tónlistar í gegnum pabba sinn.
„Lífið er að breytast og það er bara
gott. Ekki vill maður festast í þæginda-
rammanum. Við erum nákvæmlega þar
sem við viljum vera.“ ■ thordis@365.is
ÓVÆNT ATHYGLI
ROKKARI Jökull Júlíusson er maðurinn á bak við röddina í vinsælasta lagi
Íslands þessa dagana; Vori í Vaglaskógi. Hann er rokkari af gamla skólanum.
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2
Afkomendur Sturlaugs Tómassonar
(f. 1837, d. 1920)
Ættarmót og Akureyjarferð júlí 2013
Ættarmót sunnudaginn 21. júlí kl. 15.30 – 18.00
í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg.
Samvera í Dölum og Akureyjaferð helgina á eftir, laugardaginn 27. júlí.
Nánari upplýsingar og skráning á netfangið:
sturlaugur.tomasson@gmail.com, á fésbókarsíðu
„Afkomendur Sturlaugs Tómassonar“ og hjá Sturlu í síma 862 1006,
Hollý í síma 862 1609 og Margréti í síma 864 1466.
Nefndin
Eru flugur, flær eða
maurar að ergja þig
og bíta?
áhrifaríkur
og án
allra
eiturefna.
Allt að
8 tíma
virkni.
Fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hjá N1
www.gengurvel.is