Fréttablaðið - 29.06.2013, Side 35
Sviðstjóri stjórnsýslu- og
fjármálasviðs
Ísafjarðarbær auglýsir lausa stöðu sviðstjóra stjórnsýslu-
og fjármálasviðs bæjarins. Sviðsstjóri stjórnsýslu- og
fjármálasviðs heyrir beint undir Bæjarstjóra, gegnir
skyldum bæjarritara og er staðgengill Bæjarstjóra.
Jafnframt heyrir undir viðkomandi rekstur bæjarskrifstofu,
menningarmál bæjarins og yfirstjórn fjármála.
Leitað er að einstaklingi sem hefur frumkvæði og aðlögunarhæfni
að síbreytilegum aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum.
Mikilvægt er að starfsmaðurinn geti unnið vel innan liðs ásamt
því að vera sjálfstæður í verkefnum sínum þegar þörf er á.
Viðkomandi að vera skipulagður og hafa gott vald á íslenskri
tungu.
Starfs og ábyrgðarsvið:
Ritari bæjarstjórnar og bæjarráðs
Yfirmaður stjórnsýslu og fjármálasviðs bæjarins
Staðgengill Bæjarstjóra
Daglegur rekstur bæjarskrifstofu
Ber ábyrgð á málaflokknum menningarmál
Hæfniskröfur:
Góð færni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og skipulagshæfileikar
Leiðtogahæfileikar
Reynsla af opinberri stjórnsýslu
Háskólamenntun sem nýtist í starfi og framhaldsmenntun
æskileg
Reynsla af fjármálastjórn og rekstri
Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti
Launakjör eru samkomulagsatriði og taka mið af
kjarasamningi BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Skv. bæjarmálasamþykkt Ísafjarðarbæjar ræður bæjarstjórn
sviðstjóra.
Fjármálastjóri
Ísafjarðarbær auglýsir lausa stöðu fjármálastjóra bæjarins.
Fjármálastjóri Ísafjarðarbæjar heyrir undir sviðstjóra-
fjármála og stjórnsýslusviðs bæjarins.
Leitað er að einstaklingi sem hefur metnað til að gera vel í
starfi og sýnir frumkvæði og aðlögunarhæfni að síbreytilegum
aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum. Mikilvægt er að
starfsmaðurinn geti unnið vel innan liðs ásamt því að vera
sjálfstæður í verkefnum sínum þegar þörf er á.
Starfssvið:
Fjárhagsáætlunargerð fyrir Ísafjarðarbæ, fyrirtæki og
stofnanir hans
Uppgjörsvinna, þ.e. ársuppgjör og mánaðarleg
milliuppgjör
Eftirfylgni með bókhaldi, launagreiðslum, fjárhagsáætlun
og innheimtu
Skýrslugerð er viðkemur fjármálum bæjarins
Samskipti við lánastofnanir
Ber ábyrgð á og hefur eftirfylgni með
upplýsingatæknisamningum bæjarins og
hugbúnaðarleyfum
Hæfniskröfur:
Góð færni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og skipulagshæfileikar
Leiðtogahæfileikar
Háskólapróf í Viðskiptafræði eða sambærileg menntun
Framhaldsnám í endurskoðun eða fjármálum kostur
Reynsla af áætlunargerð, bókhaldi og fjármálastjórnun
Launakjör eru samkomulagsatriði og taka mið af
kjarasamningi BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Mannauðsstjóri
Ísafjarðarbær auglýsir lausa stöðu mannauðsstjóra sem er
nýtt starf hjá Ísafjarðarbæ. Um er að ræða framtíðarstarf í
skemmtilegu starfsumhverfi.
Leitað er að einstaklingi sem hefur metnað til að gera vel í
starfi og sýnir frumkvæði og aðlögunarhæfni að síbreytilegum
aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum. Mikilvægt er að
starfsmaðurinn geti unnið vel innan liðs ásamt því að vera
sjálfstæður í verkefnum sínum þegar þörf er á.
Starfssvið:
Að gegna forystu í stefnumótun, skipulagningu og
samhæfingu á sviði mannauðsmála og fylgja eftir
framkvæmd stefnu á því sviði í samvinnu við aðra
stjórnendur.
Ráðningar, móttaka nýrra starfsmanna, starfsþróun,
starfsmannasamtöl, upplýsingamiðlun, kjarasamningar,
samskipti við stéttarfélög, jafnréttismál, ráðgjöf og
þjónusta við starfsmenn og stjórnendur
Mannauðsstjóri heyrir beint undir bæjarstjóra
Færni og aðrir eiginleikar:
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfileikar og metnaður til að ná árangri í starfi
Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Öguð vinnubrögð
Menntunar- og hæfniskröfur:
Góð færni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og skipulagshæfileikar
Geta til að vinna sjálfstætt og í samstarfi með öðrum að
sameiginlegum verkefnum
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, helst á sviði
mannauðsmála eða sambærileg menntun
Meistaragráða, sem nýtist í starfi er æskileg
Haldgóð reynsla af umsjón mannauðsmála, starfsreynsla á
því sviði æskileg
Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar er æskileg.
Reynsla af lausn vandamála
Þekking á kjarasamningum sveitarfélaga er æskileg
Þekking og reynsla úr opinberri stjórnsýslu er æskileg
Góð tölvukunnátta
Ísafjarðarbær auglýsir eftirfarandi
störf laus til umsóknar
Í Ísafjarðarbæ öllum búa um 4000 íbúar í fimm byggðakjörnum. Flateyri,
Hnífsdal, Ísafirði, Suðureyri og Þingeyri.
Í Ísafjarðarbæ er ákaflega blómlegt mannlíf, öflugir tónlistar skólar og
fjölbreyttar íþróttir og menning.
Umsóknir skal senda til: danielj@isafjordur.is
Upplýsingar um starfið veitir Bæjarstjóri, Daníel Jakobsson í síma 820 6827
eða á ofangreint netfang.
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknargögn fyrir öll störfin
Með umsókn þarf að fylgja:
Kynningarbréfi þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gert grein fyrir kostum umsækjanda sem
nýtast í starfinu, helst ekki lengra en ein A4 síða í 10 punkta letri.
Starfsferilskrá (CV)sem er ekki lengri en tvær A4 síður í 10 punkta letri .
Skannað afrit af prófskírteini / prófskírteinum
Yfirlit yfir a.m.k. tvo meðmælendur úr síðustu störfum sem hafa má samband við.
Námsferilskrá
Umsóknafrestur til og með 16. júlí 2013