Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 37
| ATVINNA |
Deildarstjóri Þjónustuvers
Borgun leitar að kraftmiklum einstaklingi með mikla færni í mannlegum samskiptum til að
stýra daglegum rekstri Þjónustuvers. Þjónustuver Borgunar kappkostar að veita viðskiptavinum
sínum framúrskarandi þjónustu allan sólarhringinn og starfar eftir gildunum; vilji, virði og vissa.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á www.borgun.is fyrir 14. júlí nk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rakel Ýr Guðmundsdóttir mannauðsstjóri í síma 560 1561 (ryg@borgun.is).
Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí nk.
Helstu verkefni
Dagleg stýring og rekstur Þjónustuvers
Þátttaka í mótun og framkvæmd þjónustustefnu
Gerð verkferla og eftirfylgni
Samskipti við ytri og innri viðskiptavini
og úrlausn ýmissa verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af stjórnun er skilyrði
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund
Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
Hæfni til að vinna undir álagi og áreiti
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
Actavis Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði
s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is,
undir Störf í boði fyrir 7. júlí nk.
Einungis er tekið á móti umsóknum á heimasíðu Actavis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is.
Sviðsstjóri samskiptasviðs
Actavis á Íslandi
Samskiptasvið ber ábyrgð á innri og ytri upplýsingamiðlun fyrirtækisins, eflingu
fyrirtækjamenningar, vefumsjón, samskiptum við fjölmiðla og samfélagsverkefnum.
Samskiptasvið er hluti af samskiptaneti Actavis samstæðunnar.
Helstu verkefni:
Upplýsingagjöf til starfsmanna og efling
fyrirtækjamenningar
Ritstjórn á innri og ytri vefum Actavis
Samskipti við fjölmiðla
byrgð á ýmsum samfélagsverkefnum sem Actavis
á Íslandi tekur þátt í
átttaka í samskiptaneti samstæðunnar
Skipulagning starfsmannafunda
Stefnumótun og markmiðasetning sviðsins
Við leitum að öflugum og jákvæðum einstaklingi með:
Háskólamenntun á sviði almannatengsla, viðskipta eða
sambærilega menntun; framhaldsmenntun á sviði markaðs-
og kynningarmála og/eða almannatengsla æskileg
Reynslu af markaðs- og kynningarmálum
Reynslu af te tagerð
jög góða íslensku- og enskukunnáttu
jög góða skipulags- og samskiptahæfni
Actavis
er alþjóðlegt
fyrirtæki sem sérhæfir sig
í þróun, framleiðslu og sölu
hágæðasamheitalyfja. Fyrirtækið
er með starfsemi í yfir 60 löndum.
Hjá Actavis á Íslandi starfa
tæplega 800 starfsmenn
á ýmsum sviðum.
Hjá Actavis bjóðum við upp á:
snyrtilegan og öruggan vinnustað
fjölskylduvænt starfsumhverfi
góðan starfsanda
gott mötuneyti
fræðslu og þjálfun
iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni
sem sinna heilsuvernd starfsmanna
árlegan styrk til íþróttaiðkunar
auk fræðslustyrks
öflugt starfsmannafélag
LAUGARDAGUR 29. júní 2013 5