Fréttablaðið - 29.06.2013, Síða 55
KYNNING − AUGLÝSING Ferðir29. JÚNÍ 2013 LAUGARDAGUR 7
FANTASÍA FYRIR BÖRN
Draumar barna rætast í nýju
Fantasíulandi í Disney World í
Flórída. Þar ganga þau beint á
vit ævintýra Litlu hafmeyjunnar
og Fríðu og Dýrsins og eiga
persónuleg samskipti við sögu-
hetjurnar.
Fantasíulandið er vinsælasta
landið í vinsælasta Disney-garði
veraldar og stærð hans á níunda
hektara. Gestir hitta Fríðu fyrir
í koti sínu og Aríel hafmeyju í
helli sínum og passað er upp á
að hvert barn fái sinn tíma.
Það sem stelur senunni í
Fantasíulandi er Lumière, talandi
kertastjakinn úr Fríðu og Dýrinu,
og ein flóknasta sögupersóna
sem Disney hefur skapað í
görðum sínum. Meira að segja
fullorðið fólk missir andlitið af
undrun og Disney segir Lumière
bæði lifandi og raunverulegan.
Disney World er sneisafullt af
þematengdum veiingastöðum
en enginn kemst í hálfkvisti við
Be Our Guest hjá Dýrinu. Gengið
er yfir steinbrú að stórum
járnhliðum og inn í kastalann
þar sem eru þrír matsalir með
handmáluðum skýjabólstrum og
englabörnum í lofti. Fyrir utan
gluggana kyngir niður snjó.
Nýja Fantasíulandið er eins
og kandífloss, sykursætt og
yndislegt. Á næsta ári verða
opnuð enn fleiri ævintýri í nýja
Fantasíulandinu þegar námulest
Dverganna sjö kemst í gagnið.
„Ég er einmitt á leið í útilegu
um helgina og er á fullu í undir-
búningi,“ segir Axel Paul. „Ég mun
nota símann minn mikið, streyma
tónlist, græja gítargrip og texta,
fá upplýsingar um tjaldstæði og
f leira,“ segir hann. „Þess vegna
þarf ég að vera búinn að gera ráð-
stafanir, vera með bílahleðslu-
tæki, hleðslupung og með nóg
gagnamagn.“
Öryggið í fyrirrúmi
„Ég er líka með appið 112 Iceland,
því maður getur aldrei verið of
varkár.“ 112 Iceland er forrit sem
sendir GPS-hnit til Neyðarlínunn-
ar, þó það sé ekki netsamband.
„Það getur munað miklu fyrir
björgunarsveitina, ef eitt-
hvað kemur fyrir.“
Ýmiss konar smáforrit
Hann segist nota ýmis
smáforrit í símanum, til
dæmis Spotify, Google
Music, Google Maps
og Torch, sem er vasa-
ljós. „Eins nota ég sím-
ann til að finna gítar-
nótur og texta á netinu.
Svo hópast fólk bara í
kringum mann ef það kann ekki
textann, símaskjárinn er
alveg tæpar fimm
tom mu r,“ seg ir
hann og hlær.
Axel Paul segir
því símann vera orð-
inn stóran hluta af
því að gera útileguna
örugga og skemmti-
l e g a . „ S v o v æ r i
auðvitað dæmigert að
ég týndi símanum úti í
móa í einhverju kæru-
leysi,“ bætir hann við
hlæjandi.
Nútímaútilegan
Margir telja útilegur eiga að vera frí frá skjánum og afturhvarf til náttúrunnar.
Það er ekki endilega raunin. Axel Paul Gunnarsson, aðstoðarritstjóri
tæknibloggsins simon.is, segir frá ómissandi tækni í útileguna.
Þó margir fari
út í náttúruna
til að losna
við áreiti
tækninnar
nýta sumir
sér hana
til að gera
ferðalagið
fróðlegra og
skemmti-
legra.