Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 56
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 20138
FRELSISEY OPNUÐ Á NÝ
Frelsisey (Liberty Island), sem
staðsett er fyrir utan Manhattan
og hýsir Frelsisstyttuna, verður
opnuð á ný á þjóðhátíðardegi
Bandaríkjamanna, 4. júlí. Þetta
kemur fram á heimasíðu þjóð-
garða New York-ríkis. Eyjunni var
lokað fyrir umferð ferðamanna í
kjölfar eyðilegginga af völdum
fellibylsins Sandy sem skall á
austurströnd Bandaríkjanna í
október á síðasta ári.
Opnun eyjarinnar á
þjóðhátíðar daginn er tákn-
ræn og mikið fagnaðarefni í
Bandaríkjunum. Ferðamenn ættu
einnig að hoppa hæð sína enda
er Frelsisey einn vinsælasti ferða-
mannastaður í New York. Opnað
hefur verið fyrir forsölu á miðum
og segja umsjónarmenn eyjunnar
að þeir renni út eins og heitar
lummur. Búist er við metaðsókn
fyrstu dagana eftir opnun.
Frelsisstyttan er vinsæll
viðkomustaður ferðamanna.
KRÓATÍA VINSÆL MEÐAL FERÐAMANNA
Kaup á króatíska gjaldmiðlinum, kuna, hafa aukist um 50 prósent í Bretlandi. Þessi
mikla aukning kemur mörgum á óvart enda hefur breska pundið hækkað á móti
króatíska gjaldmiðlinum.
Breska fréttasíðan Telegraph greinir frá því að Bretar sæki nú í auknum mæli í að
fara í frí til Króatíu. Mörgum þykir það kynlegt enda er verð á hótelum í löndunum í
kring mun lægra en í Króatíu.
Ástæðan fyrir vinsældum landsins ætti þó að vera augljós þeim sem þangað hafa
farið. Þar er að finna ógrynni af náttúruperlum, enda er ferðaþjónusta stór atvinnu-
vegur í Króatíu. Fjölgun ferðamanna hefur þannig haft góð áhrif á efnahag landsins.
Króatía er í 18. sæti yfir vinsælustu ferðamannalönd heims en misjafnt er eftir
hverju fólk er að leita. Í Króatíu eru margar fallegar strandir með ljósbláum sjó þar
sem sést til sjávarbotns. Margir náttúruunnendur fara þangað til þess að skoða
fallega skóga og fossa sem einkenna landslagið. Heilsulindir landsins eru þekktar um
allan heim. Þá eru króatískar borgir uppfullar af menningu og höfuðborgin, Zagreb,
er vinsæll áfangastaður ferðamanna.
KIRKJUGARÐUR ÞRÆLA Á
MANHATTAN
Mitt í ys og þys New York-
borgar er að finna friðsælan
stað sem nefnist „African Burial
Ground National Monument“.
Þar er minnismerki um fimmtán
þúsund þræla sem grafnir voru
á Manhattan-eyju á sautjándu
og átjándu öld.
Það var árið 1991 sem bygg-
ingaverkamenn fundu grafreit
þræla á neðri hluta Manhattan-
eyju, aðeins fimm til átta metra
undir jörðu. Á svæðinu fundust
yfir 400 kistur frá þeim tíma
þegar New York-borg hýsti flesta
þræla í Bandaríkjunum fyrir utan
Charleston í Suður-Karólínu. Á
17. og 18. öld voru þrælar nærri
fjórðungur af íbúum New York.
Byggt hefur verið minnismerki
á staðnum auk gestamiðstöðvar
þar sem hægt er að fræðast um
sögu afrískra Bandaríkjamanna í
New York.
NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT.
ÞÚ KEMST ÞANGAÐ
MEÐ OKKUR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
Kauptu miða núna á www.flugrutan.is
Alltaf laus sæti.
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
101 Reykjavík
580 5400
Skannaðu strikamerkið
með snjallsímanum og
kynntu þér áætlunina.
REYKJAVÍK KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR
Frí þráðlaus
internettenging
í öllum bílum