Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 60

Fréttablaðið - 29.06.2013, Page 60
29. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 28 Hvað heitir þú fullu nafni? Birna María Unnarsdóttir. Hvað ertu gömul? Sex ára. Hvenær lærðir þú að lesa? Ég kann að lesa Græna hattinn. Hvað er skemmtilegt við bækur? Að hlusta á ævintýri. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi hjá þér? Afa- bókin. Hvers lags bækur þykja þér skemmtilegastar? Fíasól og kannski Skúli skelfir. Hvaða bók lastu síðast og hvernig var hún? Afabókina, hún er skemmtileg, afi var að lesa hana fyrir mig og sagði „litlar stelpur stríða ekki afa sínum,“ sem er vitleysa. Í hvaða hverfi býrð þú? Í Norð- lingaholti en bráðum flyt ég til Vestmannaeyja. Í hvaða skóla gengur þú? Ég er að fara í skólann í Vestmanna- eyjum. Hver eru þín helstu áhugamál? Mér finnst gaman á sundnám- skeiði, fara í útilegu, sumarbústað og til útlanda. Líka út að hjóla. Finnst þér gaman að vera knattspyrnudómari? „Já, því þar gefst mér tækifæri á að vera með í uppáhalds- íþróttinni minni, kynn- ast fullt af nýju fólki og ferðast, sem er eitt af því skemmtilegra sem ég geri. Ég er búinn að ferðast nánast um allt Ísland og hef farið til yfir þrjátíu Evrópulanda.“ Varstu mikið í fótbolta sem strákur? „Ég man varla eftir mér öðruvísi en með fótbolta á tánum þegar ég var strákur. Ég ólst upp á Stokkseyri til fimm- tán ára aldurs og við krakkarnir nýttum hvern einasta grasbala sem við fundum á svæðinu til að spila fótbolta á.“ Spilaðir þú með einhverju liði? „Já, með liðum Stokkseyrar og Eyrarbakka, en eftir að ég flutti til Reykjavíkur tók dómgæslan við.“ Fékkstu verðlaun fyrir fót- bolta? „Mér tókst að krækja mér í tvenn verðlaun. Þegar ég var á eldra ári í 5. flokki varð ég Skarphéðinsmeistari með Stokkseyri og sama ár var ég einnig kosinn besti leikmaður yngri flokka.“ En verðlaun fyrir dómgæslu? „Ég hef margoft unnið til verð- launa sem besti dómari Þróttar í Reykjavík, sem er mitt félag. Eins hef ég verið valinn besti dómari á Íslandi þrisvar, árin 2004, 2006 og 2007.“ Má dómari halda með einhverju liði? „Já, allir dómarar eiga sín lið og halda með þeim. Ég er til dæmis Þróttari. Því má ég ekki dæma hjá Þrótti í meistaraflokkum karla og kvenna.“ Ertu þreyttur eftir leiki? „Já, flesta. Samkvæmt könnun sem gerð var fyrir ensku úrvalsdeild- ina í knattspyrnu árið 2011 hlaupa dóm- arar í kringum ellefu kíló- metra í hverjum leik, heldur meira en þeir leikmenn sem hlaupa lengst. Allir dómarar verða að halda sér í þjálfun. Við byrjum að æfa saman dómararnir í nóvember og erum að þangað til í lok sept- ember næsta ár. Þá fáum við einn mánuð í frí. Landsdómarar á Íslandi eru skyldugir til að fara að minnsta kosti tvisvar í þolpróf á hverju ári.“ Horfir þú mikið á fótbolta? „Ég hef alla tíð horft mikið á fótbolta, aðallega þann íslenska og enska, bæði vegna þess að fótbolti er mín uppáhaldsíþrótt og einnig til að læra af öðrum dómurum.“ Áttu erlent uppáhaldslið? „Ég er búinn að halda með Manchester United síðan ég var krakki.“ Hefurðu dæmt fótboltaleik hjá krökkum? „Ég hef ekki tölu á því hversu marga leiki ég hef dæmt hjá krökkum en þeir eru mjög margir, meðal annars hef ég dæmt á N1-mótinu á Akureyri. Því miður hef ég lítið getað dæmt hjá krökkum undanfarin ár, það er svo mikið að gera hjá mér í dómgæslu í meistara- flokki.“ - gun Dómarar hlaupa enn lengra en leikmenn Garðar Örn Hinriksson er margverðlaunaður knattspyrnudómari og hefur ekki tölu á því hversu marga leiki hann hefur dæmt hjá krökkum. Hann man varla eft ir sér öðruvísi en með fótbolta á tánum. EKKI TJÓIR AÐ DEILA VIÐ DÓMARANN Garðar Örn hefur þrisvar verið valinn besti dómari Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Bókaormur vikunnar Arnar Valur, sex ára, í Stekkjahvammi 13 í Hafnarfirði sendi okkur þessa mynd. Í geimnum Teikningar og texti Bragi Halldórsson 50 „Þetta er nú meira veggskriflið,“ sagði Kata, þar sem þau komu að hlaðinni steingirðingu. „Hér vantar nánast annan hvern stein,“ bætti hún við með fyrirlitningu. „En hann er nú bara að verða gamall,“ sagði Konráð. „Það gerir hann ekki endilega að vondum vegg, bara laslegum,“ bætti hann við. „Það vantar til dæmis ansi marga steina í þetta gat hérna fyrir framan okkur,“ sagði Kata og hélt áfram að úthúða veggnum. Konráð varð að viðurkenna að það vantaði jú ansi marga steina í þetta gat. En við verðum að troða okkur í gegnum það ef við ætlum að komast eitthvað áfram,“ sagði Kata. Spurning hvort það vanti það marga steina að við komumst í gegnum gatið,“ bætti hún við. Hversu marga steina skyldi vanta? Getur þú talið þá? A 20 B 25 D 30 Svar: B

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.