Fréttablaðið - 29.06.2013, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 29.06.2013, Blaðsíða 72
29. júní 2013 LAUGARDAGUR Hún er rosalega ung og á eftir að taka þátt á mörgum heims- meistaramótum. Ásdís Hjálmsdóttir FRJÁLSAR Hlaupakonan Aníta Hinriks dóttir hefur tilkynnt Frjálsíþróttasambandi Íslands að hún ætli sér ekki að taka þátt á heimsmeistaramótinu í frjáls- íþróttum sem fram fer í Moskvu 10.-18. ágúst næstkomandi. Hún vill frekar einbeita sér að heims- meistaramóti 17 ára og yngri og Evrópumeistaramóti 19 ára, en þessi mót fara bæði fram í júlí. Frjálsíþróttasamband Íslands hefur því í staðinn fengið leyfi til að senda spjótkastarann Ásdísi Hjálmsdóttur út til Moskvu. Ásdís var hársbreidd frá því að ná lág- markinu fyrir heimsmeistaramótið í Sollentuna í Svíþjóð á fimmtudag- inn þegar hún kastaði 59,97 metra og var því þremur sentímetrum frá lágmarkinu. „Við höfum tök á því að senda tvo keppendur á heimsmeistara- mótið og fyrst Aníta [Hinriksdótt- ir] tekur þessa ákvörðun gátum við sent Ásdísi Hjálmsdóttur á mótið,“ segir Jónas Egilsson, fram- kvæmdastjóri Frjálsíþróttasam- bands Íslands. „Ég hef nú þegar fengið leyfi hjá Alþjóða frjálsíþróttasambandinu til að senda Ásdísi [Hjálmsdótt- ur] á mótið. Hana vantar ennþá þrjá sentímetra til að ná lágmark- inu en þetta tekur mikla pressu af henni og hún getur því einbeitt sér betur.“ Ásdís Hjálmsdóttir ætlar sér að vera komin í sitt besta form fyrir heimsmeistaramótið. „Ég er að finna mig vel núna og loksins er ég að ná betri tökum á tækninni,“ segir Ásdís Hjálms- dóttir. Flott ákvörðun „Mér finnst þetta mjög skynsam- leg ákvörðun hjá Anítu [Hinriks- dóttur] og ég veit að hún hefur tekið þessa ákvörðun í samráði við þjálfarana sína. Hún er bæði að fara að taka þátt á HM 17 ára og yngri sem og Evrópumeistara- móti 19 ára í júlí og það er í sjálfu sér rosalega mikið fyrir 17 ára stelpu. Að ætla sér að fara á heims- meistaramót einum mánuði síðar er allt of mikið álag, það er bara rosalega erfitt að vera í topp formi allan þennan tíma. Hún er rosa- lega ung og á eftir að taka þátt á mörgum heimsmeistaramótum í framtíðinni. Þetta er bara ofboðs- lega skynsamleg ákvörðun og það segi ég ekki vegna þess að ég er allt í einu komin inn á HM.“ Tók mig í gegn „Mér hefur gengið upp og niður að undanförnu en eftir gott samtal við þjálfarann minn [Terry McHugh], þar sem hann tók mig gjörsamlega í gegn, hefur mér liðið betur og ég finn að þetta er allt að koma. Núna tekur við hjá mér tveggja vikna æfingatímabil og gott að standa sig vel rétt fyrir slík átök til að efla sjálfstraustið. Ég stefni síðan á að vera komin í algjört toppform eftir þann tíma. Strax í kjölfarið mun ég keppa á þremur mótum í júlí.“ Eins og áður segir var Ásdís þremur sentímetrum frá lágmark- inu á heimsmeistaramótið í gær. Hún hefur aftur á mótið fengið keppnisrétt á mótið. „Mér var tilkynnt á fimmtu- daginn, rétt áður en ég átti að keppa í Svíþjóð, að Aníta [Hin- riksdóttir] myndi ekki fara á heimsmeistaramótið og að ég væri komin inn. Það var því aldrei nein pressa á mér. Það hafði samt sem áður lítil áhrif á mig, þar sem ég hafði ákveðið að setja enga pressu á mig á fimmtudaginn. Takmarkið var bara að laga ákveðna hluti í tækninni og byggja svo ofan á það.“ Dísilvélin „Það tekur mig oft þó nokkuð langan tíma að komast á skrið í spjótinu. Ég er eins konar dísilvél og oftast hef ég tryggt mig seint inn á stórmót. Það er einfaldlega ekki hægt að vera í toppformi í marga mánuði og það snýst allt um að toppa á réttum tíma í þessari íþrótt. Ef maður er of þreyttur eða illa upplagður kemur það bara niður á frammistöðunni. Ég er í þyngri æfingum núna til að geta slakað á í nokkrar vikur fyrir HM svo ég verði úthvíld fyrir mótið.“ stefanp@frettabladid.is Dísilvélin fer á HM í Moskvu Ásdís Hjálmsdóttir verður á meðal þátttakenda á heimsmeistaramótinu í frjálsum. Hin 17 ára Aníta Hinriksdóttir einbeitir sér að öðrum mótum. TOPPFORMI Ásdís Hjálmsdóttir verður meðal þátttakenda á heimsmeistaramótinu í Moskvu sem fram fer í ágúst. NORDICPHOTOS/AFP Starfsemi ESH 2012 Allar fjárhæðir í milljónum króna Breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris 31.12 2012 2011 Samtals Samtals Iðgjöld 287 211 Lífeyrir -329 -297 Fjárfestingartekjur 267 65 Fjárfestingargjöld -15 -9 Rekstrarkostnaður -22 -13 Hækkun/lækkun á hreinni eign á árinu 189 -45 Hrein eign frá fyrra ári 1.785 1.830 Hrein eign til greiðslu lífeyris 1.974 1.785 Efnahagsreikningur Verðbréf með breytilegum tekjum 471 602 Verðbréf með föstum tekjum 930 794 Veðlán 268 270 Kröfur 133 21 Aðrar fjárfestingar 14 14 Aðrar eignir 194 106 Skuldir -37 -23 Hrein eign til greiðslu lífeyris 1.974 1.785 Kennitölur Nafn ávöxtun 13,1% 2,3% Hrein raunávöxtun 8,2% -2,8% Hrein raunávöxtun – 5ára meðaltal -6% -7,2% Fjöldi sjóðfélaga 134 136 Fjöldi lífeyrisþega 283 272 Rekstrarkostnaður í % af eignum 1,1% 0,8% Eignir í íslenskum krónum í % 79,2% 70,3% Eignir í erlendum gjaldmiðlum í % 20,8% 29,7% Eign umfram heildarskuldbindingar í % -80,3% -79,8% Eign umfram áfallnar skuldbindingar í % -82,2% -82,3% Birt með fyrirvara um prentvillur Hægt er að sjá ársreikning ESH 2012 í heild sinni á heimasíðu LSS: www.lss.is Stjórn og framkvæmdastjóri Í stjórn Eftirlaunasjóðsins eru Fjölnir Sæmundsson, stjórnarformaður, Haraldur Eggertsson og Þórdís Bjarnadóttir. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jón G. Kristjánsson Aðsetur sjóðsins er hjá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga, Sigtúni 42, 105 Reykjavík Sími 540 0700 lss@lss.is - www.lss.is Eftirlaunasjóður starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.