Fréttablaðið - 29.08.2013, Side 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
22
TEKJUHÆSTSöngkonan Madonna er launahæsta stórstjarna
ársins 2013 eftir því sem tímaritið Forbes
greinir frá. Talið er að laun hennar fyrir árið
nemi 80 milljónum punda. Madonna ýtir með
þessu Steven Spielberg úr efsta sætinu.
V inkonurnar Rannveig Guðmunds-dóttir, fyrrverandi alþingismaður, og Hrefna Hagalín áttu notalega stund á Heilsuhóteli Íslands á síðasta ári. Þær höfðu lengi stefnt á að gera eitthvað skemmtilegt saman og eftir að hafa rætt málin komust þær að því að báðar höfðu þær lengi viljað heimsækja Heilsuhótelið. Rannveig segist lengi hafa haft mikinn áhuga á hollu mataræði og raunar öllu því sem hefur áhrif á og viðheldur góðri heilsu. „Við ákváðum því að skella okkur saman vinkonurnar í tvær vikur og ég get svo sannarlega mælt með dvölinni þar. Það er líka alveg frábært að fara með vinkonu sinni á svona stað. Við vorum saman í herbergi og urðum gömlu æsku-vinkonurnar enn á ný. Við spjölluðum, æfðum, skipulögðum okkur og áttum svo skemmtilegar stundir saman.“Að sögn Rannveigar var aðstaðan öll til fyrirmyndar og starfsfólkið frábært. „Einnig má nefna að maturinn var virki-lega góður en hann byggðist eingöngu á grænmeti og ávöxtum. Síðan er mikil hreyfing og líkamsrækt í boði en gestir stýra því sjálfir hvað þeir velja úr dag-skránni. Hún samanstendur af útiveru bæði innan svæðis og daglegum göngu-ferðum í nágrannabæjunum, einnig af líkams rækt, góðum matf ð
FRÁBÆR DVÖL FYRIR VINKONURNARHEILSUHÓTEL ÍSLANDS KYNNIR Frábær aðstaða og gott starfsfólk býður
gesti velkomna í fallegt umhverfi á Reykjanesi.
HUGSAR UM HEILSUNA „Við vorum með væntingar fyrir fram en dvölin var
framar öllum væntingum okkar,“ segir Rannveig Guðmundsdóttir, fyrrverandi
alþingismaður.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
laxdal.is
DÚNÚLPUR
stuttar
og
siðar
Vertu vinur á
Facebook
Skoðið
Yfirhafnir
TÆKIFÆRISGJAFIRTILBOÐ
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
pHnífa aratöskur – 12 manna
14 tegundirVerð frá kr. 24.990
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
29. ágúst 2013
202. tölublað 13. árgangur
Allir miðar ógiltir
Samtökin ´78 undrast ákvörðun
biskups Íslands að halda erindi á
Hátíð vonar. Allir miðar sem pantaðir
voru á hátíðina hafa verið ógiltir og
þarf að panta upp á nýtt. 6
Bleikjueldi á Sogni Fangar stunda
bleikjueldi á Sogni í Ölfusi. Byrjaði í
fyrrasumar segir forstöðumaður Litla-
Hrauns. 2
Söngvasögum safnað Forstöðu-
maður Tónlistarsafns Íslands gerir
víðreist til að taka upp frásagnir um
tónlistarmenningu. 4
Vangaveltur um svefn Norskur
læknir segir börn ekki alltaf þurfa að
sofa jafnmikið og foreldrar halda. 18
MENNING Hallfríður Þóra og banda-
ríski tónlistarmaðurinn Pál Vetika
sömdu lag í gegnum Facebook. 54
SPORT Chuck Chijindu hjá Þór var
án dvalarleyfis í tólf vikur í sumar og
spilaði þann tíma launalaust. 46
FJARSKIPTI Nýjar tölur um net notkun
Íslendinga leiða í ljós gjörbreytt
landslag fjarskipta hér á landi,
sem sér ekki fyrir endann á. Net-
vafur landans færist hratt úr hefð-
bundnum tölvum í snjallsíma og
spjaldtölvur.
Gagnamagnsnotkun í farsíma-
kerfum hjá Símanum og Vodafone
hefur tugfaldast síðustu ár. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Símanum
hefur gagnamagn sem hlaðið
er niður í snjallsíma rúmlega
50-faldast frá júní 2010 fram til júní
í ár, og samkvæmt tölum frá Voda-
fone hefur aukningin verið 57-föld
frá upphafi árs 2009 fram til júlí í
ár.
„Hér hjá Símanum sáum við
fyrstu iPhone-símana á kerfunum
um mitt ár 2007,“ segir Sævar Freyr
Þráinsson, forstjóri Símans, í sam-
tali við Fréttablaðið. „Þeir ruddu
braut snjallsímanna á markaði. Nú
er svo komið að snjallsímar eru
um helmingur allra á farsímaneti
Símans og í júlí voru átta af hverj-
um tíu seldum símum í verslunum
Símans snjallsímar.“
Í tilkynningu frá Vodafone segir
að aukning gagnaflutninga í far-
símakerfi milli júní og júlí síðast-
liðins hafi numið 21,5%.
Hrannar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs Voda-
fone, segir að viðbúið sé að fram-
hald verði á þessari þróun.
„Enda eru notkunarmöguleik-
ar snjalltækjanna alltaf að aukast.
Neytendur eru fljótir að tileinka sér
það, en einnig felast ótal tækifæri
í þessum breytta veruleika fyrir
fyrirtæki til að bæta sína þjónustu
á hagkvæman hátt.“
Notkun spjaldtölva hefur einnig
aukist stórum frá því að þær komu
fram fyrir nokkrum misserum
og gagnamagnið sem spjaldtölvu-
notendur í kerfi Símans hlaða niður
hefur næstum því 400-faldast frá
júní 2010 til júní í ár.
„Við erum stödd í miðri fjar-
skiptabyltingu,“ segir Sævar og
bætir því við að fáir hafi senni-
lega talið þessa þróun vera mögu-
lega. „Netið verður sífellt meiri
afþreyingarmiðill. Þangað sækjum
við orðið svo margt; sjónvarpið er
komið á netið, tónlistin er á netinu,
fjölskyldualbúmið er á netinu og
samskipti stórfjölskyldna eru komin
á samfélagsmiðla. Og við getum
notið þessa alls með símtækjunum.“
Þessa þróun segir Sævar kalla á
aukna fjárfestingu og vegna þessa
verji Síminn hundruðum milljóna
króna í fjárfestingar á hverju ári.
- þj
Netvafrið færist í far-
síma og spjaldtölvur
Samkvæmt tölum frá Símanum og Vodafone hafa gagnaflutningar í snjallsíma og
spjaldtölvur meira en fimmtíufaldast á fáeinum misserum. Aukningin endurspegl-
ar nýjungar í tækjabúnaði og nýja möguleika í notkun netsins við leik og störf.
Við erum
stödd í miðri
fjarskipta-
byltingu.
Sævar Freyr Þráins-
son, forstjóri Símans
FULLNÆGJAND
I BÓK
SKÓLATILBOÐ !
80 GERÐIR AF
FARTÖLVUM
FÓLK „Ég er ein
af níu keppend-
um í úrslitum
og eina stúlkan
í hópnum. Það
var eins í fyrra,
þá var ég eina
stelpan í fimm
manna hópi,“
segir Helga
Guðmunds-
dóttir, meistara-
nemi í tölvunarfræði við Háskól-
ann í Reykjavík og keppandi í
Hakkarakeppni HR sem fram fer
á morgun. Keppnin er haldin í
tengslum við ráðstefnuna Nordic
Security Conference. - sm / sjá síðu 54
Háskólinn í Reykjavík:
Eina stelpan í
hakkarakeppni
HELGA GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
SKOÐUN Flugvallarsvæðið snertir
alla landsmenn, skrifar Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir. 23
Bolungarvík 8° SSV 2
Akureyri 11° SV 7
Egilsstaðir 15° SSV 3
Kirkjubæjarkl. 8° NA 4
Reykjavík 12° S 7
Best NA-til Í dag ríkja áfram suðlægar
áttir, yfirleitt 3-8 m/s en hvassara við
SA-ströndina. Rigning vestantil og síðar
sunnanlands en bjart NA-til. 4
LOGNIÐ Á UNDAN STORMINUM Oddgeir Sæmundsson, Karl Emil Jónsson og Magnús H. Gunnarsson fengu sér sundsprett í Jökulsá á Brú í góða veðrinu í gær.
„Þetta var kalt en frískandi,“ segir Oddgeir um sundsprettinn. Allir eru þeir félagar í Hjálparsveit skáta í Kópavogi og hafa í hálendisgæslu síðustu daga farið um og gert við
rafstöðvar og fest niður fjarskiptabúnað vegna illviðrisins sem spáð hefur verið um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM