Fréttablaðið - 29.08.2013, Side 4
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
DÓMSMÁL Fjórir Íslendingar eru
meðal þeirra sjö sakborninga sem
nú eru fyrir héraðsdómi í Kaup-
mannahöfn, ákærðir um aðild að
smyglhring.
Hópurinn var ákærður fyrir að
flytja um 70 kíló af amfetamíni frá
Hollandi til Danmerkur í þremur
bílferðum á árunum 2011 og 2012.
Málið var upplýst í samvinnu lög-
reglu í Danmörku, Noregi, Svíþjóð
og á Íslandi.
Þrír Íslendingar hafa þegar
játað aðild að brotunum og hlotið
dóma. Þeirra á meðal er Guðmund-
ur Ingi Þóroddsson, sem var höfuð-
paurinn í málinu, sem fékk tólf
ára dóm. Guðmundur stóð frammi
fyrir fjórtán ára dómi, en refsing-
in var stytt um tvö ár vegna þess
að hann gekkst við sínum brotum
og sagði til annarra sakborninga.
Hinir tveir, Heimir Sigurðsson og
Sturla Þórhallsson, fengu tíu ára
dóm hvor.
Íslendingarnir fjórir, sem nú
eru fyrir dómi, eru á aldrinum 22
til 39 ára. Þeir eru meðal annars
ákærðir fyrir að hafa farið með í
smyglferðir og flutt hátt í 50 kíló
af amfetamíni í tveimur bílferðum
frá Hollandi til Danmerkur, auk
þess sem tveir þeirra eru einn-
ig ákærðir fyrir að hafa haft um
2.000 e-töflur í fórum sínum.
Auk þeirra eru þrír Danir
ákærðir fyrir aðild að málunum
sem um ræðir og auk þess verður
að minnsta kosti einn maður færð-
ur fyrir rétt í Stavanger í Noregi.
Áætlað er að aðalmeðferðin
standi fram til 16. september. - þj
Sakaðir um aðild að smyglhring sem flutti amfetamín frá Hollandi til Danmerkur:
Fjórir Íslendingar fyrir rétti í Danmörku
VANDLEGA FALIÐ Fjórir Íslendingar
eru nú fyrir rétti í Héraðsdómi Kaup-
mannahafnar fyrir aðild að smyglhring
sem var upprættur í fyrra. Þessi mynd
sýnir hve vel fíkniefnin voru falin.
DÓMSMÁL Aðalmeðferð fer fram
í morðmáli gegn Friðriki Brynj-
ari Friðrikssyni í Héraðsdómi
Austurlands á morgun. Honum er
gefið að sök að hafa orðið manni
að bana á heimili hans á Egils-
stöðum.
Hann bjó í sama húsi og hinn
látni, karlmaður á sjötugsaldri,
sem var stunginn til bana á heim-
ili sínu aðfaranótt 7. maí síðast-
liðinn.
Friðrik hefur borið fyrir sig
minnisleysi, en hann mun hafa
verið drukkinn kvöldið sem
atvikið átti sér stað. - vg
Réttað vegna morðs:
Morðréttarhöld
á Egilsstöðum
MORÐ Á EGILSSTÖÐUM Friðrik Brynj-
ar leiddur fyrir dómara fyrr á árinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR GUNNARSSON
MENNING Það er ekki laust við að manni verði hugs-
að til Árna Magnússonar eða Jón Leifs þegar Bjarki
Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns
Íslands, greinir frá verkefninu sem hann hefur á
sínum höndum.
Hann mun fara bæja á milli í öllum héruðum
landsins, eins og þessir sögufrægu menn, en þó
ekki til að safna handritum í hirslum eða stefjum
úr barka þjóðarinnar heldur eitthvað þar mitt á
milli. „Ég mun fara út um allt land og finna þar, í
samvinnu við heimamenn, fólk sem getur sagt mér
hvaðeina af söng- og tónlistarmenningu sinnar
heimabyggðar. Þannig að ég ætla bara fá söguna
úr héraði inn á myndband og gera henni landanum
aðgengilega,“ útskýrir Bjarki.
Upptökurnar verða snurfusaðar og birtar á
Ísmus-gagnagrunninum en þar er fyrir mikill
menningararfur því Bjarki og Jón Hrólfur Sigur-
jónsson, verkefnastjóri á Tónlistarsafninu, eru
búnir að setja þar inn á bilinu 40 til 50 þúsund
hljómupptökur sem voru í vörslu Árnastofnunar.
Þær upptökur eru afrakstur viðtala sem starfs-
menn Árnastofnunar tóku á sjöunda og áttunda ára-
tug síðustu aldar en einnig eru þar eldri upptökur.
Bjarki hefur þegar hafist handa og hefur til
dæmis króað af góða sagnamenn úr Borgarfirði.
„Þeir sögðu mér til dæmis að um miðja síðustu öld,
þegar tímafrekt og örðugt gat verið að fara á milli
bæja og sveitasíminn kannski í ólagi, þá gripu tón-
listarmenn til þess ráðs að boða til kóræfinga með
því að blikka ljósum á bæjum sínum. Þannig að ef
það voru blikkandi ljós þá var kóræfing í vændum.“
Það er því ljóst að blikkandi ljós hafa komið við tón-
listarsögu löngu áður en dillandi diskóið kom til.
Þegar næsta sumri tekur að halla vonast Bjarki til
að vera búinn að fanga söngvasöguna úr héraði.
Í lokin ákvað blaðamaður að gera Bjarka erfitt
fyrir og spyrja hvaða upptöku hann mundi velja ef
hann ætti að bjarga einni frá glötun. „Ja, ef á að
syngja yfir öllum upptökunum er þá ekki best að
bjarga jarðarfarasálminum Allt eins og blómstr-
ið eina sem Guðmundur Ingimundarson á Borg á
Mýrum söng inn á band. Eða nei, væri ekki betra að
bjarga upptökunni þar sem hann syngur Upp, upp
mín sál, það veitir ekki af ef maður á að hafa svona
val á samviskunni. Þetta er upptaka frá 1903, best
að halda henni til haga.“ jse@frettabladid.is
Tínir söngvasögur í
héruðum landsins
Forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands gerir víðreist til að taka upp á myndband frá-
sögur fólks í héruðum landsins um tónlistarmenningu sinnar heimabyggðar. Safnið
hefur gert upptökur sem spanna nær alla síðustu öld aðgengilegar almenningi.
VIÐ VIÐTÆKIÐ Hér eru þeir Bjarki og Jón Hrólfur við við-
tækið, en brátt mun Bjarki leggja land undir fót til að safna
sögum og fá jafnvel fólk til að syngja í héruðum landsins. Allt
verður síðan gert aðgengilegt á Ísmús-vefnum sem geymir nú
þegar mikil menningarverðmæti. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Á ismus.is eru á milli 40 til 50 þúsund upptökur.
Nokkrar þeirra eru frá upphafi síðustu aldar. Til
dæmis nokkrar frá 1903 til 1912 þar sem Guðmundur
Ingimundarson, söngvari góður frá Borg á Mýrum,
heyrist syngja sálma og söngva.
Einnig er þar mikið um stuttar sögur á vefnum.
Eins geta þeir sem hafa gaman af kvæðum stytt sér
stundir á vefnum.
Upptökur þar sem Jón Stefánsson frá Möðrudal
syngur og leikur á orgelið eru einnig algjör gersemi.
Hlýða má á það á eftirfarandi slóð:
http://www.ismus.is/i/audio/id-1000006
Úr hljóðbanka Ísmúsar STJÓRNSÝSLA
Skipaður skrifstofustjóri
Jóhann Guðmundsson var í dag skip-
aður skrifstofustjóri sjávarútvegs og
fiskeldis. Hann hefur verið settur skrif-
stofustjóri þar síðan í vor. Jóhann hefur
unnið í stjórnarráðinu í samanlagt 28 ár.
Senda SMS til íbúa
Orkuveita Reykjavíkur og Neyðarlínan
112 hafa samið um að 112 sendi SMS-
boð þegar bilanir verða í veitukerfum
Orkuveitunnar. Orkuveitan vill með
þessu tryggja sem kostur er að íbúar
fái sem fyrst upplýsingar þegar lokað
er fyrir vatn eða rafmagn því við þær
aðstæður getur skapast hætta. Til að
neyðarþjónustan virki er mikilvægt að
viðskiptavinir hafi númer sín skráð.
SVÍÞJÓÐ, AP Skólayfirvöld í Sví-
þjóð hafa lokað Lundsberg-heima-
vistarskólanum tíma bundið
vegna ofbeldis nemenda, sem
þótti vera gengið úr hófi fram.
Fréttir höfðu borist af alvar-
legum tilvikum tengdum einelti
og kúgun, þar á meðal hafði nem-
andi hlotið alvarleg brunasár.
Lundsberg er einn þriggja
heimavistarskóla í Svíþjóð, og sá
elsti þeirra, stofnaður árið 1896.
Hann er í Storfors, litlu þorpi í
miðvesturhluta landsins rétt hjá
Karlstad. - gb
Skólayfirvöld í Svíþjóð:
Skóla var lokað
vegna ofbeldis
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
JBL Cinema SB200
59.990 VERÐ
HEIMABÍÓ Í EINUM HÁTALARA
HELSTU KOSTIR
• Getur notað sömu fjarstýringu og sjónvarpið
• Harman Display Surround tækni
• Þráðlaus Bluetooth tenging
• Einfalt í uppsetningu
13,5 prósent þjóðar-innar voru veik í júlí
síðastliðnum samkvæmt könnun
Capacent.
Þegar heilsa er metin er fólk spurt
um líðan daginn áður.
Mest hafa 23% þjóðarinnar verið
veik síðan mælingar hófust, en það
var í september árið 2011.
*Byggt á upplýsingum á heimasíðu Capacent.
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
10-18 m/s.
RIGNING V-TIL Í dag verður rigning vestanlands, úrkomusvæðið færir sig austur
á bóginn með rigningu sunnantil síðdegis og það þykknar smám saman upp
austanlands. Á morgun verður töluverð úrkoma, einkum á Vestfjörðum og NV-til.
8°
2
m/s
9°
3
m/s
12°
7
m/s
11°
9
m/s
Á morgun
Víða 10-20 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
10°
6°
9°
5°
5°
Alicante
Aþena
Basel
28°
34°
26°
Berlín
Billund
Frankfurt
23°
19°
24°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
22°
20°
20°
Las Palmas
London
Mallorca
26°
23°
29°
New York
Orlando
Ósló
28°
33°
20°
París
San Francisco
Stokkhólmur
24°
21°
18°
8°
4
m/s
12°
11
m/s
15°
3
m/s
13°
2
m/s
11°
7
m/s
8°
2
m/s
6°
8
m/s
7°
4°
8°
10°
8°
HAFNARFJÖRÐUR „Foreldraráði
hafa borist tilkynningar um að
börn virðist hrædd við starfs-
menn Strætó og leita frekar til
unglinga sem eru í vagninum
eftir leiðbeiningum heldur en til
starfsmanna,“ sagði foreldraráð
Hafnarfjarðar í bréfi til bæjar-
yfirvalda í vor. Í svari bæjarins
sem lagt var fram í gær segir
mjög lítið hafi borist af kvört-
unum vegna umræddra þjónustu-
fulltrúa sem sitja fremst í vögn-
unum. Fundin hafi verið leið til
að bæta úr þeim kvörtunum sem
bárust. - gar
Foreldraráð Hafnarfjarðar:
Börnin segjast
hrædd í strætó
STRÆTISVAGN Þjónustufulltrúar
eru sagðir hafa skotið börnum skelk í
bringu.