Fréttablaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 6
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu
byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
ÞJÓÐKIRKJAN „Það eru mikil von-
brigði að hún hafi ákveðið þetta,“
segir Anna Pála Sverrisdóttir,
formaður Samtakanna ´78, um
ákvörðun Agnesar M. Sigurðar-
dóttur, biskups Íslands, um að
halda erindi á Hátíð vonar sem
verður haldin í Laugardalshöll í
lok september. Aðalræðu maður
hátíðarinnar er predikarinn
Franklin Graham en sá er afar
umdeildur, bæði vegna ummæla
sinna um múslima sem og afstöðu
hans til samkynhneigðra.
Biskupsstofa baðst afsökunar
á því að hafa auglýst hátíðina á
vef sínum, kirkjan.is, skömmu
fyrir Hinsegin daga sem fram
fóru í Reykjavík fyrr í mán-
uðinum. Meðal annars sagði í til-
kynningu frá embættinu: „Það
var ekki ætlunin með birtingu
hennar að varpa neinum skugga
á Hinsegin daga eða taka undir
orð Franklins Graham um sam-
kynhneigða og hjónaband þeirra.
Við biðjumst afsökunar á þessu.“
Anna Pála segir ákvörðun
biskups vonbrigði, ekki síst í
ljósi þess að hún staldraði við og
íhugaði málið, „og það réttilega,“
bætir Anna Pála við og segir að
það sé eitt að taka þátt í sam-
komu án þess að vita um sam-
hengi hennar eða hver stjarna
hátíðarinnar er, og annað að taka
ákvörðun um að ávarpa fund vit-
andi að þar sé maður sem miðli
neikvæðum boðskap um sam-
kynhneigða. „Mér finnst rök-
stuðningurinn sem hún færir
fyrir þessari ákvörðun, að hún
taki samstarf með kristnum
söfnuðum fram yfir það að taka
skýra afstöðu gegn hatursorð-
ræðu ofsótts minnihlutahóps,
lýsa allt öðru
en kristilegum
kærleika,“ segir
Anna Pála.
Hú n seg i r
samtökin hafa
fengið gríðar-
lega sterk við-
brögð vegna við-
burðarins og að
það komi vel til
greina að mót-
mæla hátíðinni
með einhverju
móti þegar nær
dregur.
Franklin er
ekki aðeins umdeildur vegna
sjónarmiða sinna gagnvart sam-
kynhneigðum, heldur hefur hann
talað harkalega gegn múslimum.
Meðal annars hefur hann sagt
íslam „ill og andstyggileg trúar-
brögð“.
Sverrir Agnarsson, formaður
Félags múslíma á Íslandi, segir
Franklin hluta af iðnvæddri
íslam fóbíu, en hann virði þó
sjónar mið allra, þótt hann sé ekki
sammála þeim.
„Ég er mikill stuðningsmaður
málfrelsis og vil helst ekki skipta
mér af því sem biskup Íslands
gerir, en persónulega myndi ég
ekki vilja vera í sama húsi og
þessi maður,“ segir Sverrir um
málflutning Franklins Graham.
valurg@365.is
Vill helst ekki vera í
sama húsi og Graham
Samtökin 7́8 undrast ákvörðun biskups Íslands að halda erindi á Hátíð vonar.
Formaður Félags múslíma á Íslandi segist virða skoðanir þeirra sem vilja sækja há-
tíðina, en persónulega vilji hann helst ekki vera í sama húsi og Franklin Graham.
SVERRIR
AGNARS SON For-
maður félags mús-
líma á Íslandi seg-
ist virða málfrelsi
en ekki kæra sig
mikið um félags-
skap Franklins
Graham.
FRANKLIN GRA-
HAM Predikar-
inn mun koma
hingað til lands í
lok september.
■ Skömmu eftir árásirnar á tvíburaturnana árið 2001
sagði Franklin að íslam væri „mjög ill og andstyggileg
trúarbrögð“.
■ Árið 2009 sagði hann í samtali við CNN um múslíma:
„Þú mátt ekki berja konuna þína. Þú mátt ekki myrða
börnin þín ef þig grunar að þau hafi framið hjúskapar-
brot, en það er það sem þeir gera í þessum löndum.“
■ Skömmu eftir að Barack Obama sagðist ekki mót-
fallinn hjónaböndum samkynhneigðra í maí á síðasta
ári sagði Franklin í fréttatilkynningu: „Það er ekki
forsetans, skoðanakannana eða stjórnvalda að skil-
greina hjónabandið. Það var skilgreint fyrir löngu og
breytingar á lögum eða reglum hvað það varðar breyta
aldrei skilgreiningu guðs á hjónabandinu. Þetta er
sorgardagur fyrir Bandaríkin. Megi guð hjálpa okkur
öllum.“
„Það var nú aðallega það að ég var búin að lofa þessu
og vildi standa við loforðið, eins og ég er alin upp við,“
segir Agnes M. Sigurðardóttir biskup, spurð um hvað réði
úrslitum þegar hún ákvað að taka þátt í Hátíð vonar eftir
að hafa tekið sér góðan umhugsunarfrest.
Hún segist hafa reynt að koma því skýrt til skila að
kirkjan standi heilshugar með réttindabaráttu hinsegin
fólks og muni hvergi hvika frá því. „Vissulega getur það
verið viss yfirlýsing að mæta ekki, en að mæta er líka
yfirlýsing því þá fær maður tækifæri til að tala um hlut-
ina og segja hug sinn.“
Tækifæri til að segja hug sinn
AGNES M. SIG-
URÐARDÓTTIR
Umdeild ummæli Franklins
1. Hversu margir eru nú skráðir í Há-
skóla Íslands?
2. Hvar og hvenær voru Dýrin í Hálsa-
skógi frumsýnd?
3. Hvað heitir forstjóri Microsoft?
SVÖR
1. Tæplega þrettán þúsund.
2. Í Þjóðleikhúsinu árið 1962.
3. Steve Ballmer.
STJÓRNMÁL „Meirihlutinn er gjarn-
an með fagurgala um endurvinnslu
í ræðu og riti en þegar til kastanna
kemur er aukinni endurvinnslu
hafnað,“ segja sjálfstæðismenn í
bókun í umhverfis- og skipulags-
ráði Reykjavíkur.
Bókunina gerðu sjálfstæðismenn
er þeir greiddu atkvæði gegn því að
Gámaþjónustunni yrði synjað um
leyfi til að safna lífrænum úrgangi
frá heimilum fólks í borginni. Full-
trúar meirihluta Besta flokksins
og Samfylkingarinnar, auk full-
trúa Vinstri grænna, sem synjuðu
Gámaþjónustunni um leyfið, segja
einkafyrirtæki hingað til hafa haft
starfsleyfi til að sækja þurr endur-
vinnsluefni til heimila. Fyrirkomu-
lag varðandi lífrænan úrgang og
blandaðan heimilisúrgang sé ann-
ars eðlis. „Þar er um grunnþjónustu
að ræða. Við teljum að henni sé best
fyrir komið hjá sveitarfélögunum,
enda hafa þau lögbundnar skyldur
á þessu sviði,“ bókuðu fulltrúarnir.
Sjálfstæðismenn segja að í stað
þess að fagna því að einkafyrirtæki
bjóði fleiri flokka til endurvinnslu
en borgin sé þeim mætt með mikilli
tortryggni í umhverfis- og skipu-
lagsráði. - gar
Sjálfstæðismenn segja meirihlutann í borginni tortryggja einkafyrirtæki:
Meinuð söfnun lífræns úrgangs
PÁLL HJALTASON JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
Allir miðar sem pantaðir voru á Hátíð vonar hafa verið ógiltir. Í tölvupósti
til eigenda miða kemur fram að þetta hafi verið gert vegna „misnotkunar
ýmissa aðila á miðasölu hátíðarinnar“. Miðaeigendur eru beðnir afsökunar og
þeir sem pantað hafi í „góðum hug“ beðnir að hafa samband við skrifstofu
Hátíðar vonar. „Það var að ósk okkar, aðstandenda hátíðarinnar að þetta var
gert,“ segir Ragnar Gunnarsson framkvæmdarstjóri Hátíðar vonar á Íslandi.
„Það voru rúmlega 4.000 miðar sem fóru á þessum tveimur dögum sem opið
var fyrir „miðasöluna“. Meðal annars voru tveir einstaklingar sem virðast hafa
komist fram hjá kerfinu og náðu að panta um 1.400 miða.“
Allir miðar á hátíðina hafa verið ógiltir
HJÁLPARSTARF Rauði krossinn á
Íslandi hefur hafið söfnun fyrir
neyðaraðstoð í Sýrlandi og fyrir
sýrlenska flóttamenn.
Unnið er að því að setja upp
fullkomið tjaldsjúkrahús í flótta-
mannabúðum við landamæri Sýr-
lands í norðurhluta Jórdaníu.
Hægt er að styrkja hjálpar-
starfið um 1.500 krónur með því
að hringja í söfnunarsímann 904-
1500. Þá er hægt að leggja söfn-
uninni lið á vef Rauða krossins,
raudikrossinn.is. - hrs
Brugðist við sýrlenskri neyð:
Safna til hjálp-
ar flóttafólki
VEISTU SVARIÐ?