Fréttablaðið - 29.08.2013, Qupperneq 8
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
7
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM
EYMUNDSSON UM LAND ALLT
1 The Racketeer John Grisham
The Lost Boy - Camilla Läckberg
The Fault in Our Stars - John Green
The Casual Vacancy - J.K. Rowling
The Bat - Jo Nesbø
City of Bones - Cassandra Clare
The Jewels of Paradise - Donna Leon
Winter of the World - Ken Follett
The Perks of Being a Wallflower -
Stephen Chbosky
Looking for Alaska - John Green
ERLENDAR
KILJUR
VIKA 35 2013
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
2
3
4
5
6
7
8
9
10
BETRA START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
12
10 Exide rafgeymarnir fást hjá:
Save the Children á Íslandi
SVEITARSTJÓRNARMÁL Hafnarstjórn
Hafnarfjarðar segir mistök gerð í
aðalskipulagi þegar upplandi hafn-
arinnar var breytt í svæði til íbúa-
byggðar, verslunar og þjónustu.
Að sögn hafnarstjórnarinnar er
svæðið skilgreint sem hafnarsvæði
í reglugerð. Engin ákvörðun um
að breyta notkun þess hafi verið
bókuð í skipulags- og byggingaráði,
bæjarráði eða bæjarstjórn. „Það
er skoðun hafnarstjórnar að lífs-
spursmál sé fyrir Hafnarfjarðar-
höfn að hafa þetta þróunarsvæði
í stað þess að loka höfnina af með
íbúðabyggð,“ segir hafnar stjórnin
í rökum sínum. „Svæðið mætti
þróa til hafnsækinnar ferðaþjón-
ustu, svo sem með byggingu gisti-
rýmis, veitingareksturs eða versl-
unar með vörur tengdar bátum
og veiðum. Einnig mætti hugsa
sér aðstöðu til móttöku farþega
skemmtiferðaskipa sem og ann-
arra gesta, sérstaklega tengt hafn-
sækinni ferðaþjónustu, hvalaskoð-
un, sjóstangaveiði, fuglaskoðun og
fleira,“ segir hafnarstjórnin. - gar
Mistök í gerð aðalskipulags sögð geta heft þróun Hafnarfjarðarhafnar:
Vilja endurheimta hafnarsvæði
HAFNARFJARÐARHÖFN Lífsspurs-
mál er sagt vera fyrir höfnina að halda
meira landi en skipulag geri ráð fyrir.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VÍSITALA Verð á fatnaði og skóm
hækkaði um 6,1% og flugfar-
gjöld til útlanda um 11,9% í mán-
uðinum. Í nýjustu mæling Hag-
stofunnar kemur fram að 12
mánaða verðbólga er 4,3%
Undanfarna þrjá mánuði hefur
verðbólga aukist um 0,6% sem
jafngildir 2,5% verðbólgu á ári.
Vísitala neysluverðs miðuð við
verðlag er 413,8 stig nú í ágúst
og hækkunin er 0,34% frá fyrra
mánuði. Vísitalan án húsnæðis
hækkaði um 0,36%. - hrs
Verðbólga hefur aukist:
Verð á fatnaði
hækkar um 6%
REYKJANES Nafnið Bakkalág var
valið úr tæplega eitt hundrað til-
lögum sem bárust um heiti á hátíð-
arsvæði við Ægisgötu í Reykja-
nesbæ. Svæðið er landfylling.
Menningarráð bæjarins segir
að í nafngiftinni felist skemmti-
legur orðaleikur. Á 19. og 20. öld
hafi fiskur verið breiddur út,
þurrkaður og saltaður hvar sem
því var við komið og sendur á
markaði við Miðjarðarhaf þar
sem saltfiskurinn gengur undir
nafninu „bacalao“. - gar
Nafn á skemmtisvæði:
Bakkalág valið
úr 100 tillögum
SÝRLAND Fulltrúar fastaríkj-
anna fimm í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna náðu á fundi
sínum í gær ekki samkomulagi
um ályktunartillögu frá Bretum
um aðgerðir gegn Sýrlandi vegna
efnavopnaárásarinnar, sem gerð
var í síðustu viku í úthverfum
Damaskusborgar.
William Hague, utanríkis-
ráðherra Bretlands, segir að
ástandið í Sýrlandi verði áfram til
umræðu á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna næstu daga. Ekki sé því
að búast við neinum ákvörðunum
um loftárásir á Sýrland í bráðina.
Hann segir hins vegar að
öryggisráðið eigi að axla ábyrgð
sína gagnvart Sýrlandi. Takist
það ekki muni Bretar og fleiri
ríki grípa til aðgerða upp á eigin
spýtur.
Bandaríkin segja að Rússar hafi
staðið gegn því, að ályktunin yrði
samþykkt: „Við höfum ekki heyrt
neitt annað frá Rússum á fund-
inum í dag en það sem við höfum
heyrt frá þeim mánuðum og jafn-
vel árum saman,“ hefur breska
dagblaðið The Guardian eftir
Marie Harf, talsmanni bandaríska
utanríkisráðuneytisins.
Bandaríkin reikna ekki með að
nein niðurstaða náist í öryggis-
ráðinu og búa sig því undir að
grípa til aðgerða gegn Sýrlands-
stjórn upp á eigin spýtur.
Rannsóknarteymi frá Samein-
uðu þjóðunum hefur verið á vett-
vangi árásanna í von um að geta
komist að óyggjandi niðurstöðu
um það, hvort efnavopn hafi í
raun verið notuð og vonandi um
það hverjir beittu þeim.
Lakhdar Brahimi, sendifulltrúi
Sameinuðu þjóðanna gagnvart
Sýrlandi, sagði á blaðamanna-
fundi í gær að sönnunargögn á
vettvangi gefi til kynna að efna-
vopn hafi í raun verið notuð, en
tjáði sig ekki um það hvort hann
byggði þetta mat sitt á gögnum
frá rannsóknarteyminu.
Ban Ki-moon, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, legg-
ur áherslu á að rannsóknarteymið
fái að ljúka vinnu sinni, sem gæti
tekið nokkra daga í viðbót. - gb
Ákvörðun um árásir
bíður enn um sinn
Bandaríkin segja Rússa standa gegn ályktun í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Utanríkisráðherra Breta segir ekki von á ákvörðun næstu daga. Ban Ki-moon
leggur áherslu á að rannsóknarteymi Sameinuðu þjóðanna fái að ljúka störfum.
VOPNAEFTIRLITSMENN Á vettvangi árásanna í Damaskus. NORDICPHOTOS/AFP
Maher al Assad er yngri bróðir Bashars Sýrlandsforseta. Hann er nú
sakaður um að hafa gefið skipun um að beita efnavopnum í úthverfum
Damaskusborgar í síðustu viku. Þetta hefur fréttavefurinn Bloomberg eftir
ónafngreindum starfsmanni Sameinuðu þjóðanna. Sá er sagður starfa við
eftirlit með stríðsátökum í þessum heimshluta.
Maher stjórnar sérsveitum hersins, bæði Lýðveldisvörðunum svonefndu
og fjórðu vopnadeildinni, en hún er sögð hafa gert árásina í Damaskus
þann 21. ágúst. Heimildarmaður Bloombergs segir mögulegt að forsetinn
sjálfur hafi ekki átt neinn hlut að ákvörðun yngri bróður síns um notkun
efnavopna. Marie Harf, talsamaður bandaríska utanríkisráðuneytisins,
segir hins vegar ótvírætt að ábyrgðin sé forsetans, óháð því hver innan
hersins hafi tekið ákvörðunina.
Allt eru þetta getgátur, en gætu skipt máli í framhaldinu fari svo að
Bandaríkin og fleiri ríki á Vesturlöndum ákveði að gera loftárásir á Sýrland.
Skipunin sögð komin frá bróður Assads