Fréttablaðið - 29.08.2013, Síða 16
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FERÐIR | 16
Leitir eru nú þegar hafnar víða um landið, en þeim hefur
mörgum verið flýtt vegna slæms veðurútlits.
Fjallkóngur og gangnamenn smala fénu saman og reka það
af fjalli í réttirnar þar sem dregið er í dilka og fénu síðan
komið heim að bæ. Oft er margt um manninn meðan dregið er
og börn jafnt sem fullorðnir hjálpast að.
Menn taka lagið og syngja saman og kveða og oft er hægt að
kaupa sér kaffi og með því á staðnum.
Fólk getur ýmist fylgst með eða skellt sér í almenninginn,
en þangað er allt safnið sem af fjalli kom rekið inn. Þar standa
fjárglöggir menn og horfa yfir hópinn, grandskoða mark
hverrar skepnu og segja í hvaða dilk skal draga hana.
Tilvalið er að skella sér í dagsferð í réttirnar til þess að
kynnast aldagamalli menningu og gera sér dagamun í lok
sumars.
Réttir eru víða í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Þar geta
borgarbúar notið lífsins og fjörsins sem fylgir þessum ein-
stöku viðburðum.
Fréttablaðið tók sig til og ræddi við nokkra forsvarsmenn
rétta í landnámi Ingólfs, til að fræðast betur um viðburði og
sögu.
1. KRÝSUVÍKURRÉTT
Krýsuvíkurrétt heyrir undir Hafnarfjarðarbæ og er réttin við Suður-
strandarveg. Réttin er einungis fjögurra ára og tók við af annarri
sem komin var í niðurníðslu.
Þar er börnum og fullorðnum hleypt inn í almenninginn og
óvönum kennt hvernig draga á fé.
Sauðfé: 600-700
Dagsetning 14. september
Tími 13.00
Akstur frá borginni Um 30 mínútur
2. ÞÓRKÖTLUSTAÐARÉTT
Réttað hefur verið í Grindavík á hverju ári í áratugi. Við Þórkötlu-
staðarétt er upphækkaður pallur fyrir gesti til þess að fylgjast með.
Hátt í þúsund manns mættu í fyrra í réttirnar sem er álíka mikill
fjöldi á sauðféð sjálft.
„Í réttunum er oft sungið og þar geta börn farið á hestbak,“ segir
Þorsteinn Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar.
Sauðfé 1.200-1.400
Dagsetning 21. september
Tími 14.00
Akstur frá borginni Um 40 mínútur
3. HRAÐASTAÐARÉTT
Hraðastaðarétt er í Mosfellsdal. Þar koma 60 til 70 manns,
fótgangandi og ríðandi, með hópinn sem smalað hefur verið
saman. Á svæðinu er húsdýragarður og börn og fullorðnir
geta skoðað dýrin í garðinum án gjalds. „Í garðinum er meðal
annars refur, kanínur og hænur,“ segir Bjarni Bjarnason, fjall-
kóngur á Hraðastöðum.
Sauðfé Um 800
Dagsetning 22. september
Tími 13.00
Akstur frá miðbænum 20 mínútur
Ekki eintómir sauðir í réttum
Nú fer haustið að koma og fyrstu leitir eru hafnar. Gangnamenn fara á fjall og smala fénu og getur almenningur haft gaman af því að taka
á móti safninu þegar það kemur af fjalli og hjálpa til við að draga í dilka. Gaman getur verið að skella sér í réttir og upplifa stemninguna.
SAUÐFÉ SAFNAST SAMAN Börn og fullorðnir geta lært hvernig draga á féð og koma því í réttan dilk og þannig hjálpað bændum sem
koma fénu svo heim.
Nýtt og uppfært átaksnámskeið fyrir þær
sem vilja taka heilsuna og útlitið föstum tökum.
Allar upplýsingar á hreyfing.is
ÁSKORUN
Í ÞVERÁRFELLSRÉTT er rekið flest
fé á landinu. Réttirnar verða mánu-
daginn 16. september. Þverárfellsrétt
er í Borgarfirði og því aðeins lengra
að sækja hana fyrir íbúa á höfuð-
borgarsvæðinu.
Ljósanótt er menningar- og fjölskylduhá-
tíð Reykjanesbæjar sem haldin er fyrstu
helgina í september ár hvert. Ljósanótt
lýkur ávallt með lýsingu Bergsins og
glæsilegri flugeldasýningu. Í ár verður
hátíðin haldin dagana 5.-8. september.
Bæjarbúar taka virkan þátt í hátíðinni
og framboð menningarviðburða hefur
aukist ár frá ári jafnt og gestafjöldi.
Áhersla er lögð á viðamiklar uppákom-
ur frá fimmtudegi til sunnudags þótt
hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeg-
inum. Fjöldi myndlistarmanna sýnir verk
sín víða um bæinn auk þess sem boðið
verður upp á fjölbreytta barnadagskrá,
kjötsúpu, púttmót, fornbíla, mótorhjól,
íþrótta- og tómstundaviðburði og margt
margt fleira.
Ljósanótt
5. til 8. september
„Hlíðarendi eða Valsvöllurinn er uppáhaldsstaðurinn minn,“ svarar Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans,
þegar blaðamaður hefur samband við hann til forvitnast um hvaða staður á Íslandi sé í uppáhaldi hjá
lækninum.
„Það segir sig sjálft að þetta er mjög góður staður til þess að vera á, hvort sem það er til þess að
hreyfa sig sjálfur eða til þess að fylgjast með öðrum hreyfa sig eða keppa. Það má segja að ég hafi
alist upp á Hlíðarenda og ég hef alltaf verið Valsari,“ segir Björn.
Björn æfði og keppti í körfubolta með meistaraflokki Vals og spilaði fótbolta með liðinu sem
smástrákur.
„Ég fylgist vel með öllum íþróttum hjá Val og ég tengist félaginu mikið enn þann dag í dag. Ég
var læknir hjá meistaraflokki karla í tólf ár og hætti því starfi síðasta vor.“
En hvenær fór Björn síðast á Hlíðarenda? „Það var í hádeginu í dag. Ég fór þangað að hitta menn
sem ég þekki, við hittumst þar úti og spjölluðum saman. Ég fór síðast á leik á Hlíðarenda fyrir
örfáum dögum þegar Valur lék á móti Stjörnunni. Þeim leik lauk með því að við vorum rændir, við
náðum sem sagt bara jafntefli, 1- 1.“
BJÖRN ZOËGA
Hlíðarendi, mjög góður staður til að vera á
12
3
4
4
HÁTÍÐIR HELGARINNAR VEÐUR
Föstudagur
1-12°C SVALAST
NORÐVESTANTIL
Breytilega átt 5-13 m/s.
Gengur í 18-23 m/s NV-til
með mikilli rigningu og snjó
í fjalllendi seinni partinn.
Allur akstur er bannaður á ýmsum hálendis-
leiðum vegna aurbleytu og hættu á skemmdum. Nánari upplýsingar
Vegagerdin.is eða í síma 1777.
Laugardagur
2-10°C SLYDDA
Í INNSVEITUM
Rok rigning og
slydda á Vestfjörðum
og norðanlands. Úr-
komulítið SA-lands.
Sunnudagur
6-12°C HLÝNAR SMÁM SAMAN
Gengur í suðaustanátt með rigningu
sunnan- og vestanlands og hlýnar
smám saman. Annars hægari breytileg
átt, úrkomulítið og svalt.
Heimild: vedur.is
HÁLENDIÐ
UPPÁHALDSSTAÐURINN MINN Á ÍSLANDI HLÍÐARENDI