Fréttablaðið - 29.08.2013, Side 18
● Á hverju ári fá mörg hundruð foreldrar ráðgjöf um
svefn barna hjá hjúkrunarfræðingum og svefn-
ráðgjöfum á göngudeild Barnaspítala Hringsins.
Ráðgjöfin er endurgjaldslaus á spítalanum.
● Aðallega er um að ræða börn frá nokkurra
mánaða aldri til tveggja ára en eldri börn fá einnig
þjónustu.
● Hægt er að fá ráðgjöf í gegnum síma á vegum for-
eldraskoli.is. Greiða þarf ákveðið mínútugjald fyrir
ráðgjöfina.
við önnur börn. „Til þess að börn fái
nægan svefn er mikilvægt að for-
eldrar séu sjálfum sér samkvæm-
ir varðandi háttatímann. Jafnframt
þurfi að gæta þess að spjaldtölvur
og farsímar „sofi“ í öðru herbergi
en barnið.“
Ingibjörg Leifsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og svefnráðgjafi hjá
Barnaspítala Hringsins, segir sum
börn eiga erfiðara með að slökkva
á sér en önnur þótt þau séu orðin
þreytt. „Ástæður fyrir því geta
verið mjög margar. Þetta er afar
einstaklingsbundið og það þarf
að skoða hvert og eitt tilfelli fyrir
sig þegar um svefnvandamál er að
ræða. Það þarf að skoða alla sam-
verkandi þætti sem geta haft áhrif.“
Hún tekur það fram að mismun-
andi lundarfar og persónuleiki
barna geti einnig verið stór þáttur.
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | NEYTENDUR 18
Stjórnendur Heathrow-flugvallar í London ætla að koma í veg fyrir tugmillj-
óna króna kostnað á hverju ári vegna seinkana. Taka á í notkun nýtt kerfi
sem finnur farþega á vellinum og minnir þá á að dvelja ekki of lengi í versl-
unum og á veitingastöðum. Sé tíminn fyrir brottför skemmri en 30 mínútur
verður farþegum tilkynnt að þeir séu orðnir of seinir. Þeir verða þess vegna
að innrita sig í nýtt flug. Fyrstu vikuna sem kerfið var prófað voru 35 þúsund
farþegar leitaðir upp. 700 var tilkynnt að þeir ættu strax að fara að hliðinu en
tíu var gert að innrita sig að nýju. British Airways, sem hefur bækistöðvar í
flugstöð (e. terminal) 5, notar þegar svipað kerfi. Því hefur einnig verið komið
á í flugstöðvum 1 og 3. Síðar í haust verður það tekið upp í flugstöð 4.
Silakeppirnir leitaðir uppi
á Heathrow-fl ugvelli
Sýkingahrinan á Norðurlönd-
unum vegna mengunar í frosnum
berjum er í rénun á Norðurlönd-
um. Menguð matvæli hafa verið
fjarlægð af markaðnum og hefur
Matvælastofnun því í samvinnu
við sóttvarnalækni ákveðið að
breyta þeim ráðleggingum sem
áður voru gefnar út um suðu á
frosnum berjum. Á vef Matvæla-
stofnunar segir að ekki sé þörf
á að sjóða öll frosin ber ef nota
á þau í rétti sem ekki eru hitameðhöndlaðir. Enn er þó mælt með suðu á
hindberjum þar sem nóróveirusýkingar hafa oft verið raktar til neyslu á
frosnum hindberjum. Suða hefur hvorki áhrif á bragð né lit hindberja og
því er vel hægt að sjóða þau áður en þau eru notuð í eftirrétti og drykki,
að því er greint er frá á vef Matvælastofnunar.
Minni hætta af frosnum berjum
Neytendastofa hefur vakið athygli á innköllun á UVEX-reiðhjálmum af
gerðinni Exxential (áður Uvision) sem seldir hafa verið hjá Líflandi frá
árinu 2010. UVEX er auk þess að innkalla tvær aðrar
tegundir, Uvision Elegance og Supersonic Elegance.
Hjálmarnir uppfylla ekki staðla um viðnám gegn
því að eitthvað stingist í gegnum þá. Höggþol
er heldur ekki sem skyldi. Á vef Neytendastofu
segir að einhverjir hjálmar séu ekki gallaðir.
Framleiðandinn taki hins vegar enga áhættu
og þess vegna hafi allir hjálmar af fyrrnefndum
gerðum verið innkallaðir. Þeir sem eiga reið-
hjálm af gerðinni Exxential eru beðnir um að hætta
notkun hans strax og fá sambærilegan hjálm í
verslun Líflands eða endurgreitt að fullu.
Gallaðir hjálmar innkallaðir
Í FLUGSTÖÐ
Farþegar sem
eru of seinir
að hliðinu út
í vél verða að
innrita sig í
nýtt flug.
Að senda barnið of snemma í hátt-
inn getur valdið viðvarandi svefn-
vandamálum hjá því. Þetta segir
Bjørn Bjorvatn, læknir og sérfræð-
ingur í svefnvandamálum sem starf-
ar við Haukeland-háskólasjúkrahús-
ið í Noregi.
Í viðtali á vef norska ríkisút-
varpsins segir Bjorvatn mikilvægt
að hafa í huga að börn hafa mis-
mikla þörf fyrir svefn. „Þau þurfa
ekki öll að sofa jafnmikið og foreldr-
arnir halda,“ segir hann.
Bjorvatn bendir á að sofni börn-
in ekki innan klukkustundar eftir
að þau eru komin upp í rúm verði
þau oft pirruð og kvíðin. Ástandið
geti orðið enn verra með tuði for-
eldrarnir um að þau verði að sofna.
Bylti börnin sér í margar klukku-
stundir áður en þau sofna geti það
haft í för með sér svefnvandamál
til lengri tíma. Í slíkum tilfellum sé
þess vegna mikilvægt að láta börnin
fara seinna að sofa til þess að kanna
hvort þau festi þá fyrr svefn.
Svefnmynstur erfist oft, að því
er norski læknirinn greinir frá.
Hafi foreldrarnir haft litla svefn-
þörf á barnsaldri séu líkur á að því
sé þannig farið með börnin þeirra.
Hann segir auðvelt að sjá hvort
börn fái nægan svefn. Líði þeim vel
á daginn sé það til marks um að þau
hafi sofið nóg.
Hjúkrunarfræðingurinn og
svefnráðgjafinn Karin Naphaug
segir ofþreytu og of mikla örvun
ástæðu þess að sum börn eiga erf-
itt með að sofna á kvöldin. Svefn-
inn verði þá órólegur og börnin oft
afar þreytt þegar þau vakna næsta
dag. Hún segir að börn sem fá ekki
nægan svefn verði pirruð og grát-
gjörn. Þau eigi erfitt með að einbeita
sér og lendi auðveldlega í árekstrum
Fer barnið þitt of
snemma í háttinn?
Norskur læknir segir börn ekki alltaf þurfa að sofa jafnmikið og foreldrarnir
halda. Skoða þarf alla samverkandi þætti segir íslenskur svefnráðgjafi.
SVEFNVANA Ofþreyta og of mikil örvun getur valdið erfiðleikum við að sofna.
NORDICPHOTOS/GETTY
INGIBJÖRG
LEIFSDÓTTIR
hjúkrunarfræðing-
ur og svefnráðgjafi.
➜ Ráðgjöf um svefn barna
Þann 1. september næstkomandi
öðlast þriggja ára börn og börn
á aldrinum 12–14 ára rétt á
gjaldfrjálsum tannlækningum
samkvæmt samningi Sjúkratrygg-
inga Íslands og Tannlæknafélags
Íslands. Í fyrsta áfanga samnings-
ins, sem tók gildi 14. maí síðast-
liðinn, var rétturinn einskorð-
aður við 15, 16 og 17 ára börn.
Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga
er háð því að börnin séu skráð
hjá heimilistannlækni. Þegar
hafa 12.500 börn verið skráð með heimilistannlækni. Skráning fer fram í
gegnum Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands en tannlæknar geta einnig
séð um skráninguna. Sjúkratryggingar greiða tannlækningarnar að fullu
fyrir utan 2.500 kr. árlegt komugjald.
Gjaldfrjálsar tannlækningar
fyrir börn 1. september
Bónus var með lægsta verðið á
matarkörfunni þegar verðlags-
eftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöru-
verðsverslunum og stórmörkuðum
á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn
mánudag.
Matarkarfan kostaði 13.376 kr.
hjá Bónus en hún var dýrust hjá
Samkaupum-Úrvali og Nóatúni,
þar sem hún var 23% dýrari.
Krónan var með næstódýrustu
matarkörfuna á 14.700 kr., sem
er 10% hærra verð en hjá Bónus,
að því er kemur fram á vef ASÍ.
Matarkarfan samanstendur af 34
almennum neysluvörum.
Matarkarfan
ódýrust í Bónus
NEYTANDINN „Ég keypti hengilás í ræktina til þess að læsa
skápnum mínum,“ segir Andrés Jónsson, almannatengill
hjá Góðum samskiptum, þegar hann rifjar upp þann hlut
sem hann keypti og sér hvað mest eftir.
„Ég ákvað að kaupa vígalegasta og þar af leiðandi dýr-
asta hengilásinn sem ég fann í Byko,“ segir Andrés en
lásinn notar hann til þess að læsa skápnum sínum þegar
hann fer í ræktina á Seltjarnarnesi. Hann segist hafa
keypt lásinn fyrir um fjögur þúsund krónur og að hann
hafi verið læstur með talnalás.
„Svo kom ég einhvern tímann úr ræktinni og þá virkaði
ekki lásinn. Ég stóð þarna í fúlum íþróttagalla og var alls-
laus, enda síminn og lyklar og allt inni í skápnum,“ segir
Andrés þegar hann rifjar upp hið pínlega augnablik.
„Síðan fer ég eitthvað að fikta í lásnum og næ
með ótrúlegri slembilukku að opna lásinn,“ segir
Andrés en þá var talnaröðin búin að breytast um
einhver númer.
„Þannig að ekki bara var lásinn drasl, heldur
tókst mér að dírka hann upp,“ segir Andrés hlæj-
andi. Spurður út í góða fjárfestingu er Andrés ekki
lengi að finna svarið: „Það eru svona heyrnartól
fyrir símann. Ég keypti ódýr heyrnartól sem
heita „Urban ears“. Þau eru svona flækjufrí
og það er lítið smáatriði sem hefur hreinlega
breytt lífi mínu, enda alltaf í símanum,“ segir
Andrés.
- vg
NEYTANDINN Andrés Jónsson
Vígalegi talnalásinn bilaði í ræktinni
Blómadropar
til heilsubótar
Fimmtudagur
5. sept.
HEILSUHÚSIÐ LÁGMÚLA 5, KL. 19:30 – 22:30
5.900 kr. Námsgögn fylgja og allir fá blómadropa með sér heim.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 868-2880 og á nyjaland@gmail.com
Á NÁMSKEIÐINU VERÐUR FARIÐ YFIR:
• Hvað eru blómadropar og hvernig
getum við notað þá
• Hvernig eru blómadropar búnir til
• Hvaða árangurs er að vænta
• Hverjir geta notað blómadropa
• Jákvæðir eiginleikar og virkni
STEFANÍA S.
ÓLAFSDÓTTIR
græðari kynnir hvernig
nota má blómadropa til
stuðnings í daglegu lífi og
hvernig þeir hjálpa okkur
að ná árangri með andlega
og líkamlega líðan.
námskeið á vegum Heilunarskóla Nýjalands
ANDRÉS JÓNSSON