Fréttablaðið - 29.08.2013, Síða 20
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | VIÐSKIPTI 20
Viðsnúningur er í hagnaðartölum
Skipta (móðurfélags Símans og
fleiri fyrirtækja) eftir fyrri árs-
helming samkvæmt nýbirtu upp-
gjöri. Hagnaður félagsins nemur
466 milljónum króna en á sama
tíma í fyrra tapaði félagið 2,6
milljörðum króna.
Fram kemur í tilkynningu
félagsins að hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði, án ein-
skiptisliða, hafi numið 4,2 millj-
örðum króna, samanborið við 3,8
milljarða á fyrri hluta árs 2012.
Þ á l æk k a
vaxtaberandi
skuldir félags-
ins úr 62 ,1
milljarði í 27,2
milljarða. Eigin-
fjárhlutfall er
56,6 prósent en
var 10,2 prósent
fyrir ári.
Fram kemur
að einskiptis-
liðir á fyrri hluta ársins hafi verið
160 milljóna króna kostnaður
vegna endurfjármögnunar, en í
fyrra hafi verið um að ræða 440
milljón króna samkeppnissekt.
Haft er eftir Steini Loga Björns-
syni, forstjóri Skipta, í tilkynn-
ingu félagsins að áfram sé unnið
á grundvelli áætlunar sem miðar
að því að hámarka arðsemi rekstr-
arfélaga Skipta. Hann bendir á að
fjárhagslegri endurskipulagningu
hafi lokið undir lok tímabilsins.
Lægri fjármagnskostnaður vegna
þessa skili sér af fullum þunga á
síðari hluta ársins. - óká
Áframhaldandi rekstrarbati og gjörbreyttur efnahagsreikningur samkvæmt hálfsársuppgjöri Skipta sem birt var í gær:
Hagnaður Skipta eftir skatta var 466 milljónir króna
Fjármagnsliður 1H 2013 1H 2012
Rekstrarhagnaður 2.245 209
Hrein fjármagnsgjöld (1.603) (2.946)
Hagnaður/tap fyrir tekjuskatt 642 (2.733)
Hagnaður/tap 466 (2.562)
Skuldir 33.561 69.402
Eigið fé 43.638 9.042
EBITDA 4.100 (27,2%) 3.400 (23,6%)
*Allar tölur eru í milljónum króna. Heimild: Árshlutauppgjör og tilkynning Skipta.
Innan samstæðu Skipta eru Síminn, Míla, Skjárinn, Sensa, Staki, On-Waves Radio-
miðun og Talenta. Í Danmörku rekur Skipti fjarskiptafélagið Síminn DK og Sensa DK.
Tölur úr árshlutauppgjöri Skipta*
STEINN LOGI
BJÖRNSSON
Nýsköpunarstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Markmið nýsköpunarstyrkja Landsbankans er að styðja við frumkvöðla með
því að veita þeim tækifæri til að þróa nýja viðskiptahugmynd, eldri viðskipta-
hugmynd á nýju markaðssvæði eða nýja vöru eða þjónustu. Nýsköpunarstyrkjum
er jafnframt ætlað að styðja við frumkvöðla til kaupa á efni, tækjum eða sérfræði-
þjónustu vegna nýsköpunar eða sækja námskeið sem sannanlega byggir upp
færni sem nýtist við þróun viðskiptahugmyndar.
Styrkupphæðir
» 500.000–2.000.000 kr. – styrkir fyrir verkefni sem eru lengra komin.
» 200.000–500.000 kr. – styrkir fyrir fyrstu skrefin.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur vegna nýsköpunarstyrkja er til og með 2. september 2013.
Dómnefnd er skipuð þremur fagaðilum og tveimur sérfræðingum bankans.
Sótt er um styrkina rafrænt á vef bankans, landsbankinn.is.
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra
verkefna. Árlega eru ferns konar styrkir veittir: Námsstyrkir, nýsköpunarstyrkir,
samfélagsstyrkir og umhverfisstyrkir en afreksstyrkir eru veittir annað hvert ár.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is
Umsóknarfrestur er til 2. sept. Landsbankinn
styður góðar hugmyndir og veitir í ár allt að
15 milljónir króna í nýsköpunarstyrki.
www.saft.is
KENNDU BARNINU ÞÍNU AÐ
SKOÐA EFNI Á NETINU MEÐ
GAGNRÝNUM HÆTTI
Afkoma Íslandsbanka var
jákvæð um 11,2 milljarða á fyrri
hluta árs, en bankinn kynnti upp-
gjör sitt í gær, bæði fyrir annan
ársfjórðung og fyrir fyrri árs-
helming.
Eigið fé bankans nam 155,5
milljörðum króna og hækkaði
um 15 prósent milli ára. Eigin-
fjárhlutfallið styrktist úr 26,2
prósentum í 27,4 prósent.
Eigið fé bankans hefur einnig
meira en tvöfaldast frá stofnun
bankans og er það meðal annars
rakið til uppsafnaðs hagnaðar
bankans frá stofnun.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, segist afar ánægð
með stöðu bankans og að margir
sigrar hafi verið unnir frá stofn-
un árið 2008. „Afkoma bankans á
öðrum ársfjórðungi er í takt við
áætlanir og jákvæð samlegðar-
áhrif vegna sameininga eru
að koma fram á báðum hliðum
rekstrarreiknings,“ segir Birna,
en þrjár sameiningar hjá bankan-
um voru afgreiddar í fyrra.
Í fyrra sameinaðist Íslands-
banki Byr og Kreditkortum auk
þess sem bankinn keypti Fram-
tíðarauð, sem var séreigna-
sparnaður Auðar Capital. Birna
segir að með sameiningu við Byr
hafi bankinn náð því að reka hag-
kvæmasta útibúanetið á landinu
og vera með markaðshlutdeild
yfir 30 prósent.
Heildarrekstrarkostnaður
bankans lækkaði niður í 6,5 millj-
arða króna á öðrum ársfjórðungi,
sem er um 7,7 prósenta raun-
lækkun á milli ára.
Hagræðingunni var meðal ann-
ars náð með því að fækka starfs-
fólki. „Við höfum þurft að fækka
starfsfólki eitthvað og bankinn
hefur að stórum hluta náð að hag-
ræða með almennri starfsmanna-
veltu.“
Einnig hafa gæði eignasafns
bankans batnað, en hlutfall lána
í vanskilum eru nú einungis
helmingur af því sem þau voru
á sama tíma í fyrra, eða fóru úr
19,6 prósentum í 11,1 prósent af
lánasafni.
Samhliða betra eignasafni fara
heildarafskriftir, eftir gjafir eða
leiðréttingar bankans, á hverj-
um ársfjórðungi, minnkandi, en
bankinn hefur afskrifað tæp-
lega 500 milljarða frá stofn-
un hans, meðal annars í formi
endurútreikninga á ólögmætum
gengistryggðum lánum, leið-
réttingu á lánum vegna 110 pró-
senta leiðarinnar og vaxtaendur-
greiðslna. Frá stofnun bankans
hafa um það bil 35 þúsund ein-
staklingar og fjögur þúsund
fyrir tæki fengið afskriftir.
Birna segir endurútreikning
lána ganga vel. „Búið verður
að ljúka við endurútreikning á
90 prósentum virkra lána í lok
mánaðarins, en alls mun bankinn
endurreikna um 15.000 ólögmæt
gengistryggð lán og er áætlað
að öllum endurútreikningi verði
lokið fyrir árslok.“
lovisa@frettabladid.is
Eigið fé bankans
er 156 milljarðar
Hagnaður Íslandsbanka nam 11,2 milljörðum króna á
fyrri helmingi ársins. Eigið fé bankans hefur tvöfald-
ast frá stofnun. 500 milljarðar afskrifaðir á sama tíma.
ÍSLANDSBANKI var útnefndur besti íslenski bankinn af tímaritinu Euromoney og
var VÍB, eignastýring bankans, valin fremsta eignastýringarþjónustan á Íslandi af
breska tímaritinu World Finance.
Afkoma
bankans á
öðrum árs-
fjórðungi
er í takt við
áætlanir og
jákvæð sam-
legðaráhrif vegna samein-
inga eru að koma fram.
Birna Einarsdóttir
bankastjóri Íslandsbanka