Fréttablaðið - 29.08.2013, Qupperneq 38
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT
„Ha? Hvaða afmæli?,“ spyr Manúela
Ósk Harðardóttir þegar blaða maður
spyr hana hvort hún geti séð af
nokkrum mínútum til að spjalla um
þrítugsafmæli hennar í dag. „Nei, ég
er að djóka. Ég er bara í smá afneit-
un,“ bætir hún við og hlær.
Manúela Ósk, sem kjörin var ung-
frú Ísland 2002, stundaði nám við
Hússtjórnarskóla Reykjavíkur síð-
asta vetur en fékk inngöngu í fata-
hönnunardeild Listaháskóla Íslands
(LHÍ) nú í vor. Hún hóf svo námið
í LHÍ á mánudaginn var og segist
aðspurð strax kunna mjög vel við sig
í skólanum. „Mér líst rosalega vel á
skólann og þetta nám. Það er mjög
mikið að gera en ég er afskaplega
glöð með þetta,“ segir Manúela og
bætir við að hún hafi lengi haft áhuga
á fatahönnun og stefnt ljóst og leynt
að námi í faginu í nokkurn tíma.
Hefur hún þá fundið framtíðar-
starfið? „Ég hef mikinn áhuga á því
að starfa sem fatahönnuður í fram-
tíðinni, já,“ útskýrir Manúela. „Það
er fullsnemmt að segja til um hvers
konar föt ég mun koma til með að
hanna síðar meir því þetta eru ein-
ungis fyrstu dagarnir í náminu. Ég
er að öðlast þekkingu og færni í
undirstöðu atriðum fatahönnunar og
hef besta hugsanlega fólkið í brans-
anum til að leiðbeina mér, en það
getur vel farið svo að allar mínar
hugmyndir taki breytingum á þess-
um þremur árum sem námið tekur,“
segir Manúela, en hún rak um tíma
lífstílsvefinn M X K ásamt Karen
Lind Tómasdóttur vinkonu sinni. Sú
vefsíða hefur nú lagst af í bili enda
segist fatahönnunarneminn engan
tíma hafa fyrir slíkan rekstur þessa
dagana. „Það getur samt vel verið að
við opnum vefinn aftur seinna.“
En hvað skyldi svo standa til á þrí-
tugsafmælisdaginn hjá Manúelu?
„Ég ætla bara að gráta,“ grínast
hún, en viðurkennir jafnframt að hún
hafi aldrei átt erfitt með afmælis-
daga fram að þessu stórafmæli í dag.
„Þetta leggst einhvern veginn ekki
alveg nógu vel í mig en ætli ég reyni
ekki að eiga góðan dag með börnun-
um mínum og fjölskyldu, fara kannski
eitthvert gott út að borða og bjóða svo
í gott partí um helgina. Mér finnst það
vera hálfgerð skylda,“ segir Manúela
að lokum.
kjartan@frettabladid.is
Er í smá afneitun á
þrítugsafmælisdeginum
Manúela Ósk Harðardóttir, Ungfrú Ísland árið 2002 sem hóf nám í fatahönnun í Lista-
háskólanum á mánudaginn var, fagnar þrítugsafmæli sínu í dag.
ÞRÍTUG
Manúela Ósk
Harðar dóttir
ætlar að
eiga góðan
afmælis-
dag ásamt
fjöl skyldu
og börnum
og bjóða
svo í veislu
um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Gríðarlegt eignatjón varð þegar fellibylur-
inn Katrín gekk á land á suðurströnd
Bandaríkjanna þennan dag árið 2005.
Manntjón varð minna en óttast var, enda
var viðbúnaður mikill þegar ljóst var hvert
fellibylurinn stefndi. Um milljón manns
þusti út í bíla og hélt út á þjóðvegina á
flótta undan flóðinu.
Skemmdirnar urðu mestar í Louisiana
og Mississippi og varð elsti hluti
borgarinnar New Orleans einna verst
úti, enda er hann undir sjávarmáli. Við
Pontchartain-vatn fóru heilu hverfin
á bólakaf og í Biloxi fuku hús eins og
spilaborgir, enda var vindstyrkur um það
bil 55 metrar á sekúndu.
Olíuverð náði áður óþekktum hæðum
vegna bylsins.
ÞETTA GERÐIST: 29. ÁGÚST 2005
Fellibylurinn Katrín gengur á land
MERKISATBURÐIR
1862 Akureyri fær kaupstaðarréttindi í annað sinn.
1910 Fyrsti keisaraskurður á Íslandi, þar sem bæði móðir og
barn lifa, er gerður í Reykjavík.
1944 Á Ísafjarðardjúpi veiðist 300 kílógramma túnfiskur.
1945 Hafin er bygging húss fyrir Þjóðminjasafn Íslands við
Hringbraut í Reykjavík.
1948 Baldur Möller verður skákmeistari Norðurlanda, fyrstur
Íslendinga.
1971 Kirkjan á Breiðabólstað á Skógarströnd brennur til kaldra
kola og það kviknar í bíl sóknarprestsins.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
KRISTÍNAR H. KVARAN
Kleifarvegi 1.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
V-3 á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
fyrir góða aðhlynningu og elskulegt viðmót.
Karítas Kvaran Baldur Guðlaugsson
Gunnar E. Kvaran Snæfríður Þ. Egilson
Einar G. Kvaran Tinna Grétarsdóttir
Ólafur Hrafnkell Baldursson Charlotte Gerd Hannibal
Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir
Þórhildur Baldursdóttir
og barnabarnabörn.
Hjartkær frænka okkar,
LÁRA JÓHANNESDÓTTIR
frá Herjólfsstöðum,
síðast til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík,
verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn
30. ágúst kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda
Þorsteinn, Jóhannes og Lárus Viggóssynir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
BORGHILDUR SVANLAUG
ÞORLÁKSDÓTTIR
frá Veiðileysu,
sem lést á deild 3B á Hrafnistu í Hafnarfirði,
föstudaginn 23. ágúst sl. verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 30. ágúst kl. 13.00.
María Sveinbjörnsdóttir Steen Jörgensen
Trausti Sveinbjörnsson
Margrét Ólöf Sveinbjörnsdóttir Þórir Steingrímsson
Ásta Sveinbjörnsdóttir
Ólöf Þóra Sveinbjörnsdóttir
Erla Sveinbjörnsdóttir Grétar Páll Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, móðursystir,
amma og langamma,
SVEINBJÖRG JÓNATANSDÓTTIR
Hvassaleiti 58, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 21. ágúst. Útför hennar
fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
30. ágúst kl. 15.00.
Jónatan Ólafsson Sigrún Sigurðardóttir
Loftur Ólafsson Kristín Helga Björnsdóttir
Helga Torfadóttir Anton Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.