Fréttablaðið - 29.08.2013, Side 42
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
TÓNLEIKAR ★★★★ ★
Christine Antenbring og
Mikhail Hllak
Hin vesturíslenska Christine Anten-
bring mezzósópran og Mikhail Hallak
píanóleikari fluttu íslenska dagskrá á
menningarnótt.
NORÐURLJÓS Í HÖRPU
Gallinn við íslensku sönglögin
er hversu oft þau eru flutt. Allir
íslenskir söngnemendur þurfa að
glíma við þau fyrr eða síðar í söng-
náminu. Sumir fullnuma söngvarar
úr klassíska geiranum syngja þau
hvað eftir annað á tónleikum. Fyrir
bragðið er mjög sterk hefð fyrir því
hvernig lögin eiga að vera flutt. Það
þýðir að þau hljóma gjarnan eins,
sama hver syngur.
Öðru máli gegnir um útlenska
söngvara sem syngja lögin á tón-
leikum, nýbúnir að uppgötva
þau. Ef söngvarinn er góður öðl-
ast lögin skemmtilegan keim sem
maður heyrir sjaldan hjá íslenskum
söngvurum. Fyrir nokkrum árum
söng hinn bandaríski Donald Kasch
nokkur þannig lög á tónleikum í
Reykholti. Það var mögnuð upp-
lifun. Mér leið eins og ég væri að
heyra lögin í fyrsta sinn. Slík var
ástríðan og krafturinn í túlkuninni.
Svipað var uppi á teningn-
um hjá vesturíslensku söngkon-
unni Christine Antenbring frá
Winnipeg. Hún kom fram á tón-
leikum í Norður ljósum í Hörpu á
Menningar nótt. Píanó leikarinn
með henni var eiginmaður henn-
ar, Mikhail Hallak. Á efnisskránni
voru alls konar lög sem maður
hefur heyrt milljón sinnum. Þar
á meðal var Nótt eftir Árna Thor-
steinsson, Gígjan eftir Sigfús
Einars son, Erla, góða Erla eftir Sig-
valda Kaldalóns, Hjá lygnri móðu
eftir Jón Ásgeirsson og mörg fleiri.
Antenbring söng lögin af
fáheyrðri ákefð og innlifun, auk
þess sem rödd hennar var einstak-
lega hljómfögur og tær. Hallak
fylgdi henni prýðilega, umvafði
sönginn alls konar litbrigðum og
setti hann í fagran ramma.
Hér og þar hefði túlkunin e.t.v.
mátt vera meira blátt áfram, eins
og t.d. í Hjá lygnri móðu, sem var
býsna óróleg. Það kom söngfugl að
sunnan eftir Atla Heimi Sveins-
son hefði líka getað vera mýkra.
Þetta er grínlag eftir Atla í Schu-
bert-stíl en sá stíll fór fyrir ofan
garð og neðan á tónleikunum.
Íslenskt vögguljóð á hörpu eftir
Jón Þórarins son var líka býsna óró-
legt. Þetta er jú vögguvísa sem á að
svæfa barnið, ekki gera það alveg
dýrvitlaust!
Annað var hins vegar frábært.
Gígjan var mögnuð, stórbrotin og
tignarleg og ég hef sjaldan heyrt
Draumalandið sungið á eins hríf-
andi hátt. Það var fullt af ástríðu
og hljómfegurð; hinn ljúfsári sökn-
uður sem einkennir tónlistina skil-
aði sér fullkomlega.
Fáein önnur lög voru á dag-
skránni. Þar á meðal var lítið og
sjarmerandi lag eftir Þorvald
Gylfason og einnig hrífandi tón-
smíð eftir ömmu söngkonunnar,
Elmu Gislason. Sem aukalag söng
Antenbring aríu úr óperunni Sam-
son og Delíla eftir Saint-Saëns. Það
var hugljúfur endir á athyglisverð-
um og skemmtilegum tónleikum.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Prýðileg söngkona
gæddi íslensk sönglög sjaldheyrðum
ferskleika.
Stórbrotið og tignarlegt
HARPA „Antenbring söng
lögin af fáheyrðri ákefð
og innlifun, auk þess sem
rödd hennar var einstak-
lega hljómfögur og tær.“
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég er að koma fram með gam-
alt dót sem konurnar í apótekinu
áttu og var uppi á lofti í Hafnar-
borg. Þar má nefna stafla af
tímaritinu Tidens kvinder. Þetta
er eins og draumur: háaloft með
dóti!“ segir Ilmur Stefánsdótt-
ir myndlistarkona glaðlega. Þar
er hún að lýsa gjörningnum sem
hún ætlar að flytja við opnun
haustsýningar Hafnarborgar í
Hafnar firði annað kvöld klukkan
20. Ilmur er einn fjögurra lista-
manna sem eiga þar verk. Hinir
eru Elín Hansdóttir, Marcos
Zotes og Theresa Himmer.
„Ég er þarna með píanóleikara
með mér sem er í virtari kant-
inum,“ heldur Ilmur áfram og á
þar við Davíð Þór Jónsson píanó-
leikara. „Hann er að hafa ofan af
fyrir konu sem býr í þessu húsi.
Hún er bæði að reyna að komast
af og hins vegar að fela sig fyrir
öllu fólkinu sem er fyrir utan
gluggann hjá henni að byggja. Ég
er nefnilega inni í gamla húsinu
sem Hafnarborg var smíðuð utan
um.“ - gun
Húsin í húsinu
Sýningin Vísar– húsin í húsinu verður opnuð í
Hafnar borg í Hafnarfi rði á morgun klukkan 20.
➜ Sýningarstjóri er Anna
María Bogadóttir. Hugmynd
hennar að þessari sýningu var
valin úr innsendum tillögum
í fyrrahaust þegar kallað var
eftir tillögum að haustsýningu
2013 í Hafnarborg.
ILMUR
STEFÁNS-
DÓTTIR
Kemur
fram með
gamalt
dót. Hér
að rúlla
eintaki
af Tidens
kvinder.
MENNING
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR S: 553 7100 WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARD. 11 - 16
LOKADAGUR LAUGARDAGINN 31 . ÁGÚST
Ú T S Ö L U L O K
15 - 50% AFSLÁTTUR AF ÚTSÖLUVÖRUM - SÓFAR / STÓLAR / SKÁPAR / SÓFABORÐ / PÚÐAR
ÁÐUR KR. 372.800
ÁÐUR KR. 36.400
ÁÐUR KR. 121.900
SKÁPUR
LAMPI
ASHANTI
MANCHEBO
SHABBY FAMA
METRO
JOERI
MURCIA
ÁÐUR KR. 418.300 - NÚ KR. ÁÐUR KR. 254.400- NÚ KR. ÁÐUR KR. 232.800 - NÚ KR.
ÁÐUR KR. 226.800 - NÚ KR.
313.700 178.000
PETRA - HORNSÓFI 260X210
ÁÐUR KR. 199.900 - NÚ KR. 149.900174.600
189.900
298.200
27.300
79.900
PÚÐAR
20-50%
AFSLÁTTUR