Fréttablaðið - 29.08.2013, Side 48
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
Fljótlega eftir dauða söngvarans
James Brown árið 2006 var orð-
rómur á kreiki um að gera ætti
kvikmynd byggða á ævi hans.
Hins vegar kom engin mynd út og
ekkert hefur verið fjallað um það
vestanhafs fyrr en einmitt núna,
sjö árum eftir andlát goðsins.
Staðfest hefur verið að hinn
42 ára Chadwick Boseman, sem
lék í sjónvarpsþáttunum Lincoln
Heights, muni leika Brown. Leik-
stjóri myndarinnar, Tate Taylor,
sem leikstýrði meðal annars Ósk-
arsverðlaunamyndinni The Help,
sagði í viðtali nýlega að hann vildi
segja sögu Browns í myndinni,
frá því að hann var fátækur og
bjó í Georgíu þangað til hann varð
heimsfrægur söngvari fyrir smelli
eins og Papa´s Got A Brand New
Bag og I Feel Good.
Orðrómur er á kreiki þess efnis
að leikararnir Viola Davis, Nelsan
Ellis og Óskarsverðlauna hafinn
Octavia Spencer muni leika í
myndinni en ekkert hefur verið
staðfest að svo stöddu. Áætlað er
að tökur fari fram í Mississippi á
næstunni.
Loksins mynd um
goðið James Brown
Gera á kvikmynd byggða á ævi söngvarans.
LEIKUR JAMES BROWN Leikarinn
Chadwick Boseman fer með hlutverk
James Brown í kvikmynd sem byggir á
ævi kappans. NORDICPHOTOS/GETTY
Stórmyndin Elysium skartar Matt
Damon og Jodie Foster í aðalhlut-
verkum. Myndin er í leikstjórn
suðurafríska leikstjórans Neills
Blomkamp, þess sama og leik-
stýrði hinni vinsælu District 9
frá árinu 2009.
Sögusvið myndarinnar er Jörð-
in árið 2154. Mannfólkinu er skipt
í tvo hópa: þá stórefnuðu er hafa
búið sér heimili á geimstöðinni
Elysium og þá fátæku sem lifa lífi
sínu á Jörðinni, sem nú er orðin
rústir einar. Á Elysium búa hinir
efnuðu við ríkidæmi, öryggi og
fullkomna heilsu en á jörðu niðri
búa íbúarnir við fátækt og harð-
ræði. Jarðarbúa dreymir um
betra líf á Elysium en stjórnvöld
þar gera sitt ýtrasta til að varna
þeim inngöngu í paradís.
Max Da Costa, fyrrverandi
þjófur og fangi, er söguhetja
myndarinnar. Hann býr í rústum
Los Angeles-borgar og starfar í
framleiðsludeild stórrar verk-
smiðju er framleiðir vopn og
hvers kyns vélmenni fyrir íbúa
Elysium. Þegar hann veikist lífs-
hættulega ákveður hann að gera
tilraun til að komast til Elysium
og verða sér úti um lækningu.
Til þess að komast í geimstöð-
ina verður hann að slást í lið
með Spider, tölvuhakkara og
smyglara. Varnarmála ráðherra
Elysium, Jessica Delacourt,
hyggst þó vernda stöðina frá ólög-
legum innflytjendum og um leið
hrifsa til sín frekari völd, og hefst
þá hasarinn.
Tökur á Elysium hófust í júlí
árið 2011 og hlaut Blomkamp
rúma 14 milljarða í fjármagn.
Atriðin sem eiga að gerast á
ónýtri Jörðinni voru tekin upp
á ruslahaug í grennd við Iztapa-
lapa, fátækrahverfi í Mexíkó-
borg. Atriðin er gerast á geim-
stöðinni Elysium eru aftur á móti
tekin upp í hinu ríkmannlega
Huixquilucan-Interlomas hverfi
í sömu borg, sem og í Vancouver
í Kanada.
Suðurafríski tónlistarmaður-
inn Watkin Tudor Jones, betur
þekktur sem Ninja úr hljóm-
sveitinni Die Antwoord, átti upp-
haflega að fara með hlutverk Max
Da Costa. Þegar hann afþakkaði
leitaði Blomkamp til annars rapp-
ara, Eminem. Hann fór fram á að
myndin yrði að hluta til tekin upp
í heimaborg sinni, Detroit, sem
framleiðslufyrirtækin gátu ekki
sæst á. Matt Damon, sem fer með
hlutverk Max Da Costa, var því
þriðja val leikstjórans.
Elysium hefur hlotið ágæta
dóma og hlýtur 69 prósent í ein-
kunn á kvikmyndavefsíðunni
Rottentomatoes og 61 prósent á
Metacritic. - sm
Drungaleg framtíðar-
sýn Blomkamps
Kvikmyndin Elysium var frumsýnd í gær. Myndin skartar Matt Damon og Jodie
Foster í helstu hlutverkum og er í leikstjórn Neills Blomkamp.
HÖRÐ BARÁTTA Matt Damon fer með hlutverk Max Da Costa í kvikmyndinni Elysium.
Líkt og District 9 fjallar Elysium um stéttaskiptingu og ójafna skiptingu
auðs. Þegar Blomkamp var spurður út í drungalega framtíðarsýn sína
kvaðst hann ekki líta á kvikmyndina sem framtíðarspá, þvert á móti sagði
hann myndina lýsa núverandi ástandi heimsins. „Nei, nei, nei. Þetta er
ekki vísindaskáldsaga. Þetta er nútíminn. Þetta er núna,“ sagði leik-
stjórinn.
Lýsir nútímanum
Þrjá myndir verða frumsýndar í
kvikmyndahúsum föstudaginn 30.
ágúst. Má þar fyrst nefna teikni-
myndina Flugvélar, eða Planes
líkt og hún heitir á ensku. Myndin
fjallar um Dusty, litla flugvél sem
dreymir um að taka þátt í flug-
keppni. Eina vandamálið er að
hann er lofthræddur.
Þá verður heimildarmyndin The
Act of Killing einnig sýnd. Mynd-
in fylgist með fyrrverandi foringja
dauðasveita í Indónesíu setja á svið
fjöldamorð sem þeir frömdu á sjö-
unda áratug síðustu aldar. Atriðin
endurleika þeir í þeim kvikmynda-
stílum sem þeir óska sér, þar á
meðal í klassískum Hollywood-
glæpastíl og í stórbrotnum söng-
leikjastíl.
Að lokum má nefna myndina
Hross í oss. Kvikmyndin er eftir
Benedikt Erlingsson og er grimm
sveitarómantík um manninn í
hrossinu og hrossið í manninum.
Örlagasögur af fólki í sveit eru
sagðar frá sjónarhorni hestsins
þar sem ást, kynlíf, hross og dauði
fléttast saman með skelfilegum
afleiðingum.
Flugvélar og hestar
Þrjár myndir verða frumsýndar á föstudag.
FLUGVÉL Teiknimyndin Flugvélar verður frumsýnd á föstudaginn.
ÞOLÞJÁLFUN
LYFTINGAR
STEMNING
ÁRANGUR
Fyrir konur og
karla, CLUB FIT,
6-vikna námskeið
Mögulega besta æfingakerfi í heimi?