Fréttablaðið - 29.08.2013, Side 50
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Það er svo margt skrýtið við það að
vera kona. Frá því að ég man eftir
mér hef ég hlustað á, og seinna tekið
þátt, í samræðum um „fimm auka-
kíló“. Það er alveg sama hversu
þung ég er, það munu alltaf vera
þessi fimm. Til að leggja enn meiri
áherslu á mál mitt þá klíp í spikið
og hristi það duglega. Svo nenni ég
ekki að mála mig. Ég dey úr leið-
indum yfir umfjöllunum um nagla-
lökk og hvernig rétti farðinn geti
gert mig fallegri. Ég vildi stundum
óska að mér þætti þetta skemmti-
legt því þá kæmist ég inn í þann
heim kvenna sem er mér gersam-
lega óskiljanlegur en, að mér skilst,
mjög mikilvægur. Sætar konur fá
jú hærri laun. Líka þær sem eru
grennri. Svo á maður að vera sexí en
samt ekki of því það er druslulegt.
Ég er reyndar nokkuð viss um að
brjóstagjöf hrindi mér eins langt frá
kynþokka og hægt er. Svo ekki sé
minnst á óttann sem ég vek í brjósti
karlmanna við það að hafa kynnt
mér alls konar um kynlíf. En þessi
pistill átti ekki að vera um mig.
Hann á að vera um Miley Cyrus. Æ,
höfum við ekki allar dottið í þessa
gildru á einhverjum tímapunkti?
Langað svo innilega að slá í gegn og
vekja athygli, jafnvel hneyksla, en
við endum á því að gera okkur bara
að fíflum. Hún reyndi að ögra, vera
sexí, þora að sýna að hún væri full-
orðin kona án músaeyrna og að hana
mætti girnast. Ekki ósvipað týndum
táningsstelpum með fölsuð skilríki
uppi á barborði að dilla sér í stuttu
pilsi og engum nærfötum.
Miley gleymdi að syngja og gera
það vel. Hún bara dillaði sér og
strauk. Kannski af góðri ástæðu,
það verður að hneyksla. Það nennir
enginn að púkka upp á „góðu stelp-
una“. Þetta á sérstaklega vel við ef
þú ert ung kona. Gæinn sem Miley
var að nudda sér upp við á vinsæl-
asta lag sumarsins sem fjallar um
að rífa rassgat konu í tvennt, konu
sem langar í hann en samt ekki.
Hann var fullklæddur og raulaði
sinn nauðgunarsöng skammar-
laust og allur salurinn raulaði með.
En Miley hneykslaði og braut á
blygðunar kennd viðstaddra. Sem
svo rauluðu með nauðgunarsöng.
Hvar liggur ábyrgðin?
Mér leiðist samfélag þar sem
konur þurfa að fara í súlufimi til
að geta náð vinsældum í söng. Mér
leiðist útlitsdýrkun og megrunar-
möntrur. Mér leiðist samfélag þar
sem lög innihalda ljóta texta þegar í
raun væri hægt að bera fram falleg-
an boðskap. Mér leiðist að konur eigi
alltaf að vera í einhverjum leikjum,
hóflega sexí og hóflega graðar því
kynlíf má bara stunda með fáum
útvöldum. Mér leiðist þetta allt
saman og stundum nenni ég ekki að
vera kona og langar bara að fá að
vera ég. Óskilgreint kyn, bara ég.
Stundum nenni ég
ekki að vera kona
MILEY HNEYKSLAÐI Siggu Dögg leiðist
samfélag þar sem konur þurfa að fara
í súlufimi til að geta náð vinsældum í
söng. NORDICPHOTOS/GETTY
Íþróttaáhangendur leita hugg-
unar í mat þegar lið þeirra tapar.
Þetta leiðir nýleg rannsókn á
vegum INSEAD Business School
í Bandaríkjunum í ljós.
Fylgst var með aðdáendum
liða í bandarísku NFL-deildinni
og leiddi rannsóknin í ljós að
áhangendur liðanna neyttu meira
magns af sykri og mettaðri fitu
daginn eftir tapleik.
Fylgst var með íþróttaaðdá-
endum liða í NFL-deildinni í tólf
borgum í Bandaríkjunum og
var grannt fylgst með daglegum
neysluvenjum þeirra. Rannsókn-
in leiddi í ljós að neysla mettaðr-
ar fitu jókst um sextán prósent
daginn eftir tapleik, en ef liðið
sigraði minnkaði neyslan að sama
skapi um níu prósent.
„Fólk borðar betur þegar lið
þess ber sigur úr býtum og óholl-
ara þegar liðið tapar, sér í lagi ef
tapið var óvænt, tæpt eða gegn
liði í svipuðum styrkleikaflokki,“
sagði Yann Cornill, prófessor við
INSEAD Business School, um
niðurstöðu rannsóknarinnar.
Borða meiri
sykur eft ir tap
LEITA HUGGUNAR Aðdáendur íþrótta-
liða leita huggunar í mat eftir tapleiki.
NORDICPHOTOS/GETTY
„Við viljum hjálpa til við að minnka
útbreiðslu óniðurbrjótanlegra plast-
poka með því að hafa plastpoka-
lausa daga,“ segir tals maður Plast-
pokalausa laugardagsins, Dísa
Anderiman. Ef litið er á Ísland
eitt og sér, þá notum við í kringum
fimmtíu milljón óendurvinnanlega
plastpoka á hverju ári og segir Dísa
þessa gerviefnanotkun bæði óþarfa
og óábyrga gagnvart náttúrunni. „Í
fyrra hittumst við hópur kvenna þar
sem við ræddum ýmis samfélags-
mál. Við fórum að velta því fyrir
okkur hvað við gætum gert til þess
að bæta samfélagið okkar og vorum
við allar sammála því að notkun
plastpoka er vaxandi vandamál. Í
stað þess að bíða eftir að stjórnvöld
geri eitthvað róttækt í málinu, þá
ákváðum við að kýla á þetta sjálfar.“
Aðspurð segir Dísa að þetta sé
þeirra fyrsta verkefni og til að byrja
með einblíni hópurinn á plastpoka-
lausan laugardag. „Við viljum hvetja
alla Íslendinga til þess að hætta
að nota plastpoka á laugardögum
og taka þannig þátt í átakinu með
okkur, segir Dísa. Fólk er hvatt til
þess að nota margnota taupoka eða
svokallaða bio-poka sem eru líf-
rænir og umverfisvænir pokar og
brotna fyrr niður í náttúrunni en
hefðbundnir plastpokar. „Bio-pokar
eru úr náttúrulegum afurðum eins
og maíssterkju og brotna niður á
skömmum tíma í jarðgerðinni og
skilja því ekki eftir sig leifar eins
og plastpokinn gerir,“ segir hún.
„Við skorum á alla landsmenn að
taka þátt í þessu mikilvæga verkefni
með okkur, látum gott af okkur leiða
og tökum þátt í að bæta umhverfi
okkar,“ segir Dísa að lokum.
asa@365.is
Sleppum
plastpokum
í einn dag
Dísa Anderiman stendur fyrir átakinu Plastpoka-
lausum laugardegi, þar sem hún hvetur landsmenn til
að sleppa notkun á óendurvinnanlegum plastpokum.
VILL AÐ FÓLK HUGSI UM NÁTTÚRUNA Talsmaður Plastpokalauss laugardags, Dísa
Anderiman, hvetur sem flesta til þess að nota umverfisvæna poka á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Við notum margnota taupoka
í Aftur, það hefur verið stefna
okkar frá upphafi. Margir af
fastakúnnum okkar koma með
pokana sína til okkar aftur og
aftur. Ég hef það fyrir stefnu
að afþakka poka í verslunum
ef ég hef tök á því að halda á
vörunum. Flestir eru meðvit-
aðir um mikilvægi þess að nota
umhverfisvæna poka,“ segir
Bára Hólmgeirsdóttir, hönnuður
og eigandi tískuverslunarinnar
Aftur. Verslunin notar sérmerkta
taupoka undir vörur sínar.
Nota taupoka
Fullorðins
595»
Barna
295»
KOMD’Í
SHAKE