Fréttablaðið - 29.08.2013, Qupperneq 56
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
HANDBOLTI Gunnar Harðarson
mun að öllum líkindum ekki leika
meiri handbolta á þessu ári og
óvíst er hvort næsta tímabil er í
hættu hjá leikmanninum. Gunnar
hefur síðustu ár verið á mála hjá
Valsmönnum og leikið þar stórt
hlutverk í varnarleik liðsins sem
og verið ákveðinn leiðtogi innan
vallar. Hann hefur oft og tíðum
verið fyrirliði liðsins. Línumaður-
inn er uppalinn í Safamýrinni og
lék um tíma með Fram. Erfið bak-
meiðsli virðast vera að setja strik
í reikninginn hjá Gunnari en hann
átti erfitt með að beita sér að fullu
á síðasta tímabili.
„Ég efast stórlega um það að
ég nái að spila handbolta á næsta
tímabili,“ segir Gunnar í samtali
við Fréttablaðið.
„Ég hef ekki enn þá náð mér
góðum í bakinu og hugsa að ég
verði í stúkunni næsta vetur. Það
getur verið að maður komi til með
að taka eitthvað þátt en það verð-
ur þá aldrei fyrr en seint á tíma-
bilinu,“ segir Gunnar en það er
óljóst hvað er að hrjá leikmanninn.
„Það er ekki nákvæmlega vitað
hvað er að mér í bakinu. Þetta
virðist vera einhver grindar-
skekkja en læknar hafa útilokað
að um brjósklos sé um að ræða.“
Gunnar ætlar því líklega að
hvíla út næsta tímabil og ná sér
að fullu áður en hann fer aftur
inn á handboltavöllinn. Ferillinn
gæti samt sem áður verið í hættu
og skórnir gætu þurft að fara upp
í hillu. Mikill missir fyrir Vals-
menn. - sáp
Ferillinn í hættu hjá Gunnari
Bakmeiðsli gætu sett strik í reikninginn hjá línumanninum snjalla.
HÆTTUR? Gunnar Harðarson mun að öllum líkindum hvíla út næstkomandi tímabil
í handbolta, en hann berst við erfið bakmeiðsli. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Fjölnir og Þróttur mæt-
ast í 1. deild karla í knattspyrnu
í kvöld, en leikurinn er mikil-
vægur fyrir margar sakir. Allur
aðgangseyririnn rennur óskertur
til söfnunar sem Sigurður Hall-
varðsson stendur fyrir til styrktar
Ljósinu, sem er endurhæfingar-
og stuðnings miðstöð fyrir fólk
sem hefur fengið krabbamein og
aðstandendur þess.
Þessi mikli Þróttari hefur átt
í erfiðri baráttu við krabbamein
undanfarin ár og vill hann gera
allt í sínu valdi til að gefa til baka
til Ljóssins.
Sigurður mætti á dögunum í
heimsókn til Halldórs Einars-
sonar, eiganda Henson, og fékk
þar gefins glænýja treyju. Hún
var sérgerð fyrir Sigurð, en annar
helmingurinn var Fjölnisgulur
og hinn helmingurinn í rauð-
röndóttum Þróttaralitunum.
Ekkert félag stendur hjarta
hans nær en Þróttur en aftur á
móti leikur Aron Sigurðarson,
sonur Sigurðar, með Fjölni og er
þessi magnaði karakter einnig
tengdur Grafarvogsfélaginu.
Leikurinn hefst klukkan 18 í
kvöld á Fjölnisvelli. - sáp
Sigurður klár
fyrir leikinn
MAGNAÐUR Sigurður í nýja búningnum
ásamt Halldóri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓTBOLTI Þjóðverjinn Lukas
Podolski missir af næstu þremur
vikunum með Arsenal, en hann
tognaði illa í leiknum gegn Fener-
bahce í vikunni.
„Neikvæðu fréttirnar eftir
þennan leik eru að við erum lík-
lega að missa Podolski frá keppni
næstu þrjár vikurnar,“ sagði
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, eftir leikinn.
„Eins og allur heimurinn veit
erum við að leita að leikmönn-
um og vonandi náum við að
styrkja hópinn áður en félaga-
skiptaglugganum verður lokað.“
Podolski missi af stórslagnum
gegn Tottenham um helgina. - sáp
Podolski frá
í þrjár vikur
MEIDDUR Podolski hefur byrjað vel á
tímabilinu. NORDICPHOTOS/GETTY
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
14
8
8
1
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is
SEPTEMBER Á STÖÐ 2 SPORT
ER SPENNANDI FYRIR HESTAFÓLK
Við sýnum beint frá lokahnykk keppnistímabilsins í hestaíþróttum þegar Metamót
Spretts fer fram um helgina. Búast má við mikilli spennu og flottum tilþrifum enda
hefur Metamótið verið með vinsælustu mótum síðustu árin. Ekki missa af
æsispennandi og stórskemmtilegu Metamóti Spretts í beinni á Stöð 2 Sport!
Í september sýnum við tvo samantektarþætti frá mótinu og fjöllum ítarlega um
Heimsmeistaramót íslenska hestsins sem fram fór í ágúst í Berlín.
METAMÓT
SPRETTS
Bein útsending á Stöð 2 Sport 30. ágúst–1. september.
Telma Tómasson, Logi Laxdal og Steindór
Guðmundsson hafa umsjón með íslenskum
lýsingum frá Metamótinu á Stöð 2 Sport.