Fréttablaðið - 29.08.2013, Side 58
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT VEIÐI | 50
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu
með nöfnum sínum
og brúðkaupsdegi ísaumuðum.
Íslensk
kennslubók í
matreiðslu fylgir.
MIKIÐ ÚRVAL
BRÚÐARGJAFA
FOR THE WAY IT´S MADE
Gildir um KitchenAid
hrærivélar.
Stærsti lax sem veiðst hefur í
Elliðaám í sumar hljóp á færið
hjá Garðari Erni Úlfarssyni,
blaðamanni Fréttablaðsins, í gær
– rúmlega sjö og hálft kíló eða
fimmtán pund og 96 sentimetrar
að lengd.
Garðar var að vonum hoppandi
kátur þegar blaðamaður heyrði
í honum í gær, en þá var hann
nýbúinn að landa ferlíkinu. Og
brosti hringinn.
„Viðureignin tók um hálftíma.
Hann tók litla flugu sem heit-
ir Friggi. Svartan Frigga hálf-
tommu. Mér var gefin þessi fluga
í sumar af höfundinum sem ég
hitti á einum veiðistaðnum. Nú
prófaði ég hana þar sem heitir
Heyvað.“
Veiðistaðurinn er gamal-
þekktur og er ofarlega í ánni.
Garðar segir þetta ákaflega
vinsam legt af Elliðaánum í sinn
garð og spyr hvort til séu ein-
hverjar veiðireglur um hvenær
eigi að hætta að brosa?
Garðar tók laxinn á gamla
Hardy-stöng, 9,5 feta fyrir línu
átta.
„Þetta er stöng sem afi minn
átti. Hann var einmitt for maður
Elliðaárnefndar. Ég tileinka
þennan lax honum,“ segir Garð-
ar og segir þetta sérdeilis fínan
dag.
„Nokkrir mjög stórir hafa
veiðst í sumar, óvenju margir
stórlaxar í þessari alræmdu smá-
laxaá. Hver svo sem ástæðan er,“
segir Bjarni Júlíusson, for maður
Stangveiðifélags Reykjavíkur,
sem hefur umsjón með ánni.
Ólafur E. Jóhannsson er for-
maður árnefndar Elliðaáa og
hann segir þetta stærsta lax sem
veiðst hefur þar í sumar.
„Það hafa komið stærri fisk-
ar og við erum til að mynda með
einn tuttugu punda uppstoppaðan
hér uppi á vegg, í veiðihúsinu.“
Ólafi vefst tunga um tönn
þegar hann er spurður hver sé
stærsti lax sem veiðst hefur í
Elliðaánum enda hafa þar verið
stundaðar veiðar í á annað
hundrað ár. Og því erfitt að
segja.
„Eftir 1992 hefur ekki komið
stærri fiskur en 20 pundari.
Þessi lax er alls ekki sá stærsti
en glæsilegur engu að síður, ég
er ekki að draga úr því.“
Ólafur vigtaði laxinn eftir
kúnstarinnar reglum og kom þá
á daginn að hann var 7,56 kíló
eða 15 pund rúmlega og 96 senti-
metrar að lengd.
„Hann er leginn og farinn að
þynnast. Nýgenginn hefur hann
verið þyngri.“ jakob@365.is
STÓRLAXINN Stærðin á laxinum sést vel þar sem hann liggur við hlið annarrar
flugustangar Garðars. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stærsti laxinn úr
Elliðaám í sumar
Garðar Örn Úlfarsson dró stórlax úr Elliðaám í gær og vill tileinka afa sínum
fi skinn en Garðar veiddi laxinn á gamla Hardy-stöng úr fórum hans.
SKRÍMSLI ÚR ELLIÐAÁNUM Garðar Örn himinlifandi með laxinn, þann stærsta sem veiðst hefur í ánum í sumar. Fiskinn veiddi
hann á gamla veiðistöng sem afi hans átti en hann var einmitt formaður Elliðaárnefndar á sínum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég hélt mínu striki og er að verða eins konar „trend-
setter“ í þessum hópi. Það þykir ekkert flott lengur að fá
fisk heldur er aðalatriðið að segja sögur í veiðihúsinu. Og
á bakkanum. Ég tók með mér Rod Stewart-ævisöguna og
var mest að lesa upp úr henni á bakkanum. Meðan Þorvar
bróðir var að flengja ána. Þetta var ótrúlega dautt,“ segir
Jón Óskar Hafsteinsson myndlistarmaður og einn þekktasti
stangveiðimaður landsins. Þessi tiltekni hópur, sem Jón
Óskar fer árlega með í Laxá í Aðaldal, leggur upp úr því að
allir séu ákaflega snyrtilegir í klæðaburði í veiðiferðinni og
er ætíð haldin veisla á árbakkanum þar sem skart mennin
háma í sig dýrindis krásir.
Jón Óskar segir að í veiðihúsinu hafi verið sagðar veiði-
sögur frá því að fiskur var í ánni. „Svo er með okkur Máni
Svavarsson tónlistarmaður, sem er einhver flottasti sögu-
maður sem maður veit um, og hann hélt lífinu í okkur með
gamansögum og eftirhermum. Gunni Helga leikari tekur
svo alltaf sína spretti.“
„Flestir í þessum hópi hafa veitt á þessum tíma í Nesi í
fimm ár og var þetta óvenju slappur túr. Aðeins átta fiskar
og þar af aðeins einn tveggja ára fiskur, þrátt fyrir að sum-
arið í sumar hafi gefið mjög vel í Nesi,“ segir Ásmundur
Helgason – þrautreyndur veiðimaðurinn og einn félags-
manna. Ýmsar tilgátur voru um ástæður þess að laxinn
tók ekki hjá hópnum að þessu sinni; sunnanáttin slekkur
á ánni, hitasveiflur voru miklar, óvenju mikið vatn í ánni
og sitthvað fleira var tínt til. „En ekki að hugsast gæti að
veiðimenn væru ekki starfinu vaxnir. Reyndar var Hilmar
Hansson, sem er okkar fremstur veiðimanna, ekki með að
þessu sinni. En, þetta var frekar ónýtt.“ - jbg
FÉLAGARNIR Á myndinni er hópurinn sem var við veiðar á Nes-
svæðinu í Aðaldal um helgina. Þarna eru bræðurnir Nökkvi og Máni
Svavarssynir, bræðurnir Jón Óskar, Þorvar og Hringur Hafsteinssynir,
bræðurnir Gunnar og Ásmundur Helgasynir, Örn, Davíð, Börkur,
Sigvaldi, Sigþór og Þórir Grétar. MYND/ÁSMUNDUR HELGASON
Fínasti klúbburinn fékk fáa í Aðaldal
Fjör var í veiðihúsinu og fáir snyrtilegri um helgina en veiðifélagarnir á Nessvæðinu
Þetta er stöng
sem afi minn átti. Hann
var einmitt formaður
Elliðaárnefndar. Ég
tileinka þennan lax
honum.
Garðar Örn Úlfarsson, blaðamaður