Fréttablaðið - 29.08.2013, Side 62
29. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54
Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður og mið-
borgar stjóri, dvaldi nýlega í Los Angeles við upptökur
á nýrri plötu. Platan var unnin undir stjórn upptöku-
stjórans og gítarleikarans Pauls Brown, margverð-
launaðs tónlistarmanns, sem hefur meðal annars
unnið með tónlistarmönnum á borð við George Ben-
son, Patty Austin, Al Jarreau og Luther Vandross.
Tónlistin mun vera í anda ýmissa fyrri platna Jak-
obs sem komið hafa út í Bandaríkjunum, Asíu og Evr-
ópu, frumsaminn, fönkskotinn, instrúmental djass.
Í ferðinni notaði hann einnig tækifærið og tók upp
lag með hljómsveitinni Steed Lord fyrir Hljómskál-
ann sem sýnt verður í þættinum í september.
Jakob Frímann er ekki ókunnugur borg englanna,
en þar bjó hann og starfaði um árabil, meðal annars
fyrir bandaríska útgáfufyrirtækið Warner Brothers.
„Það var að áeggjan þeirra Hljómskálamanna
að við Steed Lord tókum upp lag saman. Þeir vildu
steypa þessum Los Angeles-staðsettu tónlistar-
mönnum saman. Afrakstur ferðarinnar verður lagð-
ur undir dóm hlustenda þegar þar að kemur,“ sagði
Jakob, sem vildi ekki tjá sig um verkefnin að öðru
leyti. - hó
Vann að tónlist í L.A. í sumar
Jakob notaði sumarfríið til að taka upp plötu og semja lag með Steed Lord.
SAMSTARF Svala Björgvinsdóttir söngkona og Jakob Frímann
Magnússon sömdu saman lag í Los Angeles í sumar fyrir
sjónvarpsþáttinn Hljómskálann.
„Christofer hafði heyrt lag með mér á
Facebook-síðu minni og spurði hvort
ég vildi syngja með sér. Það varð úr
að við sömdum saman lag í gegnum
Facebook sem við munum flytja á tón-
leikum á Harlem,“ segir Hallfríður Þóra
Tryggvadóttir, söngkona og háskóla-
nemi, um samstarf sitt við bandaríska
tónlistarmanninn Christofer Czecho-
wicz, sem kemur fram undir lista-
mannsnafninu Pál Vetika.
Að sögn Hallfríðar hefur Christofer
brennandi áhuga á landi og þjóð en hann
bjó hér um tveggja ára skeið og kynnt-
ist þá ýmsu fólki í tónlistarsenunni. Er
hann flutti aftur til Bandaríkjanna lang-
aði hann að kynna íslenska tónlist þar
ytra og úr varð samstarf á milli hans og
Útón.
„Það var skemmtilegt að semja lag
með manni sem ég hafði aldrei hitt og
það verður skemmtilegt að koma fram
á tónleikum með þessum frábæru lista-
mönnum,“ segir Hallfríður.
Auk hennar og Christofers munu tón-
listarmennirnir Captain Fufanu, Two
Step Horror og AMFJ koma fram.
Tónleikarnir eru eins og áður segir á
skemmtistaðnum Harlem í kvöld og
byrja klukkan 22. - hó
Sömdu lag í gegnum Facebook
Bandaríkjamaður heldur tónleika með íslenskum raft ónlistarmönnum á Harlem.
LISTAMENN Tónlistarmennirnir, frá vinstri: AMFJ, Hallfríður
Þóra Tryggvadóttir, Christofer Czechwicz, Two Step Horror og
Captain Fufanu. Þau koma fram á tónleikunum á Harlem á
fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Ég er maður rútínunnar og fæ mér
alltaf hafragraut með sólblóma fræjum
og smá sjávarsalti ásamt góðum
tebolla. Svo ef ég er í gourmet-skapi
skvetti ég smá kókosmjólk með og
jafnvel jarðarberjum eða bláberjum.“
Hjalti Jón Sverrisson, tónlistarmaður og guð-
fræðinemi
MORGUNMATURINN
„Ég er ein af níu keppendum í
úrslitum og eina stúlkan í hópnum.
Það var eins í fyrra, þá var ég eina
stelpan í fimm manna hópi,“ segir
Helga Guðmundsdóttir, meistara-
nemi í tölvunarfræði við Háskól-
ann í Reykjavík og keppandi í
Hakkarakeppni HR sem fram fer
á morgun.
Að sögn Helgu er hakkarakeppni
sem þessi hörkuspennandi áhorfs.
„Keppendur sitja uppi á sviði og
reyna að brjótast inn í tölvuna
hjá hver öðrum og verjast árás-
um hinna um leið. Það er stiga-
tafla á staðnum sem áhorfendur
fylgjast með og svo er keppninni
lýst á mannamáli. Þetta er eins og
hörkuspennandi fótboltaleikur,“
segir hún og hlær.
Keppnin er haldin í tengslum
við ráðstefnuna Nordic Security
Conference sem fer fram hér á
landi um þessar mundir. Á meðal
ráðstefnugesta er Katie Mouss-
ouris, yfirmaður öryggismála hjá
Microsoft.
„Þetta verður mjög strembin
keppni. Það eru til dæmis tveir
erlendir hakkarar sem fljúga að
utan til að taka þátt. Maður á það
til að verða stressaður í svona
aðstæðum og hugsa ekki jafn skýrt
og alla jafna, en þetta er samt
ofsalega gaman.“
Helga lauk grunnnámi í
tölvunar fræði við HR síðasta
vor. Lokaverkefni sitt vann
hún í starfsnámi við hina virtu
Fraunhofer-stofnun í Maryland í
Bandaríkjunum og var verkefnið
ætlað bandarísku geimferða-
stofnuninni, NASA. „Ég sinnti
rannsóknum sem notaðar eru til
að prófa notendaviðmót fyrir kerfi
sem NASA notar til að stjórna
gervihnöttum. Það er mjög mikil-
vægt að það séu ekki villur í þeim
kerfum,“ útskýrir hún.
Það krefst mikillar vinnu að
verða fær hakkari og segist Helga
hafa lært tökin á námskeiði í
tölvuöryggi sem kennt er við HR.
„Hver sem er getur lært að hakka
ef hann nennir að leggja tíma og
vinnu í það. Ég lærði að hakka á
námskeiði í tölvuöryggi, hugsun-
in er sú að til þess að verjast þarf
maður fyrst að læra að ráðast inn.
En það er ætlast til þess að fólk
nýti þessa kunnáttu ekki til ills.“
Keppnin fer fram í HR klukkan
19.30 og er öllum opin. sara@365.is
Eins og hörkuspenn-
andi fótboltaleikur
Helga Guðmundsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík,
er eina stúlkan sem tekur þátt í Hakkarakeppni sem fram fer annað kvöld.
HAKKARI Helga
Guðmundsdóttir,
meistaranemi í
tölvunar fræði við
HR, er eina stúlkan
sem tekur þátt í
Hakkarakeppni HR á
morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/
DANÍEL
DY
NA
M
O
RE
YK
JA
VÍ
K
1. SÆTI
BÓKSÖLULISTIN
N OG EYMUND
SSON
- KILJUR
VIKUM SAMAN
Í FYRSTA SÆTI!
„EINFALDLEGA
HREIN DÁSEMD“
★★★★★
„Stórkostleg saga.
Hún grætir og kætir.“
– Kristjana Guðbrandsdóttir,
DV
„Ekki láta sumarið líða
án þess að lesa Maður
sem heitir Ove ... í senn
hrífandi og fyndin.“
– Kolbrún Bergþórsdóttir,
Morgunblaðinu
– Kolbrún Bergþórsdóttir, Mbl.
„Feyki-
skemmtileg“
FRIÐRIKA BENÓNÝS, FRÉTTABLAÐINU
SKEIFUNNI | KRINGLUNNI | SPÖNGINNI