Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 2
25. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
Heiða Rún, ertu nokkuð
að hugsa um að ganga í
lögregluna?
„Nei, það er nóg fyrir mig að vera
lögreglukona í þykjustunni.“
Heiða Rún Sigurðardóttir fer með hlutverk
rannsóknarlögreglukonu í sjónvarpsþátta-
röðinni Hrauninu, en hún er sjálfstætt
framhald sjónvarpsþáttarins Hamarsins sem
sýndur var fyrir nokkru á RÚV.
DÓMSMÁL „Þeir neita þessu al-
farið en við vonumst til þess að ef
illa fer verði þeir sendir úr landi,“
segir Stefán Eyjólfsson, starfs-
mannastjóri Atlanta flugfé lagsins.
Þrír flugvirkjar hjá fyrirtækinu
voru handteknir við komuna til
Sádi-Arabíu grunaðir um ölvun á
dögunum. Mennirnir flugu til Ríad,
höfuðborgar landsins, þar sem þeir
starfa sem flugvirkjar á vegum
flugfyrirtækisins en þeir eru sak-
aðir um að hafa drukkið áfengi í
flugvélinni. Mennirnir neita al-
farið sök.
Réttarkerfið í Sádi-Arabíu er
afar ólíkt því evrópska. Samkvæmt
lögum í landinu geta mennirnir átt
von á nokkurra mánaða fangelsi
upp í það að vera hýddir opinber-
lega verði þeir fundnir sekir um
drykkju í flugvélinni.
„Ég er ekki sérfróður um lög
í Sádi-Arabíu,“ svarar Stefán
spurður hvort mennirnir gætu
átt von á því að vera hýddir. Sam-
kvæmt upplýsingum sem má finna
hjá Amnesty og vef breska utan-
ríkis ráðuneytisins geta þeir átt von
á slíkum refsingum.
„Það eru fordæmi fyrir því að
menn séu sendir úr landi verði
þeir fundnir sekir,“ segir Stefán
von góður en hann vonast til þess
að málið verði fellt niður.
Mennirnir þrír, sem eru allir á
fertugsaldri, eru á hóteli í Ríad en
þeir mega ekki yfirgefa borgina á
meðan málið er í rannsókn. Stefán
segir þá taka málinu með ró og
að yfirvöld þar í landi geri engar
athugasemdir við að þeir starfi hjá
flugfélaginu á meðan rannsókn
málsins stendur yfir.
Aðspurður hversu langan tíma
rannsókn málsins geti tekið svarar
Stefán því til að það viti í raun
enginn. „Það er í raun ómögulegt
að giska á það,“ segir hann.
Fyrirtækið vann að því hörðum
höndum í gær að útvega mönnunum
lögfræðing en þeir hafa ekki óskað
eftir aðkomu utanríkisráðu neytisins
vegna málsins. Hjá ráðuneytinu
fengust þau svör að lítil samskipti
væru á milli Íslands og Sádi-Arabíu
og að fyrirtæki sem hefðu starfað
lengi í landinu væru líklega betur
í stakk búin til þess að bregðast við
svona aðstæðum en ráðuneytið.
Verði mennirnir fundnir sekir
og ekki vísað úr landi gætu þeir
átt yfir höfði sér háa fjársekt,
nokkurra mánaða fangelsi, og/eða
vandar högg. Dómara er þá í sjálfs-
vald sett hversu mörg vandarhögg
hinn dæmdi þyrfti að þola.
valur@frettabladid.is
Lög í Sádi-Arabíu
heimila hýðingar
Flugvirkjarnir í Sádi-Arabíu gætu átt von á því í versta falli að vera hýddir opin-
berlega verði þeir fundnir sekir um áfengislagabrot í landinu. Starfsmannastjóri
Atlanta segir fordæmi fyrir því að erlendir ríkisborgarar séu sendir úr landi.
LÖGREGLAN Í SÁDI-ARABÍU Mennirnir voru handteknir á flugvellinum í Ríad.
MYND/AP
AIR ATLANTA Mennirnir starfa allir
sem flugvirkjar hjá Atlanta.
KENÍA, AP „Við höfum niðurlægt árásarmennina
og sigrast á þeim,“ sagði Uhuru Kenyatta, forseti
Kenía, í ávarpi til þjóðar sinnar í gær, eftir að her
og lögregla landsins höfðu unnið bug á gíslatöku-
mönnum í verslunarmiðstöð í Naíróbí.
Hann sagði fjögurra daga átök við hryðjuverka-
menn hafa kostað 240 manns lífið. Þar af hefðu
fimm hryðjuverkamenn látist en ellefu verið hand-
teknir.
Hann skýrði einnig frá því að þrjár hæðir í
Westgate-verslunarmiðstöðinni hefðu hrunið og að
töluvert mörg lík væru enn föst í rústunum.
Hann hótaði árásarmönnunum öllu illu: „Þessar
raggeitur munu fá að kynnast réttlætinu, rétt eins
og samverkamenn þeirra og stuðningsmenn, hvar
svo sem þeir leynast.“
Hópur vopnaðra manna réðst inn í verslunar-
miðstöðina á laugardag og hélt fólki þar í gíslingu
þar til kenískar öryggissveitir lögðu til atlögu
gegn þeim á mánudag.
Al Shabab, samtök herskárra íslamista í Sómalíu,
hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni og segja hana gerða
í hefndar skyni fyrir árásir kenískra hermanna í
Sómalíu. - gb
Forseti Kenía lýsti yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna dauðsfalla í Naíróbí:
Gíslatökumenn yfirbugaðir
ÆTTINGJAR EINS HINNA LÁTNU Fyrir utan verslunarmið-
stöðina í Naíróbí hefur fjöldi fólks fylgst með framvindu mála
síðustu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVEITARSTJÓRNARMÁL Framkvæmdir eru hafnar á Hljómalindar-
reitnum, svokölluðum Hjartagarði, þar sem fyrirhugað er að reisa 142
herbergja hótel.
„Við byrjuðum að loka svæðinu í síðustu viku,“ segir Pálmar Harðar-
son, talsmaður Þingvangs ehf. sem á Hljómalindarreitinn og stendur
fyrir framkvæmdum við hann. „Það er búið að leggja teikningarnar
nokkrum sinnum fram en alltaf hafa komið einhverjar athugasemdir.“
Hann vonaðist til að fyrstu teikningarnar fengjust samþykktar í gær. - kh
Framkvæmdir hafnar við Hjartagarðinn í Reykjavík:
Svæðinu lokað fyrir umferð
GARÐURINN LOKAÐUR AF Niðurrif á Hljómalindarreit hefst á næstu vikum. Rifin
verða húsin Smiðjustígur 4 og 4a og Hverfisgata 32 og 34. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMFÉLAGSMÁL Landlæknir segir
það nauðsynlegt að greina betur
hvaða læknisþjónustu einstak-
lingar í lágtekjuhópi neita sér um
vegna þess að þeir hafa ekki efni
á henni.
Stefán Ólafsson, prófessor í
félagsfræði við Háskóla Íslands,
birti í vikunni færslur á bloggi
sínu þar sem fram kemur að tæp-
lega helmingi fleiri í lágtekjuhópi
þurftu að neita sér um læknis-
þjónustu vegna kostnaðar árið
2011 en árið 2009.
Þ á vek u r
a t h y g l i a ð
Ísland er við
hlið Grikklands
og Ítalíu í þess-
um efnum, en
bæði lönd fóru
illa út úr efna-
hagshruninu.
Geir Gunn-
laugsson land-
læknir segir
þetta vera áhyggjuefni.
Hann segir tölur liðinna ára
benda til þess að það sé ákveðinn
ójöfnuður hvað varðar aðgengi að
læknisþjónustu og þá sérstaklega
hjá ákveðnum efnaminni þjóð-
félagshópum.
Geir er á því að það þurfi að
skoða hvers vegna Ísland er mun
neðar en hin norrænu ríkin í
þessum efnum.
„Og reyna að greina betur
hvaða þjónusta það er sem ein-
staklingarnir eru að neita sér um
vegna fjárhags,“ segir hann.
- hv
Nær helmingi fleiri þurftu að neita sér um læknisþjónustu vegna kostnaðar:
Ísland á pari við Grikki og Ítali
GEIR GUNN-
LAUGSSON
DÓMSTÓLAR
Ákærður fyrir barnaklám
Ríkissaksóknari hefur ákært þrítugan
Reykvíking fyrir vörslu kynferðislegs
myndefnis af börnum. Eftir að lagt
var hald á tölvu hans í desember í
fyrra fundust í henni 5.244 ljós-
myndir sem sýndu börn á kynferðis-
legan eða klámfenginn hátt og auk
þess tíu stuttar kvikmyndir, að því er
segir í ákæru.
HEILBRIGÐISMÁL
Má ekki undirrita
Heilbrigðisráðherra hefur ekki fengið
heimild til að undirrita fyrirliggjandi
samning við Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins (SHS) um sjúkraflutninga.
Þetta kom fram á stjórnarfundi
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
í vikunni. Stjórnin vill fá fund með
heilbrigðisráðherra.
SVÍÞJÓÐ Alnæmissmitaður maður
sem hefur verið eftirlýstur frá
árinu 1998 í Svíþjóð fyrir að hafa
stundað kynlíf með yfir 100 ein-
staklingum án þess að nota verjur
er nú laus allra mála. Sak sóknari
hefur hætt rannsókn þar sem brot
mannsins eru fyrnd, að því er
sænskir fjölmiðlar greina frá.
Maðurinn, Mehdi Tayeb, var
grunaður um að hafa stundað kyn-
líf með 130 konum og tveimur
körlum. Einn þessara einstaklinga
smitaðist af alnæmi. Þrátt fyrir
að hafa verið eftirlýstur um allan
heim hefur hinum grunaða tekist
að vera í felum fyrir lögreglunni
undanfarin 15 ár. - ibs
Rannsókn saksóknara hætt:
Brot alnæmis-
smitaðs fyrnd
AKUREYRI Bæjarstjórinn á Akur-
eyri og framkvæmdastjóri Fall-
orku ehf. hafa samið um að
Fallorka reisi og reki vatnsafls-
virkjun í Glerá ofan Akureyrar.
Skrifað var undir samning þar að
lútandi í gær.
Meginmarkmið með fram-
kvæmdinni er sagt vera að nýta
endur nýjanlega náttúruauðlind
til að framleiða raforku á hag-
stæðu verði fyrir viðskiptavini
Fallorku sem að stórum hluta séu
Akureyringar. - ebg
Samningur undirritaður:
Ný vatnsafls-
virkjun í Glerá