Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 40
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301 Ketill Sigurjónsson, lögfræðingur og MBA.
Hin
GUÐRÚN
HÖGNADÓTTIR
hliðin
www.saft.is
KOMDU UPPLÝSINGUM UM ÞAÐ SEM ÞÚ
TELUR ÓLÖGLEGT EFNI Á NETINU TIL
RÉTTRA YFIRVALDA
Spriklandi fersk eftir líkamlega, andlega
og félagslega endurhæfingu í faðmi
95 vinkvenna í Barcelona um síðustu
helgi varð mér hugsað til þess hversu
vanmetinn máttur nærvera er. Hvernig
sköpum við tóm til að leysa úr læðingi
þá samlegð sem verður til þegar fólk
kemur saman – til að hlusta, læra,
skapa og styðja hvert annað? Hvernig
hlöðum við batteríin þegar meðal-
vinnuvika íslenskra stjórnenda er 55
klukkustundir samkvæmt stjórnenda-
könnun VR? Næring, hreyfing og hvíld
eru álitnir klassískir orkugjafar, en sam-
kvæmt nýlegum rannsóknum taugasál-
fræðinga er tenging (e. connection)
ein áhrifamesta leiðin til að endurnýja
orkubirgðir okkar og auka lífsgæði og er
heilanum okkar lífsnauðsynleg.
Orka hugans kjarni lífsins
Aristóteles sagði að orka hugans væri
kjarni lífsins – í lífsspeki Hávamála
kemur fram að í félagsskap annarra liggi
hamingjan og tilgangurinn. Samkvæmt
rannsóknum FranklinCovey er tenging
ein af fimm mikilvægustu leiðunum til
að brenna ekki út og eykur til muna
framleiðni vinnustaða. Einn áhrifamesti
starfsánægjuþátturinn skv. Gallup er
hvort við eigum „góðan vin í vinnunni“.
Leiðir til að auka ánægju
Tækifæri til umbóta liggja fyrst og
fremst í að breyta viðhorfum okkar og
skipulagi og uppskera sem aldrei fyrr
með aga, forgangsröðun og gleði. Hér
koma nokkrar einfaldar leiðir til að auka
framleiðni og ánægju sem munu ekki
beygla budduna.
• Taktu frá a.m.k. tvær klukkustundir
vikulega til að tengjast öðrum án
allra hagsmuna. Exedra, Leiðtoga-
Auður, Rótarý, Ljósið, Stjórnvísi,
foreldrahópar og badmintonkvöld
eru allt dæmi um vettvang sem hafa
þjónað mér vel í gegnum árin.
• Breyttu viðhorfi þínu. Samvera er
ekki lúxus sem maður afneitar. Sam-
vera er lífsnauðsynlegur orkugjafi
sem mun endurspeglast í þjóðar-
framleiðslu og lífsgæðum. Settu
samverustundir í forgang – t.d.
geta sunnudagskvöldverðir í faðmi
stórfjölskyldunnar verið uppspretta
framúrskarandi næringar inn í
vinnuvikuna.
• LinkedIn og Facebook eru mikilvæg
samskiptatorg. En ekkert kemur í
stað alvöru samveru – þar sem við
finnum að einhver er virkilega til
staðar, veitir okkur óskipta athygli,
skorar á okkur og skilur. Kipptu
vini með þér í hundalabbitúrinn
eftir vinnu eða taktu vinnufundinn
gangandi úti – það jafnast ekkert á
við að labba og rabba.
• Búðu til sjóð opinna spurninga til
að koma samtalinu af stað. „Hvað
færir þér mesta gleði?“ „Af hverju í
síðustu viku ert þú stoltust(astur)?“
„Hvar sérðu sjálfa(n) þig eftir fimm
ár?“ „Hvernig samfélag er Ísland í
fullkomnum heimi?“ Geðorðin tíu
minna okkur á að „reyna að skilja og
hvetja aðra í kringum þig“.
• Lærðu aftur að hlusta. Notaðu
þögnina, ekki þykjast hlusta á
meðan þú ert að búa til þitt eigið
svar í huganum. Vertu bara til staðar.
Samkvæmt kínverskri speki er æðsta
gjöfin sem þú gefur nokkrum manni
skilningsrík hlustun.
Bítlarnir skoruðu á okkur að koma
saman. „Come together right now“ –
og höldum áfram að hlúa að velferð
þjóðar.
Er ekki kominn
tími til að tengjast?