Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 30
Stöð 2 hefur hafi ð sýningar á fjórðu þáttaröð Boardwalk Empire. Þættirnir margverðlaun- uðu fjalla um stórlaxinn Nucky Thompson sem réð lögum og lofum í Atlantic City í New Jersey á bannárunum snemma á síðustu öld. Þættirnir eru byggðir á bókinni Boardwalk Empire: The Birth, High Times, and Corrup- tion of Atlantic City þar sem greint er frá sögu glæpamannsins Enoch L. Johnson. Þættirnir hafa hlotið mikið lof og hafa til að mynda hlotið tólf Emmy-verðlaun og Golden Globe-verðlaunin sem besti dramaþátturinn. Steve Buscemi fer með titilhlutverkið í þáttunum en hann þykir með betri karakter- leikurum. Helst er hann þekktur fyrir hlutverk sín í myndum Cohen bræðra, til dæmis Mill- er‘s Crossing, Barton Fink, The Hud sucker Proxy, Fargo og The Big Lebowski. STÓRKARLINN NUCKY ÓMIS SPENNUÞÆT James Spader er mættur til leiks í spennuþættinum The Blacklist sem hefur göngu sína á Stöð 2 á fimmtudagskvöld. Þættirnir hófu göngu sína í bandarísku sjónvarpi á mánudag og hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda. Spader leikur Raymond „Red“ Redd- ington, fyrrverandi leyniþjónustumann sem hvarf sporlaust fyrir mörgum árum og er nú eftirlýstur af bandarískum yfirvöldum fyrir að selja hryðjuverkamönnum leynileg gögn. Hann gefur sig fram í höfuðstöðvum FBI og býðst til þess að aðstoða alríkislögregluna við að handsama aðra eftir- lýsta hryðjuverkamenn. Einu skilyrðin sem hann setur er að hann fái lífvörð, herbergi á fínu hóteli og að vinna með ungum nýliða innan FBI, Elizabeth Keen. Tengsl hans við Keen eru öllum ókunn, jafnvel henni sjálfri, en þau munu skýrast þegar líður á þáttaröðina. Þátt- unum hefur gjarnan verið líkt við stórmyndina Silence of the Lambs. Þættirnir hófu göngu sína á NBC-sjónvarpsstöðinni á mánudagskvöld og fengu mjög góðar viðtökur. The Hollywood Reporter fer lofsamlegum orðum um fyrsta þáttinn og segir m.a. að Spader sé óviðjafnanlegur í aðalhlutverkinu og að handritshöfundunum takist að gera þáttinn einstaklega spennandi. Variety segir að The Blacklist sé einn af bestu nýju þáttunum í vetur og TV Guide segir að þátturinn sé fullkomin blanda af hasar og vel skrifaðri ráðgátu. BOARDWALK EMPIRE Kl. 22.10 sunnudag THE BLACKLIST Kl. 21.10 fi mmtudag SPAUGSTOFAN Kl. 19.35 laugardag 6 MIÐVIKUDAGUR 25. september 2013 Spéfuglarnir í Spaugstofunni birtast á skjánum á ný á laugardagskvöldið með fullt af nýju og skemmtilegu efni í farteskinu, enda af nógu að taka. „Við reynum alltaf að breyta eitthvað til á hverju hausti og fi nna nýja fl eti til að gera grín að samfélaginu. Sumarið sem aldrei kom verður í hávegum haft í fyrsta þættinum og skyggnst inn í sumarþingið en ég segi ekki meira,“ sagði Örn Árnason þegar við slógum á þráðinn til hans. Spaugstofumenn hafa fengið nýjan meðlim í hópinn. „Við höfum fengið Ladda til að vera með okkur í fyrstu fi mm þáttunum en hann er nátt- úrulega alveg frábær hæfi leikamaður. Með nýrri ríkisstjórn eru mörg ný andlit og þess vegna ágætt fyrir okkur gömlu hundana að fá einn hund í viðbót í liðið,“ segir Örn og segir að áhorfendur verði ekki sviknir því undirbúningur hafi verið á fullu og mikið um að vera. „Við verðum beittir og stingum á skemmtilegum kýlum. Fólk fær að sjá hina hlið samfélagsspegilsins,“ segir Örn enn fremur en þess má geta að þetta er 29. árið sem Spaugstofan grínar. „Á næsta ári verður þrítug- asta árið og ætli við segjum þetta ekki gott þá. Þrjátíu er falleg tala og við getum farið að horfa í aðrar áttir án þess að ég vilji hljóma eins og Besti fl okkurinn sem svíkur öll loforð.“ LADDI GENGUR TIL LIÐS VIÐ SPAUGSTOFUNA Laddi á eftir að spauga eins og honum einum er lagið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.