Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 50
25. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26 LENGJUBIKARINN 8 LIÐA ÚRSLIT STJARNAN - SNÆFELL 85-97 (45-42) Stjarnan: Marvin Valdimarsson 22, Justin Shouse 16/12 stoðs., Sigurður Dagur Sturluson 10, Fannar Freyr Helgason 10/11 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 10, Sæmundur Valdimarsson 2. Snæfell: Sigurður Á. Þorvaldsson 18/7 stoðs., Finnur Atli Magnússon 17, Zachary Jamarco Warren 15/8 frák./7 stoð./6 stolnir, Kristján Pétur Andrésson 11, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 10, Sveinn Davíðsson 3, Stefán Karel Torfason 2. KEFLAVÍK - ÞÓR ÞORL. 98-77 (52-39) Keflavík: Darrel Keith Lewis 23, Michael Craion 21/10 fráköst, Valur Orri Valsson 17/8 stoðs., Andri Daníelsson 10, Þröstur Leó Jóhannsson 7, Magnús Þór Gunnarsson 5, Guðmundur Jónsson 5, Gunnar Ólafsson 4, Arnar Freyr Jónsson 3, Hafliði Már Brynjarsson 3. Þór Þ.: Mike Cook Jr. 32/10 fráköst, Nemanja Sovic 17, Emil Karel Einarsson 9, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 7, Halldór Garðar Hermannsson 5, Tómas Tómasson 4, Davíð Arnar Ágústsson 3. NJARÐVÍK-GRINDAVÍK 83-84 (46-42) Njarðvík: Logi Gunnarsson 26/5 fráköst, Nigel Moore 15/14 fráköst/5 stoðsendingar, Snorri Hrafnkelsson 14, Elvar Már Friðriksson 11/5 fráköst/5 stoðsendingar, Hjörtur Hrafn Einarsson 7/4 fráköst, Ágúst Orrason 6/5 fráköst, Egill Jónasson 2/4 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 2. Grindavík: Jóhann Árni Ólafsson 19/8 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 15/12 fráköst, Ólafur Ólafsson 14/6 fráköst, Þorleifur Ólafsson 11, Ómar Örn Sævarsson 9/7 fráköst, Daníel Guðni Guðmundsson 7, Jón Axel Guðmundsson 5, Hilmir Kristjánsson 4. KR - KFÍ 84-80 (45-43) KR: Brynjar Þór Björnsson 19/6 stoðs., Darri Hilmarsson 16, Ólafur Már Ægisson 15, Helgi Már Magnússon 15, Pavel Ermolinskij 9/10 frák./5 stoðs., Magni Hafsteinsson 5, Jón Orri Kristjánsson 3, Kormákur Arthursson 2. KFÍ: Jason Smith 23/5 stoðs., Mirko Stefán Virijevic 21/11 fráköst, Hraunar Karl Guðmundsson 12, Jón Hrafn Baldvinsson 12, Ágúst Angantýsson 7, Pavle Veljkovic 4, Guðmundur Jóhann Guðmundsson 1. UNDANÚRSLITIN: Fös 27. sept: Keflavík- Snæfell og Grindavík-KR. ÍSLAND SVISS - Undankeppni HM - Fimmtudaginn 26. september - Klukkan 18:30 - Laugardalsvöllur - Kveðjuleikur Katrínar Jónsdóttur - Miðasala á Miði.is SPORT FÓTBOLTI Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, tók brosandi og afslappaður á móti íslensku blaðamönnunum þegar landsliðið hélt opna æfingu í gær. Fram undan er fyrsti leikur hans sem þjálfari á fimmtudagskvöldið og verkefnið er að stoppa sjóðheitt sóknarlið Sviss, sem skoraði níu mörk á móti Serbíu um síðustu helgi. Með skemmtilegt sóknarlið „Ég sá styrkleika þeirra mjög vel og við sáum hvernig þær vilja spila sóknarlega. Þær voru í sókn allan leikinn. Þetta er bara ákveðin áminning fyrir okkur að þær eru með þrusulið og að við þurfum að vera á tánum. Þetta er mjög skemmtilegt sóknarlið en við ætlum að taka hressilega á þeim og loka fyrir þeirra styrkleika,“ segir Freyr. Hann tók við íslenska liðinu af Sigurði Ragnari Eyjólfssyni, sem hafði náð sögu- legum árangri með liðið og nú síðast komið lið- inu í átta liða úrslitin á EM. Nú stefna íslensku stelpurnar á að komast á HM í fyrsta sinn en mótherjarnir frá Sviss hafa aldrei komist á stórmót. Lykilmennirnir eru stórstjörnur „Ég er búinn að tala um það áður að lykilmenn þeirra eru stórstjörnur og alvöru leikmenn sem eru að spila í toppliðum. Við þurfum að ná að loka á þær og á sama tíma þurfum við að ráð- ast á veikleikana þeirra. Við erum mjög vel undirbúin og ég fékk frábæra skýrslu frá Betu (Elísabet Gunnarsdóttir) um þær,“ sagði Freyr. Stærsta stjarnan í svissneska liðinu er örugglega Ramona Bachmann, liðsfélagi Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og Þóru Bjargar Helgadóttur hjá sænska liðinu LdB Malmö. Sara Björk veit því manna best hversu öflugur leikmaður Bachmann er en þær eru jafnaldrar. „Hún er rosalega góð og einn besti leikmaðurinn í sænsku deildinni. Við þurfum að hafa góðar gætur á henni. Hún er rosalega fljót og rosalega teknísk. Hún er hættuleg ef hún nær að snúa með boltann og mjög góð ein á móti einum,“ segir Sara en hún þekkir líka veikleikana vel. Pirrast mjög fljótt „Hún er líka svona karakter sem pirrast mjög fljótt ef að það er tekið vel á henni. Við erum þannig lið sem pirrar þær og tekur vel á þeim. Við munum verjast vel og vera nálægt þeim því Ramona er ekki eini góði leikmaðurinn í þessu liði. Þær eru nokkrar,“ segir Sara. Ramona Bachmann skoraði tvö mörk í sigrinum á Serbum en Ana Maria Crnogorcevic skoraði fernu. Sara Björk segir þær Ramonu ekki hafa rætt mikið um komandi leik. „Við ræddum aðeins saman áður en við fórum í verkefnin og bara um að það væri gaman að spila hvor á móti ann- arri. Við hjá Malmö-liðinu erum að fara að spila mikilvæga leiki eftir landsleikjahléið og leik- mennirnir í liðinu sögðu við mig: Ekki meiða hana. Ég svaraði bara að ég gæti ekki lofað neinu,“ segir Sara glottandi. Ný og skemmtileg orka Sara er bjartsýn eftir fyrstu æfingar liðsins undir stjórn Freys. „Það er ný og skemmtileg orka í hópnum og góð stemning. Sterkustu þjóð- irnar í riðlinum eru Danmörk og Sviss og það er rosalega mikilvægt að taka þrjú stig á móti þessum liðum. Við erum alltaf sterkari á heima- velli og viljum klárlega nýta okkur það,“ sagði Sara að lokum. ooj@frettabladid.is Ekki meiða hana FÉKK SÉRSTAKA BEIÐNI Í SVÍÞJÓÐ Liðsfélagar Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í Malmö óttuðust að hún myndi láta Ramonu Bachmann, leikmann Malmö og svissneska landsliðsins, finna of mikið fyrir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Íslenska kvennalandsliðið mætir Sviss á Laugardalsvellinum á morgun í fyrsta leiknum í undankeppni HM 2015 og í fyrsta leiknum undir stjórn Freys Alexanderssonar. Sara Björk Gunnarsdóttir þekkir vel til frægasta leikmanns svissneska liðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.