Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 38
 | 6 25. september 2013 | miðvikudagur GEYMSLURÝMI Á NETINU SVIPMYND Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is Rakel Sveinsdóttir, framkvæmda- stjóri nýsköpunarfyrirtækisins Spyr, er þessa dagana að flytja fyrirtæki sitt í frumkvöðlasetrið á Eiðistorgi. Fyrirtækið, sem er að hennar sögn mitt á milli þess að vera fjölmiðill og samfélags- miðill, hefur í um ár boðið not- endum spyr.is upp á að senda inn spurningar sem starfsfólk vefsins leitar svara við og deilir með les- endum síðunnar. „Ég var áður framkvæmdastjóri hjá Creditinfo og þegar ég kvaddi fyrirtækið vorið 2011 vissi ég að það væru spennandi og skemmti- legir tímar fram undan og sú varð raunin,“ segir Rakel og bætir því við að hún hafi alla tíð unnið við skemmtileg störf. „Vinnan á að vera skemmtileg og ég hef verið einstaklega lánsöm í þeim efnum.“ Rakel lærði framleiðslu- og rekstrarstjórnun fyrir sjónvarp í Los Angeles á árunum 1991-1992. Hennar fyrsta alvöru starf var sem sölustjóri á Morgunblaðinu. „Þar var ég til þrítugs þegar ég réð mig sem auglýsingastjóra Norðurljósa og þar á eftir rak ég talsetningarfyrirtækið Hljóðsetn- ingu,“ segir Rakel. Sumarið 2005 tók hún við starfi framkvæmdastjóra Fjölmiðlavakt- arinnar, sem síðar var sameinuð Lánstrausti, undir nafni Creditinfo. „Þá tók við mjög spennandi tími og það var mikil áskorun að leiða sameininguna því þessi vanskila- og fjárhagshluti sem fylgdi Láns- trausti var algjörlega nýr fyrir mér.“ Rakel er fædd í Stykkishólmi en eiginmaður hennar, Gylfi Freyr Konráðsson, girðingaverktaki og starfsmaður Stólpagáma, er frá Hellissandi. Þau eiga tvö börn, Jóhönnu sem er tíu ára og Má sem er sex ára. Að auki eru hundur og köttur á heimilinu. „Við hjónin vinnum mikið en leggjum áherslu á að helgarnar séu tileinkaðar fjölskyldunni. Annars erum við dugleg að ferðast, fara í útilegur, berja- ferðir og ferðalög til útlanda. Ég er þó ekki jafn mikið fyrir hesta- mennsku og útivist og hinir þrír með limir fjöl skyldunnar. En ég er mikill bókaormur og get á meðan lesið þeim mun fleiri bækur,“ segir Rakel. Spurð hvort hún eigi f leiri áhugamál en bóklestur segir Rakel að hún sé einnig frétta- og þjóð- félagsumræðufíkill. „Þess vegna á núverandi starf þeim mun betur við mig,“ segir Rakel. Vinnan á að vera skemmtileg Rakel Sveinsdóttir hefur undanfarið ár rekið nýsköpunarfyrirtækið Spyr. Hún segir starfið eiga vel við sig þar sem hún sé frétta- og þjóðfélagsumræðufíkill. Rakel segist vera mikill bókaormur sem að komi sér vel á ferða- lögum þegar aðrir úr fjölskyldunni vilji stunda útivist. Ég kynntist Rakel fyrst þegar hún starfaði fyrir Morgunblaðið. Það er óhætt að segja að hún sé ótrúlega kraftmikil, útsjónarsöm og lifandi manneskja. Hvar sem ég hef séð til hennar í starfi, hvort sem er hjá Morgun- blaðinu, Creditinfo eða í sprotafyrirtækinu Spyr, er hún sérlega drífandi og sér tækifæri sem jafnvel blasa ekki við hverjum sem er. KRAFTMIKIL OG ÓSÉRHLÍFIN EGILL ÖRN JÓHANNSSON, framkvæmdastjóri Forlagsins. Við Rakel kynntumst hjá Norðurljósum og höfum verið vinkonur síðan. Hún sýnir öllum í kringum sig áhuga, kann að samgleðjast og er vinur vina sinna. Rakel hefur mikið keppnisskap, er ósérhlífin til vinnu, mjög einbeitt og tekst það sem hún ætlar sér. Hún er bóngóð og hikar ekki við að taka að sér krefjandi verkefni. Rakel hefur mikinn sannfæringarkraft og tókst meðal annars að fá mig með sér til Marbella á Spáni með þriggja tíma fyrirvara. Sú ferð gleymist seint enda er gaman að vera prakkari með Rakel. JENSÍNA K. BÖÐVARS- DÓTTIR, framkvæmdastjóri hjá Landsbank- anum. Rakel er frábær samstarfsmaður í hverju sem hún tekur sér fyrir hendur, því hún gengur af röggsemi í öll verk með jákvæðni og húmorinn að leiðarljósi. Ég kynntist Rakel í gegnum starf FKA þegar við tókum saman sæti í fræðslunefnd félagsins fyrir nokkrum árum. Þrátt fyrir að hún vilji helst einblína á það sem er skemmtilegt hikar Rakel ekki við að tækla það sem er erfitt og fylgir því vel eftir. HELGA MARGRÉT REYKDAL, framkvæmdastjóri True North. RAKEL SVEINSDÓTTIR Framkvæmdastjóri Spyr leggur mikla áherslu á skemmtilegt starfsumhverfi. TÆKNI Þorgils Jónsson | thorgils@frettabladid.is Síðustu misseri hefur tölvuheimurinn að miklu leyti snúist um „skýið“, það er að í stað þess að geyma gögn og vinna með þau á netþjónum eða hörðum diskum innan veggja fyrirtækja og heimila eru þau staðsett á mið- lægum netþjónum. Best þekkta þjónustan í þessum geira er sennilega Dropbox en risarnir Microsoft, Google og Apple eru einnig meðal þeirra sem bjóða upp á slíkar lausnir. Ísland á sinn fulltrúa í skýjaheimum, sem er sprotafyrirtækið Greenqloud. Tryggvi Lárusson, þróunarstjóri fyrirtækisins, segir að það hafi hingað til einbeitt sér að lausnum fyrir fyrirtæki en nú sé unnið að lausn í lík- ingu við þær sem um er getið hér að ofan. Tryggvi að áherslan í þessum efnum sé að gera þessar lausnir auðveldari og örugg- ari fyrir notendur. Hann segir aðspurður að óhætt sé að treysta því að geyma gögn á vefnum. „Yfirleitt eru mjög sterkar öryggis- varnir byggðar í þessar lausnir og flestar verja þær sig gagnvart gagnatapi með því að geyma gögnin á fleiri stöðum en einum samtímis. Það er margfalt öruggara en að vera með allt á einum hörðum diski sem tengdur er við tölvuna. Svo er hraðinn að aukast og verðið á þjónustunni lækkar á hverju ári, þannig að í dag eru þær jafn- vel orðnar ódýrari en að kaupa sér harðan disk.“ Varðandi framhaldið segist Tryggvi viss um að í fyllingu tímans muni skýið taka við af hörðum diskum. „Það er bara spurning um tíma.“ Framtíð gagnanna er falin í skýinu Margar lausnir standa þeim til boða sem vilja afrita og geyma ljósmyndir eða önnur gögn á netinu. Í skýinu má nú nálgast mikið geymslurými án endurgjalds. Sérfræðingur segir skýið mun öruggara en hefðbundnari að ferðir og að það muni brátt skáka hörðu diskunum. r - vinna með þér öruRekstrarv www.copy.com ➜ 15 GB* ➜ 99$ á ári (250 GB) www.bitcasa.com ➜ 10 GB ➜ 99$ á ári (ótakmarkað pláss) www.sugarsync.com ➜ 5 GB ➜ 99$ á ári www.dropbox.com ➜ 2 GB* ➜ 99€ á ári www.icloud.com ➜ 5 GB ➜ 200$ á ári drive.google.com ➜ 15 GB* ➜ 60$ á ári www.box.com ➜ 10 GB ➜ 48€ á ári (*) HÆGT AÐ AUKA VIÐ RÝMI MEÐ ÝMSUM LEIÐUM (+) ÓKEYPIS Í EITT ÁR EFTIR SKRÁNINGU FRÍTT GEYMSLURÝMI 100 GB Í ÁSKRIFT www.surdoc.com ➜ 100 GB*+ ➜ 30$ á ári skydrive.live.com ➜ 7 GB ➜ 50$ á ári
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.