Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 18
| 2 25. september 2013 | miðvikudagur
Fróðleiksmolinn
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsinsl i i lí i
Þróun eiginfjárstöðu einstaklinga fyrir og eftir hrun
Hagstofa Íslands tekur saman gögn um eiginfjárstöðu einstaklinga eftir
aldri, fjölskyldugerð og búsetu. Myndin hér að neðan sýnir þróun eiginfjár-
stöðu í milljörðum króna eftir tilteknum aldurshópum frá 25 ára og upp í
49 ára á tímabilinu 2005-2012. Eigið fé alls er skilgreint sem heildareignir
að frádregnum heildarskuldum einstaklinga í þessum aldurshópum. Tölur
eru á verðlagi hvers árs. Eiginfjárstaða allra aldurshópa hefur lækkað frá
2005 á breytilegu verðlagi. Frá 2010 hefur eiginfjárstaðan almennt batnað
en tveir aldurshópar, 25-29 ára og 30-34, eru með neikvæða eiginfjár-
stöðu í lok árs 2012.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
6
53
85
0
8
/2
01
3
IÐNAÐUR
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
Sex innlend tækni- og hugverka-
fyrirtæki hafa flutt úr landi eða
hætt starfsemi á þeim fimm
árum sem liðin eru frá íslenska
efnahagshruninu. Að auki hafa
sjö fyrirtæki úr greininni verið
seld eða flutt höfuðstöðvar sínar
til útlanda, þótt þau í flestum
tilvikum reki áfram starfsemi
hér á landi. Hluti stjórnenda
fimm fyrir tækja til viðbótar býr
erlendis þar sem starfsemi þeirra
fer að einhverju leyti fram.
„Við höfum miklar áhyggjur af
stöðunni,“ segir Davíð Lúðvíks-
son, forstöðumaður stefnu mót-
unar og nýsköpunar hjá Samtök-
um iðnaðarins.
Davíð segir
gjaldeyris höftin
og fjárfestingar-
leið Seðlabank-
ans, sem virk-
ar þannig að
einstak lingar
og fyrir tæki
geta komið með
erlendan gjaldeyri til landsins og
fengið afslátt af íslenskum krón-
um, vera áhrifavalda í þróun síð-
ustu ára. „Fyrirtæki sem eru að
auka starfsemi sína á alþjóð legum
vettvangi þurfa til þess aukið
fjármagn og hlutafé. Í rauninni
má segja að hlutabréf þessara
fyrirtækja séu á útsölu því krónan
er svo lágt skrifuð og þar að auki
fá menn krónurnar á enn lægra
verði í gegnum fjárfestingarleið-
ina. Því er oft forsenda fyrir því
að nýir aðilar komi að fyrirtækj-
unum, að höfuðstöðvar þeirra séu
færðar út úr íslenskri lögsögu,
vegna viðskiptaumhverfisins hér
á landi. Mönnum er því stillt upp
við vegg,“ segir Davíð.
Hann segir þó að flest þeirra
fyrirtækja sem flutt hafa höfuð-
stöðvar sínar til útlanda kjósi að
halda þróunarstarfi áfram hér á
landi. Ástæðan sé sú að þróunar-
umhverfið hér sé að mörgu leyti
gott. „Það helgast af því að það er
ákveðinn grunnur í starfsfólkinu
og okkur hefur tekist að lagfæra
ýmislegt í starfsskilyrðum fyrir-
tækjanna. Tækniþróunarsjóður-
inn var efldur eftir hrun, þótt nú
séu blikur á lofti með hann í ljósi
niðurskurðar í fjárlögum, og það
tókst að koma á endurgreiðslum
rannsókna- og þróunarkostnaðar
í tengslum við skattkerfið, sem
hefur skipt sköpum.“
Davíð undirstrikar einnig að
greinin hafi misst lykilfólk úr sam-
tökum og stjórnum tækni- og hug-
verkafyrirtækja. Til marks um það
segist hann auðveldlega geta nefnt
tíu einstaklinga sem séu nú farn-
ir af landi brott en hafi áður lagt
verulegan skerf til þróunar grein-
arinnar hér á landi. „Í mörgum
tilfellum hefur þetta fólk starf-
að hjá þessum fyrirtækjum sem
um ræðir og aðstæður þeirra því
breyst. Einnig er spurning hvort
hér ríki ákveðið þreytuástand
þar sem fólk er búið að berjast í
bökkum frá hruni. Fáar greinar
hafa komið betur út úr hruninu en
það hefur farið mikil vinna og orka
í að ná þeim árangri.“
Hafa áhyggjur af
fyrirtækjaflótta
Sex tækni- og hugverkafyrirtæki hafa síðustu ár flutt úr landi eða
hætt starfsemi. Samtök iðnaðarins hafa áhyggjur af stöðunni.
DAVÍÐ
LÚÐVÍKSSON
250
200
150
100
50
0
-50
M
ill
ja
rð
ar
k
ró
na
http://data.is/1bD6IDG
■ 25-29 ára
■ 30-34 ára
■ 35-39 ára
■ 40-44 ára
■ 45-49 ára
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
Heimild: Hagstofa Íslands
Myndin hér að neðan sýnir þróun eiginfjárstöðu í milljörðum króna hjá
eldri hópum eða 50 ára og eldri. Eðli máls samkvæmt er eiginfjárstaða
eldri kynslóða meiri en yngri kynslóða. Eins og sést á þessari mynd er
eiginfjárstaðan best hjá 67 ára eldri en sá hópur er hvað stærstur skv.
aldurshópaskiptingu hjá Hagstofunni. Eiginfjárstaða eldri aldurshópa
breyttist hlutfallslega minna í kjölfar hrunsins. Líkleg skýring á því er að
skuldir skuldsettari yngri kynslóða hækkuðu (t.d. verðtryggð íbúðalán)
í verðbólguskotinu eftir hrun á sama tíma átti eignalækkun sér stað hjá
öllum aldurshópum.
1.000
800
600
400
200
0
M
ill
ja
rð
ar
k
ró
na
http://data.is/1bD6Enm
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
■ 50-54 ára
■ 55-59 ára
■ 60-66 ára
■ 67+ ára
Heimild: Hagstofa Íslands
FRUMKVÖÐLAR Fulltrúar fjölmargra tækni- og hugverkafyrirtækja voru saman-
komnir á Startup Reykjavík 2013.
Landsbankinn ætlar í nóvember að
breyta útibúi bankans í Vesturbæ
Reykjavíkur þannig að það mun
ekki sýsla með reiðufé og þar verða
engar gjaldkerastúkur.
„Í útibúinu verður einnig ný gerð
hraðbanka sem taka við reiðufé.
Með þeim verður meðal annars
hægt að greiða reikninga,“ segir
Kristján Kristjánsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsbankans.
Starfsfólk útibúsins mun að sögn
Kristjáns ekki sitja við eitt tiltekið
borð heldur þar sem hentar hverju
sinni og eyða meiri tíma úti á gólfi
bankans. „Vegna þess tíma- og
vinnusparnaðar sem felst í því að
sjálfvirknivæða ýmsa ein faldari
þjónustu á starfsfólk bankans að
geta sinnt betur þeim viðskipta-
vinum sem þurfa ítarlegri fjármála-
ráðgjöf.“
Að sögn Kristjáns hefur ekki
verið tekin ákvörðun um hvort farið
verði í svipaðar breytingar í öðrum
útibúum Landsbankans. - hg
Landsbankinn segist ætla að auka sjálfvirkni með breytingum á útibúi:
Peningalaust útibú í Vesturbæ
BREYTA ÚTIBÚINU Sérfræðingar
frá Nordea hafa gefið starfsmönnum
Landsbankans ráðleggingar varðandi
breytingarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Miðvikudagur 25. september
➜ Vinnumarkaðsrannsókn í ágúst
Fimmtudagur 26. september
➜ Vísitala neysluverðs í september
Föstudagur 27. september
➜ Nýskráningar og gjaldþrot hluta-
félaga og einkahlutafélaga í
ágúst 2013
➜ Vísitala framleiðsluverðs í ágúst
Mánudagur 30. september
➜ Vöruskipti við útlönd
janúar-ágúst 2013
Miðvikudagur 2. október
➜ Fasteignamarkaðurinn í mán-
uðum eftir landshlutum
➜ Vaxtaákvörðunardagur Seðla-
banka Íslands
Föstudagur 4.október
➜ Vöruskipti við útlönd í
september 2013
➜ Gistinætur og gestakomur á
hótelum í ágúst 2013
➜ Útboð ríkisbréfa