Fréttablaðið - 25.09.2013, Page 8

Fréttablaðið - 25.09.2013, Page 8
25. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | Höf heimsins hafa tekið til sín 30% af því koldíoxíði (koltvísýringi) sem losað hefur verið síðast liðin 250 ár, eða frá því að iðnbylt ingin hófst. Loftslagsbreytingar eru þekktar af völdum bruna jarðefna- eldsneytis og eru á allra vitorði. Minna hefur hins vegar farið fyrir umræðunni um hliðar afurðina; súrnun hafsins sem ekkert síður en loftslagsbreytingar mun hafa áhrif á vistkerfið og lífsskilyrði á jörðinni allri. Þetta var meðal þess sem kom fram í fyrirlestri dr. Richards Feely, hafefnafræðings frá Haf- og veðurfræðistofnun Bandaríkj- anna, á ársfundi Alþjóðahafrann- sóknaráðsins (ICES) sem haldinn er þessa dagana í Reykjavík. Af fyrirlestri dr. Feely mátti ráða að súrnun hafsins ætti ekkert síður að vera áhyggjuefni jarðar- búa en hlýnun jarðar. Svo er hins vegar ekki, og má því segja að súrnun hafsins sé lúmskur óvinur. „Rannsóknir á súrnun hafsins hafa staðið yfir í um fimmtíu ár en það var aðeins fyrir um tíu til fimm- tán árum sem vísindin voru komin það langt að menn gerðu sér grein fyrir vandanum,“ sagði dr. Feely og bætti við að miðað við óbreytta losun myndi ástand sjávar breyt- ast hratt til hins verra. „Súrnun hafsins í dag er tífalt hraðari en nokkuð sem þekkt er í jarðsög- unni. Af rannsóknagögnum höfum við áður séð sömu breytingar sem tóku milljónir ára. Breyt ingarnar sem nú eru að verða hafa tekið nokkur hundruð ár, og aðallega á síðustu áratugum.“ Hvað er að gerast? En hvað er að gerast í hafinu? Dr. Feely útskýrði að súrnun sjávar er þegar styrkur koldíoxíðs eykst og sýrustigið (pH-gildið) lækkar. Við þetta lækkar kalkmettun sjávar, sem hefur víðtæk áhrif og kvíð- vænleg áhrif. Í þessu samhengi fjallaði hann sérstaklega um áhrif súrnunar á kalkmettandi lífverur; lífverur sem mynda stoðvef úr kalki. Má þar nefna skeldýr ýmiss konar, svo ekki sé minnst á kóralrif heimsins. Þetta tvennt, þótt með ólíkum hætti sé, gegnir ómissandi hlutverki í vistkerfum sjávar og í fæðukeðjunni. Hnignun þessara lífvera mun hafa dómínóáhrif á vist kerfið í heild, sagði dr. Feely, enda eru atburðir í jarðsögunni þekktir. Vísaði hann til þess að fyrir 250 milljónum ára er talið að allt að 95% allra sjávarlífvera hafi dáið út eftir að koldíoxíð snarjókst í andrúmslofti og í hafinu. Í stærra samhengi Dr. Feely sagði að vísindin hefðu ekki svör við veigamiklum spurn- ingum á þessum tímapunkti. Munu lífverur aðlagast – hafa þær getu til þess í ljósi þess hversu breyt- ingarnar eru hraðar? Ekkert bendir til sérstakrar bjartsýni hvað þetta varðar, sagði dr. Feely. Þegar horft er til áhrifanna í stærra samhengi nefndi hann fjöl- mörg atriði. Hér kemur til álita almenn geta sjávardýra til að lifa af, hugsanlega hrekjast einstakar lífverur frá búsvæðum sínum og aðrar koma í þeirra stað, súrnun sjávar hefur líka áhrif á ratvísi líf- vera í hafinu. Nýjustu rannsóknir sýna samband á milli sýrustigs í blóði og getu dýra til að verja sig; að forða sér frá rándýrum. Engar fréttir? Við Ísland eru þessar rann sóknir engin nýlunda. Jón Ólafsson, haffræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, og hans fólk hafa viðað að sér gögnum um hafið við Ísland allt frá árinu 1984. Fram hefur komið að gögnin sýna með afgerandi hætti við hvað er að eiga og hvernig það snertir Ísland, eins háð og það er gjöfum hafsins. Súrnun hafsins norðan við landið er nefnilega hraðari en víða á suð- lægari slóðum. Þegar dr. Feely ræðir um lausn vandans má í raun gera hann upp í fáum orðum og þar eru engin ný tíðindi. Draga verður verulega úr losun koldíoxíðs út í andrúms loftið en aðrar lausnir til mótvægis eru í raun aðeins kenningar á borðum vísindamanna. ASKÝRING | 8 LOFTSLAGSMÁL Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Hlýnun sjávar Hlýnun jarðar Aukning gróðurhúsa- loft tegunda Upptaka sjávar á CO2 minnkar Útdauði sjávarlíf- vera Fæðu- skortur Metan- strókar Súrnun sjávar Súrnun hafsins er lúmskur óvinur Á sama tíma og hnattræn hlýnun er á allra vitorði fer minna fyrir umfjöllun um súrnun hafsins. Einn virtasti sérfræðingur heims í haf- fræði segir að breytingar í hafinu muni hafa mikil áhrif á sjávarlífverur og vistkerfið allt. Súrnun hafsins er tífalt hraðari en áður er þekkt. VANDINN KRUFINN Dr. Richard Feely er einn virtasti vísindamaður á sínu sviði í heiminum. Hann dró upp ófagra mynd í fyrirlestri á ársfundi Alþjóðahafrannsókna- ráðsins (ICES) í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEIMILD: LOFTSLAG.IS " BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 6 4 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.