Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 20
 | 4 25. september 2013 | miðvikudagur EFNAHAGSMÁL Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is „Ráðstefna eins og þessi er tímabær. Tími er kominn til þess að tala um framtíðina líka, ekki bara hvað við getum lært af hruninu,“ sagði Hösk- uldur Ólafsson, forstjóri Arion banka, í spjalli við blaðamann við upphaf ráð- stefnunnar Iceland Investment Forum 2013, sem fram fór á Waldorf Hilton hótelinu í miðborg Lundúna síðast- liðinn fimmtudag. Ráðstefnan var í umsjá Merger- market Group með þátttöku Arion banka, Íslandsstofu, Carbon Recycl- ing og lögfræðistofunnar Logos. Um- fjöllunarefnið var fjárfestingar- og efnahagsumhverfið á Íslandi í dag og tilgangurinn að kynna erlendum fjár- festum landið sem fjárfestingarkost. Hér hefur erlend fjárfesting verið í sögulegu lágmarki frá hruni, enda landið í viðjum gjaldeyrishafta og sér ekki enn fyrir endann á óvissuþáttum í efnahagslífinu. ÁNÆGJA MEÐ MÆTINGUNA Skipuleggjendur ráðstefnunnar virt- ust ánægðir með þátttökuna, en á staðinn komu um 150 af þeim ríflega 170 sem skráðir voru til leiks. Þar af var reyndar um helmingurinn Íslend- ingar. Erlendu gestirnir skiptust svo í nokkra hópa. Þar mátti sjá fulltrúa erlendra fjölmiðla, fulltrúa fjármála- stofnana og fyrirtækja sem þegar eiga fjármuni fasta í landinu og hafa af þeim sökum áhuga á framvindu mála á Íslandi og svo einhverja fjárfesta. Mögulega hafa gestirnir sem raun- verulegan áhuga höfðu á íslensku fjárfestingarumhverfi náð eitthvað á annan tuginn. Af spjalli við full- trúa íslensks viðskiptalífs á staðnum mátti ráða að það þætti bara nokkuð gott. Dæmi væru um að blásið hefði verið til viðlíka kynninga áður án þess að nokkur sýndi því raunveru- legan áhuga. Í ljósi þessa er skiljan- legur spenningur sem greina mátti meðal íslenskra gesta um hvernig til tækist. Í ráðstefnulok virtust menn anda léttar. Þá var talinn hliðarávinningur í kynningunni og umræðunni sem viðburðurinn gat af sér. Sig mundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra var gestur á ráðstefnunni og frum- mælandi. Gestir fylgdust náttúrulega grannt með ræðu hans en til við bótar var hann svo bókaður í um 20 viðtöl í erlendum miðlum í tengslum við við- burðinn. Skilaboð stjórnvalda náðu því vel út fyrir veggi ráðstefnunnar. BJARTUR TÓNN Í FRAMSÖGUM Þórður Hilmarsson, forstöðu maður fjárfestingasviðs Íslandsstofu, var líka vongóður um góðan árangur í upphafi ráðstefnunnar. „Núna er ein- mitt rétti tíminn til að keyra þetta í gang,“ sagði hann og bætti við að opna þyrfti augu fjárfesta fyrir því að efna- hagslífið væri að taka við sér og mögu- leikar að opnast á Íslandi. „Og frá- bært að fá forsætisráð herrann til að koma og færa fjárfestum þessi skila- boð – vonandi,“ sagði Þórður glettinn skömmu áður en Sigmundur Davíð átti að stíga í pontu og gestir voru enn að tínast í hús. Þótt tónninn væri bjartur í fram- sögum margra frummælenda á Ice- land Investment Forum, svo sem hjá forsætisráðherra, er ljóst að óvissu- þættir sem fæla frá erlenda fjárfesta eru enn til staðar. Þá hefur blaðið heimildir fyrir því að þótt gjaldeyris- höft eigi ekki að ná til nýfjárfestinga RÆTT VIÐ RÁÐSTEFNUGESTI Áður er ráðstefnan hófst í Lundúnum síðastliðinn fimmtudag gaf Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sér tíma til að spjalla við gesti ráðstefnunnar. Dagskrá hans fram eftir degi var svo þétt skipuð viðtölum við erlenda fréttamiðla. MYND/MERGERMARKET Í HÁDEGISHLÉI Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, var með erindi á ráðstefnu Mergermarket. Hann ræðir hér við Þorstein Pálsson, stjórnarformann MP banka. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ STAÐAN RÆDD Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Arion banka, og Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar Seðlabankans, fóru yfir stöðuna við upphaf ráðstefnunnar á Waldorf Hilton hótelinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ PALLBORÐSUMRÆÐUR Guðmundur J. Oddsson frá Logos, Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Arion banka, og Catherine Ford, ráðstefnustjóri Mergermarket, velta fyrir sér fjárfestingarumhverfi á Íslandi. MYND/MERGERMARKET Óvíst um uppskeru í óvissuástandi Ísland var kynnt sem fjárfestingarkostur á ráðstefnunni Iceland Investment 2013 sem haldin var í Lundúnum fyrir helgi. Nokkurrar spennu gætti um hvernig til tækist. Ný ríkisstjórn segist bera hag fjárfesta fyrir brjósti. Skilaboðin frá Sigmundi Davíð Gunn- laugssyni forsætisráðherra í framsögu hans voru á þá leið að Ísland væri að komast á beinu brautina með auknum stöðugleika eftir umrótaskeið. Komin væri til valda ríkisstjórn sem legði áherslu á að ýta undir fjárfestingu og vöxt. „Ég tel landið á ákveðnum tímamótum. Í síðustu kosningum fengu þeir tveir flokkar ríflegan meirihluta sem deila sýn á það hvernig ýta eigi undir fjárfestingu á Íslandi og laða að fjárfestingu. Samstarf þessara mið- og hægri flokka hefur langa sögu í íslenskum stjórnmálum og hefur gott orðspor við að auka hagvöxt, draga úr opinberri skuldsetningu og halda í reiðu fjármálum ríkisins.“ Um leið var Sigmundur með mjög ákveðin skilaboð til fjárfesta um að íslenska krónan væri sá gjaldmiðill sem ráðandi yrði í viðskiptum á Íslandi um fyrirsjáanlega framtíð. „Ríkisstjórnin hefur trú á íslensku krónunni og er staðföst í að viðhafa heilbrigða stjórn efnahagsmála sem styður við grundvöll hennar,“ sagði Sigmundur Davíð. „Ég er líka viss um að íslenska krónan á eftir að endurheimta fyrri styrk,“ bætti hann við. Um leið áréttaði Sigmundur Davíð að ríkisstjórnin héldi áfram vinnu við afnám gjaldeyrishaftanna sem komið hafi verið á með neyðarlögunum 2008. „Þótt höft hafi verið nauðsynleg á sínum tíma eru áhrifin til lengri tíma skaðleg. Þau brengla eignaverð, koma óorði á gjald- miðilinn, torvelda fjárfestingu og draga úr samkeppnishæfni okkar.“ Um leið sagði forsætisráðherra þó mikilvægt að hafa í huga að gjaldeyrishöftin næðu ekki til nýfjárfestinga á Íslandi. Forsætisráðherra sagði stjórnina líka leggja ríka áherslu á gott samstarf við Evrópu þótt hlé hefði verið gert á aðildar- viðræðum við ESB. „Ríkisstjórnin leggur líka áherslu á bætt samskipti við Banda- ríkin,“ sagði hann, auk þess sem áhersla væri lögð á tvíhliða fríverslunarsamninga við önnur ríki, svo sem samninginn við Kína sem lagður verður fyrir Alþingi í næsta mánuði. Sigmundur Davíð byrjaði ræðu sína á dálítið þungum nótum með því að fara yfir þau verkefni sem fram undan væru. Skuldaleiðrétting á næsta leiti væri hluti af heildrænni nálgun ríkisstjórnarinnar á að rétta við efnahagslífið. Fjárhagur fjölskyldnanna væri undirstaða heilbrigðs efnahagslífs og skuldavandavinnan væri vel á veg komin. Hann endaði hins vegar ræðu sína á léttu nótunum og sagði ljóst að framtíðin væri björt á Íslandi. Hér væru undirstöður góðar, vinnumarkaður sveigjanlegur, náttúruauðlindir ríkulegar og landgæði slík að sífellt löðuðu fleiri ferðamenn til landsins. „Helstu skilaboð mín til ykkar í dag eru eftirfarandi: Ríkisstjórn mín áttar sig á því að öflugt viðskiptalíf og iðnaður eru undirstaða vaxtar og velferðar,“ sagði Sigmundur Davíð og kvað stjórnvöld vilja vinna að viðskiptaumhverfi sem væri hag- fellt þörfum fjárfesta. „Takk aftur fyrir að bjóða mér á Iceland Investment Forum. Vonandi sé ég ykkur og peningana ykkar á Íslandi,“ gantaðist forsætisráðherra að lokum og fékk ágætar viðtökur við brandaranum, hlátur og lófaklapp. SEGIR LANDIÐ KOMIÐ Á BEINU BRAUTINA Í PONTU Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á Iceland Investment Forum 2013 í Lundúnum fyrir helgi að nú sæi fyrir endann á pólitísku umróti sem varð á Íslandi í kjölfar hrunsins. MYND/MERGERMARKET á Íslandi virðist þau skilaboð ekki ná alla leið. Þannig ráðleggi lögfræðideild stórs norræns banka fjárfestum alfarið frá fjárfestingu á Íslandi á meðan höft séu við lýði. KÁLIÐ ER EKKI SOPIÐ Afnám gjaldeyrishafta sagði Ásdís Kristjánsdóttir, yfirmaður greiningar- deildar Arion banka, í erindi sínu „Timburmenn fjármálakreppunnar“, að væri stærsta verkefnið sem fram undan væri í íslensku efnahagslífi. „Efnahagslífið er á hægum, en um leið brothættum, batavegi,“ sagði hún. Eftir því sem lengra liði yrði æ flókn- ara að losa landið úr viðjum haftanna. Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta og fjárstýringar Seðlabanka Íslands, sagði líka að þar á bæ hlökkuðu menn til þess að sjá fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar um næstu mánaðamót. Frumvarpið væri eitt af þeim mikilvægustu sem lögð yrðu fram. „Eigi markmið að nást um að aflétta gjaldeyrishöftum er agi í ríkisfjármálum lykilatriði,“ sagði Sturla. Líklegt má því teljast að útlendingar sem hug hafa á að láta reyna á tæki- færi tengd fjárfestingum á Íslandi hinkri eftir næstu fréttum af fram- göngu efnahagslífsins áður en tekið er stökkið inn fyrir múra gjaldeyris- haftanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.