Fréttablaðið - 25.09.2013, Side 20
| 4 25. september 2013 | miðvikudagur
EFNAHAGSMÁL
Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is
„Ráðstefna eins og þessi er tímabær.
Tími er kominn til þess að tala um
framtíðina líka, ekki bara hvað við
getum lært af hruninu,“ sagði Hösk-
uldur Ólafsson, forstjóri Arion banka,
í spjalli við blaðamann við upphaf ráð-
stefnunnar Iceland Investment Forum
2013, sem fram fór á Waldorf Hilton
hótelinu í miðborg Lundúna síðast-
liðinn fimmtudag.
Ráðstefnan var í umsjá Merger-
market Group með þátttöku Arion
banka, Íslandsstofu, Carbon Recycl-
ing og lögfræðistofunnar Logos. Um-
fjöllunarefnið var fjárfestingar- og
efnahagsumhverfið á Íslandi í dag og
tilgangurinn að kynna erlendum fjár-
festum landið sem fjárfestingarkost.
Hér hefur erlend fjárfesting verið í
sögulegu lágmarki frá hruni, enda
landið í viðjum gjaldeyrishafta og sér
ekki enn fyrir endann á óvissuþáttum
í efnahagslífinu.
ÁNÆGJA MEÐ MÆTINGUNA
Skipuleggjendur ráðstefnunnar virt-
ust ánægðir með þátttökuna, en á
staðinn komu um 150 af þeim ríflega
170 sem skráðir voru til leiks. Þar af
var reyndar um helmingurinn Íslend-
ingar.
Erlendu gestirnir skiptust svo í
nokkra hópa. Þar mátti sjá fulltrúa
erlendra fjölmiðla, fulltrúa fjármála-
stofnana og fyrirtækja sem þegar eiga
fjármuni fasta í landinu og hafa af
þeim sökum áhuga á framvindu mála
á Íslandi og svo einhverja fjárfesta.
Mögulega hafa gestirnir sem raun-
verulegan áhuga höfðu á íslensku
fjárfestingarumhverfi náð eitthvað
á annan tuginn. Af spjalli við full-
trúa íslensks viðskiptalífs á staðnum
mátti ráða að það þætti bara nokkuð
gott. Dæmi væru um að blásið hefði
verið til viðlíka kynninga áður án
þess að nokkur sýndi því raunveru-
legan áhuga. Í ljósi þessa er skiljan-
legur spenningur sem greina mátti
meðal íslenskra gesta um hvernig til
tækist. Í ráðstefnulok virtust menn
anda léttar.
Þá var talinn hliðarávinningur
í kynningunni og umræðunni sem
viðburðurinn gat af sér. Sig mundur
Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra
var gestur á ráðstefnunni og frum-
mælandi. Gestir fylgdust náttúrulega
grannt með ræðu hans en til við bótar
var hann svo bókaður í um 20 viðtöl í
erlendum miðlum í tengslum við við-
burðinn. Skilaboð stjórnvalda náðu
því vel út fyrir veggi ráðstefnunnar.
BJARTUR TÓNN Í FRAMSÖGUM
Þórður Hilmarsson, forstöðu maður
fjárfestingasviðs Íslandsstofu, var
líka vongóður um góðan árangur í
upphafi ráðstefnunnar. „Núna er ein-
mitt rétti tíminn til að keyra þetta í
gang,“ sagði hann og bætti við að opna
þyrfti augu fjárfesta fyrir því að efna-
hagslífið væri að taka við sér og mögu-
leikar að opnast á Íslandi. „Og frá-
bært að fá forsætisráð herrann til að
koma og færa fjárfestum þessi skila-
boð – vonandi,“ sagði Þórður glettinn
skömmu áður en Sigmundur Davíð átti
að stíga í pontu og gestir voru enn að
tínast í hús.
Þótt tónninn væri bjartur í fram-
sögum margra frummælenda á Ice-
land Investment Forum, svo sem hjá
forsætisráðherra, er ljóst að óvissu-
þættir sem fæla frá erlenda fjárfesta
eru enn til staðar. Þá hefur blaðið
heimildir fyrir því að þótt gjaldeyris-
höft eigi ekki að ná til nýfjárfestinga
RÆTT VIÐ
RÁÐSTEFNUGESTI
Áður er ráðstefnan
hófst í Lundúnum
síðastliðinn
fimmtudag gaf
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
forsætisráðherra sér
tíma til að spjalla við
gesti ráðstefnunnar.
Dagskrá hans fram
eftir degi var svo þétt
skipuð viðtölum við
erlenda fréttamiðla.
MYND/MERGERMARKET
Í HÁDEGISHLÉI Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, var með
erindi á ráðstefnu Mergermarket. Hann ræðir hér við Þorstein Pálsson,
stjórnarformann MP banka. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
STAÐAN RÆDD Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Arion banka, og Sturla
Pálsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar Seðlabankans, fóru yfir stöðuna
við upphaf ráðstefnunnar á Waldorf Hilton hótelinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
PALLBORÐSUMRÆÐUR Guðmundur J. Oddsson frá Logos, Orri Hauksson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri
Arion banka, og Catherine Ford, ráðstefnustjóri Mergermarket, velta fyrir sér
fjárfestingarumhverfi á Íslandi. MYND/MERGERMARKET
Óvíst um uppskeru í óvissuástandi
Ísland var kynnt sem fjárfestingarkostur á ráðstefnunni Iceland Investment 2013 sem haldin var í Lundúnum
fyrir helgi. Nokkurrar spennu gætti um hvernig til tækist. Ný ríkisstjórn segist bera hag fjárfesta fyrir brjósti.
Skilaboðin frá Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni forsætisráðherra í framsögu
hans voru á þá leið að Ísland væri að
komast á beinu brautina með auknum
stöðugleika eftir umrótaskeið. Komin væri
til valda ríkisstjórn sem legði áherslu á að
ýta undir fjárfestingu og vöxt.
„Ég tel landið á ákveðnum tímamótum.
Í síðustu kosningum fengu þeir tveir
flokkar ríflegan meirihluta sem deila sýn
á það hvernig ýta eigi undir fjárfestingu á
Íslandi og laða að fjárfestingu. Samstarf
þessara mið- og hægri flokka hefur langa
sögu í íslenskum stjórnmálum og hefur
gott orðspor við að auka hagvöxt, draga
úr opinberri skuldsetningu og halda í
reiðu fjármálum ríkisins.“
Um leið var Sigmundur með mjög
ákveðin skilaboð til fjárfesta um að
íslenska krónan væri sá gjaldmiðill sem
ráðandi yrði í viðskiptum á Íslandi um
fyrirsjáanlega framtíð. „Ríkisstjórnin hefur
trú á íslensku krónunni og er staðföst í að
viðhafa heilbrigða stjórn efnahagsmála
sem styður við grundvöll hennar,“ sagði
Sigmundur Davíð. „Ég er líka viss um að
íslenska krónan á eftir að endurheimta
fyrri styrk,“ bætti hann við.
Um leið áréttaði Sigmundur Davíð að
ríkisstjórnin héldi áfram vinnu við afnám
gjaldeyrishaftanna sem komið hafi verið
á með neyðarlögunum 2008. „Þótt höft
hafi verið nauðsynleg á sínum tíma
eru áhrifin til lengri tíma skaðleg. Þau
brengla eignaverð, koma óorði á gjald-
miðilinn, torvelda fjárfestingu og draga úr
samkeppnishæfni okkar.“ Um leið sagði
forsætisráðherra þó mikilvægt að hafa
í huga að gjaldeyrishöftin næðu ekki til
nýfjárfestinga á Íslandi.
Forsætisráðherra sagði stjórnina líka
leggja ríka áherslu á gott samstarf við
Evrópu þótt hlé hefði verið gert á aðildar-
viðræðum við ESB. „Ríkisstjórnin leggur
líka áherslu á bætt samskipti við Banda-
ríkin,“ sagði hann, auk þess sem áhersla
væri lögð á tvíhliða fríverslunarsamninga
við önnur ríki, svo sem samninginn við
Kína sem lagður verður fyrir Alþingi í
næsta mánuði.
Sigmundur Davíð byrjaði ræðu sína á
dálítið þungum nótum með því að fara
yfir þau verkefni sem fram undan væru.
Skuldaleiðrétting á næsta leiti væri hluti
af heildrænni nálgun ríkisstjórnarinnar
á að rétta við efnahagslífið. Fjárhagur
fjölskyldnanna væri undirstaða heilbrigðs
efnahagslífs og skuldavandavinnan væri
vel á veg komin.
Hann endaði hins vegar ræðu sína á
léttu nótunum og sagði ljóst að framtíðin
væri björt á Íslandi. Hér væru undirstöður
góðar, vinnumarkaður sveigjanlegur,
náttúruauðlindir ríkulegar og landgæði
slík að sífellt löðuðu fleiri ferðamenn til
landsins. „Helstu skilaboð mín til ykkar í
dag eru eftirfarandi: Ríkisstjórn mín áttar
sig á því að öflugt viðskiptalíf og iðnaður
eru undirstaða vaxtar og velferðar,“ sagði
Sigmundur Davíð og kvað stjórnvöld vilja
vinna að viðskiptaumhverfi sem væri hag-
fellt þörfum fjárfesta. „Takk aftur fyrir að
bjóða mér á Iceland Investment Forum.
Vonandi sé ég ykkur og peningana ykkar
á Íslandi,“ gantaðist forsætisráðherra
að lokum og fékk ágætar viðtökur við
brandaranum, hlátur og lófaklapp.
SEGIR LANDIÐ KOMIÐ Á BEINU BRAUTINA
Í PONTU Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra sagði í ræðu sinni á Iceland
Investment Forum 2013 í Lundúnum fyrir helgi að
nú sæi fyrir endann á pólitísku umróti sem varð á
Íslandi í kjölfar hrunsins. MYND/MERGERMARKET
á Íslandi virðist þau skilaboð ekki ná
alla leið.
Þannig ráðleggi lögfræðideild stórs
norræns banka fjárfestum alfarið frá
fjárfestingu á Íslandi á meðan höft séu
við lýði.
KÁLIÐ ER EKKI SOPIÐ
Afnám gjaldeyrishafta sagði Ásdís
Kristjánsdóttir, yfirmaður greiningar-
deildar Arion banka, í erindi sínu
„Timburmenn fjármálakreppunnar“,
að væri stærsta verkefnið sem fram
undan væri í íslensku efnahagslífi.
„Efnahagslífið er á hægum, en um
leið brothættum, batavegi,“ sagði hún.
Eftir því sem lengra liði yrði æ flókn-
ara að losa landið úr viðjum haftanna.
Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri
markaðsviðskipta og fjárstýringar
Seðlabanka Íslands, sagði líka að þar
á bæ hlökkuðu menn til þess að sjá
fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar
um næstu mánaðamót. Frumvarpið
væri eitt af þeim mikilvægustu sem
lögð yrðu fram. „Eigi markmið að
nást um að aflétta gjaldeyrishöftum
er agi í ríkisfjármálum lykilatriði,“
sagði Sturla.
Líklegt má því teljast að útlendingar
sem hug hafa á að láta reyna á tæki-
færi tengd fjárfestingum á Íslandi
hinkri eftir næstu fréttum af fram-
göngu efnahagslífsins áður en tekið
er stökkið inn fyrir múra gjaldeyris-
haftanna.