Fréttablaðið - 25.09.2013, Side 10
25. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
RÚSSLAND, AP „Þú skalt vita það að við höfum
brotið viljasterkara fólk en þig á bak aftur,“ segir
Nadesjda Tolokonnikova að aðstoðaryfirfanga-
vörður í fangabúðunum Mordovia hafi sagt við sig
þegar hún var nýkomin til að afplána þar tveggja
ára dóm.
Hún hafði sagt honum, harla borubrött, að hún
ætlaði sér sko ekki að vinna meira en þá átta tíma
á dag, sem skylt væri samkvæmt reglunum.
Hún hefur nú verið í þessum illræmdu fanga-
búðum í heilt ár en er búin að fá nóg. Á mánudag
birti hún opið bréf, þar sem hún sagðist vera farin
í hungurverkfall. Breska dagblaðið The Guardian
hefur birt bréfið á fréttavef sínum.
Í bréfinu segir hún að vinnutíminn sé almennt
16 til 17 tímar á dag, eða frá hálfátta að morgni til
hálfeitt eftir miðnætti.
„Í besta falli náum við fjögurra tíma svefni
á nóttu. Við fáum einn frídag á eins og hálfs
mánaðar fresti. Við vinnum nánast alla sunnu-
daga,“ segir í bréfinu.
Tolonnikova var handtekin snemma á síðasta
ári ásamt tveimur félögum sínum úr rússnesku
kvennapönksveitinni Pussy Riot. Þær höfðu efnt
til uppákomu í Kristskirkjunni í Moskvu, mikil-
vægustu dómkirkju rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unnar, þar sem þær gagnrýndu Vladimír Pútín
forseta harðlega. - gb
Kvenfangar í Mordovia neyddir til að vinna í sautján tíma á sólarhring:
Í svelti til að mótmæla harðræði
FYRIR DÓMI Nadesjda Tolokonnikova í réttarsal í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra mun boða
breytingar á skattkerfinu þegar
fjárlagafrumvarpið verður lagt
fram í næstu viku. Skattar á lág-
launa- og millitekjufólk verða ekki
hækkaðir.
Útgjalda- og tekjuhlið fjár-
lagafrumvarpsins verða í fyrsta
skipti lagðar fram samtímis þegar
Alþingi kemur saman í næstu viku.
Ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms
tók upp þrepaskipt skattkerfi á
síðasta kjörtímabili en í stjórnar-
sáttmála núverandi ríkisstjórnar
kemur fram að tekjuskattskerfið
verði tekið til endurskoðunar.
Bjarni segir að breytingarnar
verði gerðar í skrefum. „Ég er
bæði að horfa til fjárlaga vetrarins
fram undan, það er fjárlaga
næsta árs, og líka til lengri tíma
í þessu fjárlagafrumvarpi. Við
verðum með fyrstu breytingar í
ákveðnum málum og síðan ætlum
við að setja af stað vinnu til að
skoða skattkerfið til lengri tíma.“
- hks
Skattar á láglauna- og millitekjufólk verða ekki hækkaðir að sögn Bjarna:
Tekjuskattskerfið endurskoðað
BJARNI BENEDIKTSSON Fjármálaráð-
herra hyggst ekki hækka skatta á lág- og
millitekjufólk. FRÉTTABLAÐIÐ/BALDUR
GERÐU FRÁBÆR KAUP Á
NOTUÐUM BÍL FRÁ OKKUR!
BILALAND.IS
CHEVROLET CAPTIVA - 7 sæta
Nýskr. 09/11, ekinn 40 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.780 þús.
Rnr.151751.
NISSAN NAVARA SE
Nýskr. 05/07, ekinn 145 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.490 þús.
Rnr.201049.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
DACIA DUSTER PLUS 4x4
Nýskr. 04/13, ekinn 23 þús. km.
dísil, beinskiptur.
Rnr. 130722.
KIA CEED EX
Nýskr. 12/12, ekinn 3 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.270 þús.
Rnr.280524
HYUNDAI i10
Nýskr. 05/11, ekinn 38 þús km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.380 þús.
Rnr.120180.
SUZUKI SWIFT 4x4
Nýskr. 05/11, ekinn 53 þús. km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.190 þús.
Rnr.130711.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 06/11, ekinn 60 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.290 þús.
Rnr.141353.
Frábært verð
3.690 þús.
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR
ATVINNULÍF Hægt er að hleypa
nýju lífi í íslenskt atvinnulíf og
skapa að minnsta kosti 4.000
störf hér á landi á næstu árum
með markvissum aðgerðum
til að bæta umhverfi minni og
meðalstórra fyrirtækja. Þetta
kemur fram í tillögum sem Félag
atvinnurekenda (FA) kynnir í
dag, undir yfirskriftinni Falda
aflið.
Tillögur FA eru í tólf liðum og
lúta meðal annars að því að setja
eignarhaldi fjármálafyrirtækja
í óskyldum rekstri hömlur og að
auka heimildir lífeyrissjóða til að
fjárfesta í óskráðum verðbréfum,
meðal annars verði þeir hvattir
til þess að fjárfesta í meðal-
stórum fyrirtækjum.
Almar Guð-
mundsson,
framkvæmda-
stjóri FA, segir
í samtali við
Fréttablaðið að
það séu einna
helst úrbætur
á sviðum sem
tengjast sam-
keppnismál-
um sem myndu
gagnast smáum og meðalstórum
fyrirtækjum fyrst.
„Það verður meðal annars að
vera hafið yfir allan vafa að sam-
keppni sé á jafnréttisgrundvelli
og þess vegna viljum við herða að
bönkunum.“
Almar undirstrikar einnig
að mikilvægt sé að skýra sam-
keppnis úrræði.
„Þess vegna leggjum við til að
Samkeppniseftirlitið birti svo-
kölluð bindandi álit, sem tíðkast
bæði í tollinum og hjá skattinum.
Það þýðir að minni aðilinn í sam-
keppni er fljótari að fá viðbrögð
frá samkeppnisyfirvöldum um
hvort hlutirnir séu í lagi eða ekki
og það er alltaf til bóta.“
Þá segir Almar að launakostn-
aður smærri fyrirtækja sé í eðli
sínu hærri en stærri fyrirtækja
og því geti tryggingagjaldið verið
íþyngjandi.
„Alla vega gæti lækkun á
tryggingagjaldi skilað sér í svig-
rúmi til að ráða fólk, hækka laun
eða ráðast í úrbætur eða fjár-
festingar. Þarna losnar úr læð-
ingi ákveðinn kraftur. Þetta eru
kannski ekki háar tölur á hvert
fyrirtæki en ef þúsundir fyrir-
tækja eru öll að bæta stöðu sína
verður til ákveðið hreyfiafl.“
Almar segir FA stefna að því
að aðgerðum byggðum á til lögum
þeirra verði hrint í framkvæmd
fyrir þinglok næsta vor.
„Við teljum að það sé raunhæft
og ef marka má nýlegar yfirlýs-
ingar Ragnheiðar Elínar Árna-
dóttur, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, meðal annars um einföldun
regluverksins getum við ekki verið
annað en bjartsýn á að það sé vilji
hjá stjórnvöldum til að leggjast á
árar með okkur. En tíminn skiptir
máli og við verðum að vinna
hratt.“ thorgils@frettabladid.is
Mikið afl má virkja
í minni fyrirtækjum
Félag atvinnurekenda (FA) hefur lagt fram tillögur til úrbóta á ýmsum sviðum
sem leysa eiga úr læðingi vöxt í minni og meðalstórum fyrirtækjum. Formaður FA
segist bjartsýnn á að hægt verði að koma málum í gang fyrir þinglok næsta vor.
FALIÐ AFL Félag atvinnurekenda segir mikið afl mega leysa úr læðingi með því að
bæta umhverfi minni og meðalstórra fyrirtækja, til dæmis verslana.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ALMAR
GUÐMUNDSSON
Yfir 90 prósent allra fyrirtækja á Íslandi eru með 50 starfsmenn eða færri
og teljast því til minni eða meðalstórra fyrirtækja.
Langflest í hópi minni og meðalstórra